Af keitum og fleiru..

nóvember 17, 2008 at 11:05 am ()

Helgin var ofur róleg hjá okkur litlu fjölskyldunni.. Clarence kom heim á föstudagskvöldið og var þá búinn að vera í burtu í 2 vikur.. Hann var sendur af vinnunni til Napólí til að kenna.. Hann er núna orðinn kennari nokkurs konar..  Hann vinnur hjá NCIS og getur verið og er sendur hingað og þangað á hina ýmsu hervelli.. Hann er sumsé að kenna hermönnum hvernig á að varast hryðjuverkin og hvernig eigi að passa uppá öryggi hervallanna og þ.h.

Nú er í umræðunni að hann fari til Afríku í lok mars og verði þar í 6 vikur til að kenna heimamönnum  að verjast óvininn og hvernig eigi að loka landamærum með hervaldi..  Ég segi nú kannski ekki öllum heimamönnum, heldur hermönnum landsins.. Mér skilst að einn af skrifstofunni hafi farið einmitt til Afríku til að kenna sjálfsvörn og svoleiðis, og þegar hann bað hópinn að sýna sér hvernig þeir vörðust perónulegri árás, þá hafi þeir rifið upp kylfuna og sagst munu lúskra á viðkomandi til að koma honum í jörðina og svo skjóta hann ef hann svo mikið sem reyndi að standa upp aftur..  Kennarinn dró andann djúpt og signaði sig, trúði varla eigin eyrum og hugsaði hvernig væri hægt að kenna svona villimönnum að beita sjálfsvarnartökum án þess að reyna að drepa viðkomandi.. sérstaklega þar sem mannslíf eru ekki í hávegum höfð..

Við fórum út í búð og fundum og keyptum lambakjöt, loksins.. ég var búin að leita lengi að svoleiðis munaðarketi til að elda síðan við lentum..
Stuttu eftir að við komum hingað fórum við út í búð í mollinu til að leita einmitt af lambakjöti.. þar voru alls kyns smökkunarbásar með hinum ýmsa varningi, allt frá rauð/hvítvíni og ostum og niður í snakk og ólífur..  Ég leit vel í kringum mig til að reyna að sjá og finna hvort einhver talaði nokkuð ensku, og leist asskoti vel á eina konu, sem einmitt var með ostasmökkunarbás.. hún leit út eins og hún væri heimsvön kona og virkilega almennileg..  Nú, það vantaði ekki að hún var almennileg og sagðist tala ensku að nokkru leyti, en á MJÖG bjagaðri ensku.. Ég spurði hana hvar ég myndi finna lambakjöt, en hún virtist ekki skilja – svo ég greip í tjáningarmál rollunnar og sagði hátt og snjallt: Mmmeeeeeeeeee – og lék í leiðinni á táknmáli eins og ég væri að borða kjöt.. Hún var engu nær og bauð mér bara að smakka ost!!!!!! Græt að morgni sko..
Kannski var þetta kindaostur sem hún bauð mér – hver veit!!!
Svo er kannski ekki skrítið að eyjaskeggjar viti ekki hvað lamb eða kind er, því hér eru þessi yndislega bragðgóðu dýr dálítið öðruvísi en við eigum að venast..  Hér á Sikiley eru aðallega að finna blöndu af geitum og kindum.. uppá engilsaxnesku heitir þetta fyrirbæri “geep” – en það er orðið Sheep og Goat blandað saman.. Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar ég heyrði þetta fyrst og hló mig máttlausa.. Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að þýða þetta yfir á okkar ástkæra ylhýra.. kannski “gind” eða “keit” komist nokkuð nálæt því..

Ekki er hægt að segja að þessi dýr séu falleg og alls ekki krúttleg eins og kindurnar heima, því aumingjarnir líta hálf einkennilega út – eru með rolluhaus á líkama geitar..  Þau eru með dindil, ef að dindill skyldi kalla, þetta eru eiginlega frekar eins og skott því það er svo sítt að það dregst eftir götunni þegar þau ganga..  Eyrun lafa niður og sum dýrin eru á litinn eins og geitur.. Alveg furðuleg dýr, svolítið eins og í laginu hans Stebba Hilmars, “bera útlitið ekki með sér”..
Maðurinn á myndinni er fjárhirðir en það eru þó nokkuð margir hópar af keitum sem eru reknar út í haga á morgnana með jafnmörgum fjárhirðum, og svo er haldið heimleiðis í dagslok..

