Linda

Landið í skítnum
Við Íslendingar höfum lengi verið talin stolt þjóð.  Stolt yfir fallega landinu okkar, stolt yfir málinu, stolt af upprunanum, stolt yfir gengi okkar í íþróttum af því að við erum svo smá, stolt yfir fallegu kvenkyni þjóðarinnar, stolt yfir langlífi okkar, og svo má lengi áfram telja.  Og hvarvetna sem ég var stödd á jarðarkringlunni, og var innt eftir hvaðan ég væri, þá svaraði ég alltaf með hátt reist höfuð og stolt í röddinni, “ég er frá ÍSLANDI“.  Og þeir sem ekki vissu hvar Ísland var þóttu mér bjánar og fávissumenn, því á okkar góða Íslandi, var saga og landafræði annarra landa kennd í skólum.

Ég veit ekki hvernig ráðamenn þjóðarinnar geta farið svona illa með samlanda sína og verið stoltir af!  Þeir hljóta eiginlega að vera stoltir af verkum sínum, því þeir eru jú enn við stjórn landsins.  Fólk er að missa heimili sín, vinnuna, á varla ofan í sig að éta, og þeir verstu eru í greiðslustöðnun svo þeir geti, við illan leik þó, haldið lífi í fjölskyldu sinni.   Margar fjölskyldur hafa splundrast vegna ástandsins, meðal annars vegna þess að fólk flýr ástandið og flyst búferlum, hjónaskilnaðir og það allra sorglegasta, sjálfsmorð.

Ég veit ekki hvernig þetta fer þegar kemur að því að fólk með greiðslustöðnun þarf að fara að borga aftur af lánum sínum.

Erum við virkilega að fara að sökkva enn dýpra ofan í svartholið?

Hér virðist vera lenska að ef ein verslun hækkar verð hjá sér, þá fylgja hinar fast á eftir.  Ef bensín líterinn hækkar um margar krónur hjá Olís, þá hækka allar hinar bensínstöðvarnar um nákvæmlega sömu krónutölu!  Það er nefnilega alls ekkert samráð á Íslandi!

Þessu er nefnilega alveg öfugt farið erlendis, því þar er verið að keppast um kúnnana.  Margar verslanir lækka verð sín svo um munar, þannig að ef aðrar verslanir vilja vera með, þá verða þær að lækka verðið.  Mjög simpelt.  Og samheldni kúnnana í öðrum löndum er alger, þar eru verslanir bara sniðgengnar eða viðkomandi vara sem hækkuð var.  Hér tuða allir yfir sorglegum fréttaflutningnum um að nú sé enn annar skatturinn lagður á okkur, og enn hækkar kjötið og enn hækkar bensínið og enn er verið að mergsjúga okkur, þó enginn sé eftir mergurinn!  Samt skulum við næsta dag stökkva upp í bíl, fylla hann af bensíni, keyra í búðina, kaupa kjöt og vínber, og greiða hendur og fætur fyrir!  Samstaðan er engin í þessu landi!

Reyndar er kannski erfitt að miða Ísland við önnur lönd vegna þessa, því öll verslun á landinu er bara í höndum örfárra aðila því þeir eru í því að kaupa hvorn annan og/eða að sameinast.   Og við verðum jú að lifa.

Iðnaðarsaltið er nú annað dæmi um hversu lágt má leggjast.  Þar var þögnin alger í mörg ár þó vitað væri að það er ekki ætlað til manneldis.  Samt erum við búin að setja ofan í okkur allan fjandann með saltið fína í öll þessi ár.

Ég er ekki svo viss lengur hvort ég geti talið mig stoltan Íslending og ég held að ef ég yrði spurð í dag úti í heimi hvaðan ég væri, þá myndi risið ekki vera svo hátt og röddin bæri lítið stolt.  Sjálfsagt er það iðnaðarsaltið með öllu sínu krónísku aukaverkunum sem gera okkur Íslendinga að þeim mönnum sem við erum í dag.

