Dottin í það

Kerfið, það er að segja ;)
Nú er mér sumsé óhætt að taka niður hjálminn, detta í ósaltaðri og ósandaðri hálkunni og mölbrjóta grýlukertið framan á andlitinu á mér!  Ég er nefnilega komin inn.  Inn í kerfið okkar góða sem er svo sanngjarnt og fer svo vel með okkur.  Það tók ekki nema 6 mánuði að detta inn og fá “alla” þá aðstoð sem ég á rétt á.
Ég hef borgað í kerfið “okkar” í 17 ár, flutti af landi brott í 6 ár,  kem heim (þvert á alla hina Íslendingafarana sem fluttir eru í burtu) og á engan rétt!  Kannski, ef ég hefði látið græða í mig PIP púða undir borðið, þá hefði ég líklega verið “golden”.

En ég er innundir og iðnaðarpúðalaus!

Categories: | 2 Ummæli

Post navigation

2 thoughts on “Dottin í það

  1. Liggðu bara í því eins lengu og þú getur. Það er ekki orðið mjög merkilegt kerfið okkar sem endalaust er verið að klípa af, en ekki viljum við þó vera án þess. Kær kveðja og góða helgi.

  2. Nei, það er rétt, myndi ekki vilja vera án þess, en er þó ekki sátt að borga fyrir annarra manna hégómagirni! Sérstaklega út af því að þó að ég hafi greitt í 17 ár, hefði ég ekki fengið neina aðstoð EF eitthvað alvarlegt hefði komið uppá á þessum 6 mánuðum! Það þykja mér ekki góð epli!

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Bloggaðu hjá WordPress.com. Theme: Adventure Journal by Contexture International.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 469 other followers