Jæja, þá gafst tími loksins til að setjast niður og lofa matnum að hjaðna aðeins. Og ekki veitir af eftir allt þetta át síðustu daga. Hér er legið á meltunni dag eftir dag eftir yndisleg matarboð með fjölskyldu og vinum en matarboðunum er hvergi nærri lokið.
Okkar jólaboð standa nánast hvern einasta dag en á misjöfnum stöðum, svo það er alveg víst að enginn grennist á þessum tímum. Ekki taka því sem svo að ég sé að kvarta, síður en svo, því það eru alveg sérstök forréttindi að geta fætt svo marga munna ár eftir ár, alveg sama hversu mikið maturinn hefur hækkað og alveg sama hversu margir bætast í fjölskylduna (ný börn, kærastar/ur) o.s.frv.
Og talandi um hversu dýrt er að halda jólaboðin hér á landi, þá var það þannig hjá okkur, bæði í Ameríku og svo Sikiley, að í hvert sinn sem haldin voru matarboð, þá komu allir með eitthvað með sér, sama hversu lítið það var, svo allir tóku þátt á einhvern hátt svo enginn einn stóð undir kostnaði á öllu saman. Það fannst mér ferlega sniðugt, og líka svo gaman að hafa svo mikla fjölbreytni á veisluborðinu. Alltaf eitthvað nýtt og framandi.
Veðrið hefur verið ferlega leiðinlegt nú í desember, en mér finnst þó búið að vera ansi jólalegt og pínu spennandi að hafa svona snjóbyli. (Af því ég þarf ekki að vesenast úti á götu sjálf)
Minnir pínulítið á þegar ég sjálf var ung, því þá var yfirleitt “alvöru” vetrarveður, með tilheyrandi snjókomu, roki og frosti.
En nóg um veðrið..
Jólin hafa verið frábær í alla staði, allir ánægðir með gjafirnar sínar eftir þetta ótrúlega stóra pakkaflóð. Húsið er nú í rúst því Ármann er að búa til minningar í ÖLLU húsinu! Stofan hjá mér er allt í einu orðin flugvöllur fyrir Lego þyrluna, með tilheyrandi Legokubbum út um allt, gangurinn er hraðbraut fyrir bílana og auðvitað með tilheyrandi bílabrautum og þess háttar. Sjónvarpsholið tilheyrir nú Herra og Frú kartöfluhaus og öllum þeim lausamunum sem fylgja með þeim og herbergið hans, oh jæja.. við skulum bara segja að mig minni að það sé parket á gólfinu hjá honum! Og eins og þetta sé ekki nóg, þá er dótið hennar Alönnuh svona inn á mill þar sem autt pláss var!
Æ,Æ,Æ mig auma
Ég vona að þið kæru vinir hafið haft yndislegan tíma með fjölskyldum ykkar og vinum, því þetta er einmitt tíminn til að njóta og skapa minningar.
Læt fylgja nokkrar myndir frá okkar aðfangadag




Nýleg ummæli