Öpdeit..

Mikið rosalega er ég komin í skemmtilegt hlutverk.. Allur þessi tími, öll þessi bið í alla þessa mánuði, vikur og daga, hefur svo sannarlega verið biðinnar virði.. Hverra sekúndu virði..  Og nú þegar við erum komin með hann í öryggið heim finnst mér skrítið að hafa einhvern tíma efast um að hann kæmi heim, því hann passar svo fullkomlega inn í heimilislífið hjá okkur.. Hér hefði hann alltaf átt að vera..

Nú erum við búin að vera heima í rétt tæpar 2 vikur og hefur aðlögunin gengið vonum framar.  Þessi litli drengur hefur sterkan og ferlega skemmtilegan persónuleika og er virkilega gaman að sjá hversu mikið hann hefur breyst á þessum nokkru dögum síðan við komum heim.  Því það eru engir 2 dagar eins.
Hann hefur verið dálítill mömmustrákur og hef ég þurft að hafa hann á handlegg meira en kannski eðlilegt þykir, en það hefur lagast mikið síðustu daga.  Hann er nú farinn að leika sér sjálfur og klípa Líu ef hún er of nálægt og án þess að ég sé í sjónmáli.  En það er mikil framför frá því í byrjun, því ég hef þurft að vera gjörsamlega föst við handlegginn á honum, eða ekki mátt vera lengra frá en svo að hann geti snert mig með því að teygja sig í mig.  Meira að segja, bara að setja hann niður til að fara á klósettið kostaði sáran grátur.  En nú er allt að verða betra og hann orðinn mikið öruggari.
Við vorum nú svosem viðbúin að þessi aðlögun fyrir litla kroppinn tæki dálítinn tíma, svo það er aðallega þess vegna sem ég hef ekki verið mikið á netinu undanfarið, heldur hef ég helgað tíma mínum í að vera honum innan handar, verið að leika við hann og sýnt honum hvern krók og kima í húsinu á meðan hann er vakandi.  Við höfum farið í göngutúra og bíltúra, því hann hafði aldrei setið í barnabílstól fyrr en hann kom hingað til Bandaríkjanna, svo það þurfti að venja hann við það og að sitja ólaður niður í kerrunni á göngutúrunum.

Það er búið að vera ansi mikið að gera síðan við komum heim, hann er búinn að fara í heimsókn til læknis og fá sprautur, búið að taka úr honum blóð, fara í klippingu, búinn að halda upp á 1. árs afmælið og hitta fullt af fólki á hinum ýmsu skrifstofum sem við höfum þurft að heimsækja.. Allt gekk þetta vel, nema blóðtakan, þá öskraði hann úr sér lungu og lifur og þurfti 4 manneskjur til að halda honum niðri.  Hann gjörsamlega trylltist barnið og öskraði mamma, mamma.. Það var erfitt og runnu niður nokkur tár frá þeirri hjálparlausu sem gat ekki einu sinni horft á barnið sitt kveljast.

Það sem mest hefur komið á óvart á þessum 2 vikum, er að Lía, stóra systir, hefur tekið hann undir sinn verndarvæng og tekur hlutverk sitt alveg virkilega alvarlega.
í þau 3 ár sem síðan við fengum hana, hefur hún alltaf sofið upp í rúmi hjá okkur, og það þýddi ekkert að banna henni að koma uppí, því þá beið hún bara þar til við vorum sofnuð og stökk þá upp og lét lítið fara fyrir sér.  Nú sefur hún í sínu rúmi við hliðina á rúmi Ármanns og sefur þar alla nóttina og þegar hann tekur lúrana sína.. og meira að segja á kvöldin þegar hann er farinn uppí, þá hleypur hún upp á ca. hálf tíma fresti til að athuga með hann..  lygilegt alveg hreint.
Okkur Clarence finnst alveg yndislegt að fá að sofa alein í hjónarúminu eftir að hafa deilt því með hundi í 3 ár.. og svo skrítið að vakna ekki við hroturnar í henni alveg við eyrun á manni, finna spark í kviðinn, klær í bakinu eða þegar skottið litla vaknar og vill fara á annan stað, þá er það ekki bara ein löpp sem stígur á mann, heldur allar 4 og það er allt annað en gaman að vakna svoleiðis.

Ég reyndi að setja þetta vídeó inn á síðuna þegar við vorum í Guatemala, en það gekk ekki upp, en mig hefur langað til að deila því með ykkur.. þetta var tekið annað kvöldið okkar þar úti og litli Ármann var alveg í ferlega góðu skapi..

Vona að þið njótið þar til næst og eins og alltaf, takk takk takk fyrir allar heimsóknirnar og kveðjurnar sem þið skiljið eftir..

P.s. setti líka inn fleiri myndir..

26 Ummæli

  1. Birta Rós sagði,

    apríl 10, 2008 kl. 4:07 am

    Yndislegt myndband. Ég sé að “húsbandið” er alveg komin í pabbagírinn.

    Svo sætt. Ég hef heyrt af svipaðri hegðun dýra, þegar lítið barn kemur til sögunnar, og finnst það alltaf jafn merkilegt. Hún (Lía) er greinilega vel upp alin. ;)

    Nú fer ég í það að skoða myndirnar.

