Ástin…

…já sem og væntumþykjan, kemur í mörgum myndum.  Við tölum oft um að við elskum kók, elskum gemsann okkar, eða elskum húsið sem við búum í.  Oftar en ekki eiga þessir hlutir ekkert sameiginlegt með orðinu ást.  Sama finnst mér um enska orðið “adopt” eða ættleiðing.
Ameríkanar nota það orð óspart og við hin ýmsu tækifæri.  Þegar maður keyrir um þjóðvegi landsins eða fylkjanna sér maður oft vegaskilti þar sem á stendur “adopt a highway” eða ættleiðum þjóðveginn og er meiningin þá að við eigum ekki að henda eða skilja eftir rusl á eða við þjóðveginn!
Kaninn auglýsir óspart “adopt a pet” eða ættleiðum gæludýr, en þá eiga þeir við dýr sem eru þá í umsjón ríkisins á hinum ýmsu stöðum þar sem fyrri eigendur hafa skilið þau eftir, og/eða að ættleiða dýrin frá þessum stöðum frekar en hjá ræktendum, því oft lifa þau aumingjans dýr við hrikalegar aðstæður allt sitt líf.

Ég hef heyrt frá fleiri en einum og fleiri en tveimur ættleiddum, sem nú eru fullorðinir einstaklingar, og þykir þeim þessi notkun á orðinu “adopt/ættleiðing” frekar sorgleg.  Þessum einstaklingum finnst ekki rétt að ættleiddir einstaklingar séu settir í sama flokk og dýr! svo ég tali nú ekki um þjóðveg!
Þetta er mikið tilfinningarmál hjá þeim og ekki laust við að þeim finnast þau vera eins og illa gerður hlutur sem fyrrverandi “eigendur” vildu losa sig við!

Á meðan ég var ólétt, heyrði ég oftar en einu sinni hvort mig langaði ekki að eiga barn sjálf, svo ég myndi kynnast því hvernig það er að eignast eigið barn!  Hvort ég væri ekki kvíðin fyrir að eiga barnið, því ég myndi líklega elska það barn meira en Ármann, af því að það barn yrði mitt eigið!  Hvort væri ekki gaman að eiga loksins mitt eigið barn!

Í ALVÖRU FÓLK!!!

Ég veit svo sem ekki hverning ég átti að svara þessu, því svona vitleysu er varla vert að svara.  Ég veit svosem vel að fólk spyr ekki þessara spurninga eða kemur með svona yfirlýsingar af illhug, heldur fáfræði. En samt, ef þau bara vissu hve þessar fáfræðilegu spurningar ristu djúpt og særðu í leiðinni!

Ég var spurð af því nú fyrir um 2 mánuðum hvort ég bæri öðruvísi tilfinningar til Ármanns heldur en Alönnuh!  og viðkomandi horfði beint í augun á mér og blikkaði ekki einu sinni!  Mér var orða vant, en spurði þó, því ég vissi að hann ætti börn, hvort hann elskaði annað barna sinna meira en hitt!  og eins og hann, starði ég í augu hans án þess að blikka og beið eftir svari.  Það var fátt um þau.

Það eina sem ég hræddist á meðgöngunni var hvort ég ætti til næga ást til að deila á annað barn, því ást mín á  litla stráknum mínum er svo mikil að ég var ekki viss um að hægt væri að elska annað barn jafn mikið!  En að sjálfsögðu fæðist sú ást bara með barninu um leið og það kemur.

Og fyrir þá sem vilja vita, þá er tilfinningin nákvæmlega sú sama þegar maður fær barnið sitt í hendur, hvort heldur maður fæðir sjálfur eður ei!  og ef þið hafið einhverjar spurningar, áhuga eða efasemdir, þá er ykkur velkomið að banka uppá, setjast niður með mér og fræðast.
 

Categories: | 17 Ummæli

Post navigation

17 thoughts on “Ástin…

  1. Hurru! Það er blogg og ég hef ekki litið hér inn svo mánuðum skiptir.
    Ég er alveg sammála þér með hvað orðið “adopt” er mikið notað og notað rangt. Og mér finnst þetta góður pistill hjá þér. Amen. Svanfríður.

  2. Nafnlaus

    Það er til margt skrítið í þessum heimi ;-)

    Ég las nú um daginn að foreldrar elska ekki börnin sín jafn mikið og samkvæm því er Olgeir Aron ekki í góðum málum, því að mamman elskar frumburðinn mest og pabbinn yngstu dótturinna.

    Þannig að börnin þín eru bara í góðum málum ;-) hehehehe

  3. Aumingja Olgeir ;) )) Æji, það er svo sorglegt þegar svona vitleysu er slengt framan í mann og maður er ekki alveg undirbúin einhvern veginn.
    Ég er alveg tilbúin að svara öllum þeim spurningum um allt ferlið og allt það, en þegar fólk fer að efast um að ég elski barnið mitt eða elski það minna eða öðruvísi heldur en systir hans, þá er mér allri lokið!