Það er skítafýla í þessu landi og ég finn fnykinn af henni daglega.

Dottin í það
Kerfið, það er að segja

Nú er mér sumsé óhætt að taka niður hjálminn, detta í ósaltaðri og ósandaðri hálkunni og mölbrjóta grýlukertið framan á andlitinu á mér!  Ég er nefnilega komin inn.  Inn í kerfið okkar góða sem er svo sanngjarnt og fer svo vel með okkur.  Það tók ekki nema 6 mánuði að detta inn og fá “alla” þá aðstoð sem ég á rétt á.

Ég hef borgað í kerfið “okkar” í 17 ár, flutti af landi brott í 6 ár,  kem heim (þvert á alla hina Íslendingafarana sem fluttir eru í burtu) og á engan rétt!  Kannski, ef ég hefði látið græða í mig PIP púða undir borðið, þá hefði ég líklega verið “golden”.

En ég er innundir og iðnaðarpúðalaus!

Ástin…
…já sem og væntumþykjan, kemur í mörgum myndum.  Við tölum oft um að við elskum kók, elskum gemsann okkar, eða elskum húsið sem við búum í.  Oftar en ekki eiga þessir hlutir ekkert sameiginlegt með orðinu ást.  Sama finnst mér um enska orðið “adopt” eða ættleiðing.

Ameríkanar nota það orð óspart og við hin ýmsu tækifæri.  Þegar maður keyrir um þjóðvegi landsins eða fylkjanna sér maður oft vegaskilti þar sem á stendur “adopt a highway” eða ættleiðum þjóðveginn og er meiningin þá að við eigum ekki að henda eða skilja eftir rusl á eða við þjóðveginn!

Kaninn auglýsir óspart “adopt a pet” eða ættleiðum gæludýr, en þá eiga þeir við dýr sem eru þá í umsjón ríkisins á hinum ýmsu stöðum þar sem fyrri eigendur hafa skilið þau eftir, og/eða að ættleiða dýrin frá þessum stöðum frekar en hjá ræktendum, því oft lifa þau aumingjans dýr við hrikalegar aðstæður allt sitt líf.

Ég hef heyrt frá fleiri en einum og fleiri en tveimur ættleiddum, sem nú eru fullorðinir einstaklingar, og þykir þeim þessi notkun á orðinu “adopt/ættleiðing” frekar sorgleg.  Þessum einstaklingum finnst ekki rétt að ættleiddir einstaklingar séu settir í sama flokk og dýr! svo ég tali nú ekki um þjóðveg!

Þetta er mikið tilfinningarmál hjá þeim og ekki laust við að þeim finnast þau vera eins og illa gerður hlutur sem fyrrverandi “eigendur” vildu losa sig við!

Á meðan ég var ólétt, heyrði ég oftar en einu sinni hvort mig langaði ekki að eiga barn sjálf, svo ég myndi kynnast því hvernig það er að eignast eigið barn!  Hvort ég væri ekki kvíðin fyrir að eiga barnið, því ég myndi líklega elska það barn meira en Ármann, af því að það barn yrði mitt eigið!  Hvort væri ekki gaman að eiga loksins mitt eigið barn!

Í ALVÖRU FÓLK!!!

Ég veit svo sem ekki hverning ég átti að svara þessu, því svona vitleysu er varla vert að svara.  Ég veit svosem vel að fólk spyr ekki þessara spurninga eða kemur með svona yfirlýsingar af illhug, heldur fáfræði. En samt, ef þau bara vissu hve þessar fáfræðilegu spurningar ristu djúpt og særðu í leiðinni!

Ég var spurð af því nú fyrir um 2 mánuðum hvort ég bæri öðruvísi tilfinningar til Ármanns heldur en Alönnuh!  og viðkomandi horfði beint í augun á mér og blikkaði ekki einu sinni!  Mér var orða vant, en spurði þó, því ég vissi að hann ætti börn, hvort hann elskaði annað barna sinna meira en hitt!  og eins og hann, starði ég í augu hans án þess að blikka og beið eftir svari.  Það var fátt um þau.

