Monthly Archives: desember 2011

Jólin

Jæja, þá gafst tími loksins til að setjast niður og lofa matnum að hjaðna aðeins. Og ekki veitir af eftir allt þetta át síðustu daga. Hér er legið á meltunni dag eftir dag eftir yndisleg matarboð með fjölskyldu og vinum en matarboðunum er hvergi nærri lokið. Okkar jólaboð standa nánast hvern einasta dag en á [...]

Categories: | Skrá ummæli

Gleðileg jól

Ég óska ykkur kæru vinir gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.  

Categories: | 1 ummæli

Til hins betra

Fyrir ekki svo margt löngu var ég svo fjarri því að vilja eiga fjölskyldu. Vildi engin börn og engan karlpening til að rústa framabrautinni. Ekki það að framabrautin hafi verið rósum stráð, heldur var það bara lögreglustarfið sem mér líkaði vel. Ég átti mína eigin íbúð, var í fínni vinnu að mér fannst, átti bíl [...]

Categories: | 3 Ummæli

Heima er best

Kvöldið er fallegt og aðeins jólastjörnurnar í gluggunum og kertaljós gefa mér smá týru til hrafla eitthvað niður á bloggið. En ég hef varla skrifað staf á bloggið síðan einhvern tíma árið 2009. Andinn gjörsamlega yfirgaf mig en virðist vera hægt og rólega að koma aftur. Ætla ekki að lofa daglegum skrifum en hef þó [...]

Categories: | 4 Ummæli

Jólasnjórinn

Það hefur heldur betur snjóað hér síðustu daga og er orðið svakalega jólalegt hvert sem litið er Undanfarin ár hefur verið um 20 stiga hiti og sól á jólunum svo hér er mikil gleði að fá “alvöru” jól þetta árið. Njótum aðventunnar saman!

Categories: | 2 Ummæli

Bloggaðu hjá WordPress.com. Theme: Adventure Journal by Contexture International.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 469 other followers