Svona er nú fjósalífið á Sikiley..

Ármann heldur áfram að reyna að tjá sig en þó ekki með orðum ennþá, en eins og sjá má á vídeóinu hér að neðan, þá eru orðin ekki langt undan.. Þau eru alveg að komast út úr munninum en það er aðallega þegar hann biður um að fá að horfa á Blues Clues.. (og já það er verið að hlusta á jólalög í vídeóinu) ;)

Farið vel með ykkur þar til næst..

16 Ummæli

  1. Hildur systir í DK sagði,

    Hann er bara sætastur … :)

  2. Linda sagði,

    Æ nó sys.. Líkur mömmu sinni.. ;)

  3. Kristín Ársælsdóttir sagði,

    Hann er algjört æði líkur frænku sinni

  4. Linda sagði,

    Já Kristín.. hann er alveg eins og frænka sín.. ;D

  5. Guðrún Ósk sagði,

    já einmitt hann er alveg eins og ég…..

  6. Silja sagði,

    Bara sætt, samband Líu og Ármanns. Það er svo æðislegt þegar börnin tengjast dýrunum á þennan hátt. Mitt gengi er svipað; þegar Skuggi er skammaður þá fer Ástrós alveg í mínu og öfugt. Passa hvort annað og hafa samúð með hvort öðru.

  7. Guðbjörg sagði,

    Gaman að sjá hvað þú ert orðin dugleg að skrifa aftur. Drengurinn þinn er yndislegur kútur.
    Kv.
    Guðbjörg

  8. Svanfríður sagði,

    Það er frábært að geta smellt á LINDA Á SIKILEY og upp kemur pistill:) Ármann er svo fallegur og yndislegt að fá að fylgjast með honum á myndum eða videoi. Hann verður farinn að spjalla áður en langt um líður..:)

  9. Guðrún sagði,

    Blessuð,
    Kem af Svanfríðar bloggi þar sem ég sá link á Lindu á Sikiley. Gaman að sjá myndir af stráknum þínum fallega og sjá skrif hér aftur og lesa um lífið á Sikileyjum !

    Kaldar kveðjur frá Þýskalandi – Guðrún

  10. Særún sagði,

    Hann er sætastuur í heimi ;D
    Sakna ykkur ótrúlega mikið vona að ég komi til ykkar í heimsókn næsta sumar ;D
    KV . Særún Sif

  11. Ragna sagði,

    Furðulegar kindur en FLOTTUR Ármann.
    Knús til ykkar.

  12. afi sagði,

    Þr eru dálítið kindarlegar þessar skepnur. En Ármann er mesti myndar piltur.

  13. Heiða Rafnsdóttir sagði,

    Ooohhh var ýkt ánægð með þig að vera byrjuð að skrifa aftur,,,
    Drengurinn er nottla bara flottastur ;-)

    Kveðja Heiða og strumparnir… ;-)

  14. Heiða Rafnsdóttir sagði,

    um að gera að senda nógu margar kveðjur með og án stafsettningar villum… hehehehe

  15. Guðrún sagði,

    Heyrðu ég skelli þér á Blogglistan !! Takk fyrir addið !

    Kuldakveðjur …. brrrrr

  16. Þórunn sagði,

    Sæl Linda mín, mikið er gaman að sjá að þú ert farin að skrifa aftur og það var bara ómögulegt að fá ekki að sjá hvað væri í gangi hjá Ármanni og Líu. Dásamlegt að sjá hvað hann braggast vel og er yndislegt barn.
    Þessar keitur eru undarleg dýr, allt er nú til. En mikið er hún nágrannakona þín heppin að eiga svona hugulsamt fólk í kringum sig og gott að heyra að hún náði sér.
    Kær kveðja,
    Þórunn

Rita ummæli