Það eina sem ég hræddist á meðgöngunni var hvort ég ætti til næga ást til að deila á annað barn, því ást mín á  litla stráknum mínum er svo mikil að ég var ekki viss um að hægt væri að elska annað barn jafn mikið!  En að sjálfsögðu fæðist sú ást bara með barninu um leið og það kemur.

Og fyrir þá sem vilja vita, þá er tilfinningin nákvæmlega sú sama þegar maður fær barnið sitt í hendur, hvort heldur maður fæðir sjálfur eður ei!  og ef þið hafið einhverjar spurningar, áhuga eða efasemdir, þá er ykkur velkomið að banka uppá, setjast niður með mér og fræðast.

Árið
Trúi vart að bæði börnin séu sofnuð og það fyrir klukkan átta!!!!  Þetta gerist bara nánast aldrei svo ég veit varla hvað ég á af mér að gera.  Langaði að kíkja á imbann en ekkert spennandi er þar frekari en fyrri daginn, svo ég settist aðeins niður í tölvuna en þar er lítið um að vera svo ætli sé ekki best að koma með eins og eina færslu og horfa yfir farinn veg.  Svona í anda áramótanna.

Nú þegar árið er liðið og nýja árið er byrjað að telja, vill hugurinn oft leita yfir farinn veg.   Sumar minningar standa uppúr en aðrar verður maður kafa aðeins dýpra í heilann til að ná í brot og brot til þess að minningin verði skýr.  En árið 2011 var mjög viðburðarríkt, reyndar eins og hjá mörgum öðrum og langar mig því aðeins að taka á því sem hæst stendur.

Janúar kom og fór svo ekkert sérstakt gerðist þann mánuðinn.

Febrúar bar heldur betur til tíðinda, því þá bættist við lítið stúlkubarn í fjölskylduna.  Mamma kom til Sikileyjar til að vera viðstödd fæðinguna og hjálpa elstu dótturinni.  Prinsessan fæddist þann 10.02. kl. 2:10.  (finnst þetta dálítið skemmtilegar tölur).   Hún var nefnd Alannah Bríet og var að sjálfsögðu mikil gleði hjá vinum og fjölskyldunni allri heima, þar sem hún, kraftaverkabarnið, á ekki að vera til!

Við öll gjörsamlega kolfallin fyrir prinsessunni.

Mars var mánuður sem ég mun aldrei geta gleymt, því miður, en þá smitaðist prinsessan af RS-vírusnum.  Við mæðgur vorum settar í einangrun í 3 daga upp á hersjúkrahúsi en áður var barnið næstum kafnað í fangi mér.  Það hefði ekki mátt miklu muna, en sem betur fer bjó góð vinkona mín við hliðina á okkur, sem einnig er hjúkrunarkona, og er það henni einni að þakka að hún er á lífi í dag!  Svo einfalt er það.

Systir mín og mágur út til okkar í heimsókn í mars, svo hann var nú ekkert alslæmur mánuðurinn.

Apríl er afmælismánuður Ármanns.  Svo það var haldið mikið húllumhæ fyrir kútinn okkar (æ, hann er nú kannski orðinn of gamall til að ég kalli hann kút ennþá), því þetta var síðasta afmælið hans á Sikiley og það síðasta með þeim vinum sem hann átti orðið þar.

Maí var frekar tíðindalaus, eða alla vega er ekkert sem kemur upp í hugann.  Jú, reyndar byrjaði ég þennan mánuðinn að taka myndir fyrir fólk gegn gjaldi.  Ekki svo miklu, bara rétt til að eiga fyrir diskum til að brenna myndirnar á fyrir fólk.

Júní var mánuður þar sem ég fór svona aðeins að finna fyrir stressi.  Því í lok mánaðarins, var öllu okkar hafurtaski pakkað niður í gáma og sent áleiðis til Íslands!  En um miðjan mánuðinn var haldið fyrir okkur hjónin kveðjupartí frá NCIS skrifstofunni þar sem Clarence var að vinna.  Virkilega gaman en orðið svakalega bersýnt að við vorum að fara.