  4. Já ekki er öll vitleysan eins. Ég hef reyndar fengið svona spurningar líka og eru mín bæði tvö ættleidd, en þá var ég spurð hvort ekki væri munur á að fá annað 5 mánaða og hitt nærri 3ja ára og jú það er öðruvísi en kemur væntumþykju lítið við :)

    • já það eru ótrúlegir hlutir sem fólk lætur út úr sér og oft fólk sem þekkir mann ekki svo mikið einu sinni!

      • Nafnlaus

        Yndislegasta athugasemdin sem ég fékk var frá fullorðum manni sem ég var að vinna hjá og kom til að sýna honum Róbert, þegar hann kíkti í vagninn sagði hann hálf hissa, nú þetta er bara venjulegt barn. Þetta kom nú kannski eitthvað vitlaust út úr elsku kallinum ;) en ég gleymi þessu aldrei mér fannst þetta svo krúttlegt. Ég veit ekki við hverju hann bjóst við að ég væri með í vagninum.

  5. Maja.

    Hæ. Linda mín
    Haltu bara áfram að gera akkúrat það sem þú ert að gera nú þegar í uppeldinu því þar ertu að gera aldeilis góða hluti. sést á hvað börnin blómstra hjá þér. Ég verð að segja þér að ég vissi ekki að Ármann hefði ekki komið út úr ” maganum ” á þér hahahaha.

    Bestu kveðjur til ykkar allra.
    Maja.

  6. Mikið varð ég hissa að sjá að þú værir að blogga á nýjum stað, er margbúin að fara inná gamla bloggið þitt og hélt að þú værir alveg hætt. Enn þessi skrif þín eru mjög góð og greinilega þörf lesning fyrir suma. Ég upplifði þessa sömu tilfinningu og þú þegar ég eignaðist seinna barnið mitt eftir sjö ár með dóttur minni, hugsaði um hvort ég ætti næga ást fyrir seinna barnið þar sem hitt var búið að vera einkabarn svo lengi og ég elskaði hana svo mikið. En auðvitað kom elskan til barnsins um leið og það var fætt, ekkert mál að elska öll sín börn jafn mikið.

    • Jú Þórunn mín, eigum við ekki að segja að ég hafi verið í bloggpásu bara ;) en vildi þó aldrei eyða síðunni.
      Já, það er skrítin tilfinning að vita ekki hvort maður getur elskað bæði börnin sín jafn mikið, en auðvitað kemur það um leið og barnið er fætt.

  7. Það er ekki öll vitleysan eins Sigurveig ;)
    En auðvitað veit ég að fólk meinar ekkert illt, en verður þó að passa hvernig það orðar hlutina, eins og máltækið segir, “aðgát skal höfð í nærveru sálar”. Mér finnst það eiga svo vel við í þessu sambandi.

  8. Vilborg

    Skemmtileg skrif Linda og mikið hef ég saknað að lesa skrifin þín :) Ég verð að vera sammála þér því nú á ég bæði mín egin börn og stjúpbörn ég geri engan greinamun á hvor þeirra ég elska meira. Er bara hrikalega þakklát konunni sem gekk með stjúpbörnin mín og að fá að eiga hlutdeild í þeim :)

  9. Ekki annað hægt en að segja bara Amen Vilborg.. Það skiptir nefnilega ekki máli hvaðan börnin koma, það er bara svo einfalt! ;)

  10. Silja Dögg Gunnarsdóttir

    Sælar. Langt síðan ég hef lesið eftir þig bloggpistil. Þú ert lagin við að koma orða hlutina. Þó að maður viti oft að hlutir séu sagðir vegna fáfræði, þá særa þeir samt. Það gladdi mig að heyra að þið eigið nú tvö börn. Þvílík blessun og innilega til hamingju með þau bæði. Börnin koma til okkar eftir mismunandi leiðum. Ég trúi því að sálirnar rati til okkar og hver og ein á sér sérstakan tilgang. Það skiptir ekki neinu máli hvort maður gangi með barnið, ættleiði eða eignist stjúpbarn. Ástin er sú sama.

    • Takk takk Silja mín ;)
      Er algerlega sammála þér, börnin koma þegar þau eiga að koma og hvernig sem þau koma.

  11. Það er svo óendanlega mikið til af ást að enginn þarf að hafa áhyggjur af að eiga ekki nógu mikla ást til þess að börnin þeirra fái notið hennar. Það eru bara sumir einstaklingar með sjúkar sálir og þekkja ekki að ást á barninu sem er þitt barn þó það komi ekki úr þínum líkama, er jafn sterk og það eins mikið elskað og barnið sem er líffræðilega þitt. Ég á frænku sem á eitt barn frá Rúmeníu, annað frá Kína og svo eitt úr eigin líkama og aldrei hef ég séð að þau fái ekki öll notið sömu ástarinnar af foreldrum sínum. Njóttu elsku barnanna þinna þau eru bæði alveg dásamleg.
    Kær kveðja

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Bloggaðu hjá WordPress.com. Theme: Adventure Journal by Contexture International.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 469 other followers