Allir starfsmenn NCIS og fjölskyldur þeirra og margir virkilega góðir vinir.

Júlí kom og einkenndist af tregablandinni hamingju.  Þetta var mánuðurinn sem við fluttumst heim til Íslands til að sameinast fjölskyldunni aftur, en einnig sá mánuður sem við sögðum bless við lífið okkar eins og við þekktum það.  Vinnuna, fría læknisþjónustu/tannlæknaþjónust, ódýrar verslanir, gott veður, heimilið okkar og, það sem verst var, vinina okkar.

Ágúst var yndislegur.   Við fjölskyldan eyddum saman sumarfríunum og fríhelgunum og eyddum miklum tíma upp í sumarbústað fjölskyldunnar og nutum samverunnar.  Í ágúst eru líka Sandgerðisdagar, en þetta var í fyrsta skipti sem ég hef getað verið með á þessari hátíð, og hér eftir mun ég taka þátt árlega.  Æðislega mikil þátttaka og mikil samstaða íbúa, þvílík skemmtun og dagskráin frábær svo ekki meira sé sagt.  Hvet alla til að koma og kíkja við á næstu Sandgerðisdögum.

September var svona frekar erfiður, þar sem við vorum orðin aðeins efins um að hafa gert rétt með að flytja til Íslands.  Bjuggum ennþá hjá mömmu og pabba og ekkert húsnæði fyrir stórfjölskylduna í sjónmáli, vorum hvorugt komin með vinnu og ekkert virtist vera að ganga upp.  En svo breyttist það snögglega eftir símtal frá fríhöfninni síðustu vikuna í september, þeir hringdu á miðvikudegi og spurðu hvort ég gæti byrjað að vinna á föstudegi, 2 dögum seinna!!  Ég hélt það nú þó ég ætti eftir að redda mér “uniformi”, passa og bílastæðiskorti.

Systir mín fór svo að fá hríðir alveg í blálok mánaðarins, þó ekki væri alveg kominn tími, og átti svo drenginn sinn, barn nr. 4, á sjúkrahúsi Keflavíkur.  Hápunkturinn var náttúrulega sá að ég var viðstödd, í fyrsta sinn, (hafði aldrei viljað horfa á fæðingu í beinni fyrr en nú), og sé ekki eftir því.  Yndisleg stund og maður er algerlega orðlaus við að sjá barn koma í heiminn, svo mikið kraftaverk er það.

Svo mánuðurinn endaði vel.

Október var frábær því þá fundum við hús, til kaupleigu, og fluttum inn í raun viku seinna.  Húsið er á besta stað í bænum og erum við nánast viss um að hérna viljum við vera og þetta hús langar okkur að kaupa.

Alannah fékk fyrstu 2 tennurnar í byrjun mánaðarins, svo ekki söguna meir!..  Barnið að verða 1. árs gamalt og bara með 2 tennur

Nóvember kom og við systur skírðum saman börnin okkar litlu.  Alannah Bríet og Róbert Sölvi.  Virkilega gaman, héldum veisluna hérna heima með um 50 manns í veislu sem samanstóð af nánustu fjölskyldu og vinum.

Við systurnar ásamt skírnarbörnunum, eiginmönnum og prestinum, séra Sigurður Grétar.   En hann mætti með gítarinn sinn og kom dálitlu stuði í veislugesti.

Desember og aðventan voru yndisleg svo ekki sé meira sagt.  Fjölskyldan öll svo mikið saman, svo jólalegt og fallegt hvert sem litið var.  Öll jólaboðin, hátíðin og samverustundirnar voru frábærar, kannski líka meira svo af því að við erum nú, loksins, laus við það stress að þurfa að pakka saman í töskurnar og fljúga aftur til Ítalíu.  Gátum loksins bara verið og notið.

Ég hætti að vinna og Clarence byrjaði í vinnu hjá Ameríska Sendiráðinu.  Það lukkaðist þannig að hann var í fríi yfir jólin, en ekki yfir áramótin, var á vaktinni frá 11 á gamlárskvöld til 7 á nýjársdagsmorgunn.   En hann fékk þó að sjá það sem ég hef aldrei séð, sprengigleðina í Reykjavík.

Já, árið hefur heldur betur verið fullt breytinga hjá okkur fjölskyldunni, en það virðist allt vera í góðum farvegi, alla vega eins og er. Ég hlakka mikið til og er viss um að árið verður skemmtilegt og spennandi.  Sólin hækkar nú í lofti og daginn er tekinn að lengja, svo það er full ástæða til að fara stútfull af bjartsýni inn í árið og njóta þess sem koma skal og takast á við það sem lífið hefur uppá að bjóða.

Takk fyrir árið kæru vinir.

(Rólegheitakvöldið sem ég hélt ég ætti í vændum, eins og í byrjun pistilsins, er heldur betur að breytast, því bæði börnin eru vöknuð!!!)

Jólin
Jæja, þá gafst tími loksins til að setjast niður og lofa matnum að hjaðna aðeins. Og ekki veitir af eftir allt þetta át síðustu daga.  Hér er legið á meltunni dag eftir dag eftir yndisleg matarboð með fjölskyldu og vinum en matarboðunum er hvergi nærri lokið.

Okkar jólaboð standa nánast hvern einasta dag en á misjöfnum stöðum, svo það er alveg víst að enginn grennist á þessum tímum.  Ekki taka því sem svo að ég sé að kvarta, síður en svo, því það eru alveg sérstök forréttindi að geta fætt svo marga munna ár eftir ár, alveg sama hversu mikið maturinn hefur hækkað og alveg sama hversu margir bætast í fjölskylduna (ný börn, kærastar/ur) o.s.frv.

Og talandi um hversu dýrt er að halda jólaboðin hér á landi, þá var það þannig hjá okkur, bæði í Ameríku og svo Sikiley, að í hvert sinn sem haldin voru matarboð, þá komu allir með eitthvað með sér, sama hversu lítið það var, svo allir tóku þátt á einhvern hátt svo enginn einn stóð undir kostnaði á öllu saman.  Það fannst mér ferlega sniðugt, og líka svo gaman að hafa svo mikla fjölbreytni á veisluborðinu.  Alltaf eitthvað nýtt og framandi.

Veðrið hefur verið ferlega leiðinlegt nú í desember, en mér finnst þó búið að vera ansi jólalegt og pínu spennandi að hafa svona snjóbyli.  (Af því ég þarf ekki að vesenast úti á götu sjálf)

Minnir pínulítið á þegar ég sjálf var ung, því þá var yfirleitt “alvöru” vetrarveður, með tilheyrandi snjókomu, roki og frosti.

En nóg um veðrið..

Jólin hafa verið frábær í alla staði, allir ánægðir með gjafirnar sínar eftir þetta ótrúlega stóra pakkaflóð.  Húsið er nú í rúst því Ármann er að búa til minningar í ÖLLU húsinu!  Stofan hjá mér er allt í einu orðin flugvöllur fyrir Lego þyrluna, með tilheyrandi Legokubbum út um allt, gangurinn er hraðbraut fyrir bílana og auðvitað með tilheyrandi bílabrautum og þess háttar.  Sjónvarpsholið tilheyrir nú Herra og Frú kartöfluhaus og öllum þeim lausamunum sem fylgja með þeim og herbergið hans, oh jæja.. við skulum bara segja að mig minni að það sé parket á gólfinu hjá honum!  Og eins og þetta sé ekki nóg, þá er dótið hennar Alönnuh svona inn á mill þar sem autt pláss var!

Æ,Æ,Æ mig auma

Ég vona að þið kæru vinir hafið haft yndislegan tíma með fjölskyldum ykkar og vinum, því þetta er einmitt tíminn til að njóta og skapa minningar.

Læt fylgja nokkrar myndir frá okkar aðfangadag