    Hamingjuknús til ykkar,
    B

  2. Heiða Reed sagði,

    apríl 10, 2008 kl. 5:18 am

    Elsku LInda mín,

    Innilega til hamingju með sonin ykkar aftur! Knús knús og kossar bara frá Texas. Mér finst alveg fyndið að ég hef aldrei séð þig í persónu en mér finst ég þekkja þig bara af þessari síðu þinni. Mér finst þú frábær að skrifa um hvernig þetta hefur verið hjá ykkur og bara bloggið þitt er ótrúlega einlægt og alltaf gaman að lesa það sem þú skrifar, eða kanski ekki alltaf gaman þegar maður hefur komið og séð þig hafa áhyggjur af litla manninum þínum. En allt er gott sem endar vel og í þínu tilfelli gat þetta ekki hafa fengið betri endir! Eða byrjun á nýjum kafla. Sonur ykkar er ekkert smá mikill kroppur. Ég vona þú verðir áfram dugleg að skrifa þegar þú ert búin að ná þér að vera komin með litla kroppin þinn heim.

    Kveðja Frá Texas,

    Heiða Reed

  3. Svanfríður sagði,

    apríl 10, 2008 kl. 5:35 am

    hæhæhæhæ elsku besti Lindulíusinn minn. Það var yndislegt að heyra frá þér í gær, ég var búin að sakna raddar þinnar. Svo var líka frábært að heyra í Ármanni í bakgrunninum. Vonandi hittumst við áður en haustið heilsar.
    Yndislegt myndband, ég á eftir að horfa á það aftur. Ég skoða myndirnar þegar ég kem heim og svo eitt til viðbótar; til hamingju með afmælið elsku Ármann minn. Ég hugsaði til þín og söng fyrir þig í huganum. Þú ert svo yndislegur :)
    Kveðjur Svanfríður og co.

  4. Guðrún H. sagði,

    apríl 10, 2008 kl. 6:10 am

    Hæ hó Linda og co
    Gaman að það gengur svona vel í nýja hlutverkinu, ekki að ég hafi eitthvað efast um ykkur skötuhjúin sko…. Lía tekur hlutverkið semsagt alvarlega að vera stóra systir, hlýtur að vera munur fyrir ykkur að fá að hafa rúmið loksins ein…. kannast við það að vakna með loppur í andlitinu og háværar hrotur þar sem Ronja er eini fjölskyldumeðlimurinn sem hrýtur :) Skoðaði myndbandið og men hvað krakkinn er með smitandi hlátur.. bara sætastur :) Hringi í þig fljótlega skvís….
    Kossar og knús úr Sandgerði
    Guðrún, Elín og Ronja…………….

  5. Ingibjörg sagði,

    apríl 10, 2008 kl. 8:37 am

    Hehe, ég ólst upp með hundi sem var 1 áru eldri en ég, skammast mín ekkert fyrir að tala um hann sem fóstbróður minn því hann passaði mig og lék við mig þegar enginn annar nennti því! :-)

    Til hamingju með 1 árs afmælið Ármann!

  6. Silja Dögg sagði,

    apríl 10, 2008 kl. 9:22 am

    Hæ Linda mín og til hamingu með afmælið og allt hitt! Hann er svo mikill snúlli. Ekkert smá hress náungi. Frábært hvað Lía stendur sig vel. Skuggi minn er líka voðalega góður við Ástrós, þolinmóður stóri bróðir en stundum er svolítið erfitt að halda aftur af afbrýðiseminni…Treður sér stundum á milli þegar maður er að leika við Ástrós og svona… Þetta er bara sætt og frábært að sjá hvernig blessuð dýrin taka við litlu englunum.
    Ég heyri að þú ert alveg að fíla þig í nýja hlutverkinu; stærsta og besta hlutverki í heimi - að vera mamma :-D Þvílík forréttindi. Það verður gaman að skoða fleiri myndir þegar þar að kemur.

  7. Guðlaug Hestnes sagði,

    apríl 10, 2008 kl. 10:55 am

    Til hamingju með litla Ármann og gangi ykkur allt í haginn í foreldrahlutverkinu. Kær kveðja

  8. Heiða sagði,

    apríl 10, 2008 kl. 3:08 pm

    Vá hvað ég er búin að bíða eftir færslu frá þér en var búin að heyra af ykkur frá systrum þínum og mömmu… ;-) ein voða sjálfselsk hehehe ;-) En frábært að allt er að falla í eðlilegt horf og þetta á bara eftir að vera skemmtilegra ;-) Til lukku með afmmælið litli kútur ;-) Kossar og knús frá klakanm Heiða, Balli og Alexander Breki ….

    Bara fyndið myndband heheheh

  9. Þórunn sagði,

    apríl 10, 2008 kl. 5:54 pm

    Sæl og blessuð Linda mín, ég er búin að bíða ofurspennt eftir að heyra frá þér, mikið er gott að heyra hvað allt gengur vel. Það var auðvitað hárrétt hjá þér að hugsa fyrst og fremst um Ármann þessar fyrstu vikur, það var honum örugglega fyrir bestu. Svo tekur bara tíma að komast inn í mömmu hlutverkið. Það er ótrúlegt hvað heimasætan tekur drengnum vel, það er örugglega gaman að sjá þau saman. Hamingjuóskir í tilefni afmælisins og nýja lífsins ykkar.
    Kær kveðja
    Þórunn

  10. Guðrún Ósk sagði,

    apríl 10, 2008 kl. 6:05 pm

    Hæhæ elsku systir og til hamingju með 1 afmælisveisluna….hehhehe

    Ég verð nú að segja að ég hefði nú vilja koma puttunum mínum í hárið á litla frænda……

    Kveðja Guðrún litla sys og besta frænka…… :)

  11. afi sagði,

    apríl 12, 2008 kl. 4:25 pm

    Innilegar hamingjuóskir. Þetta er hreint æðislegt. Framvegis verður enginn dagur eins.

  12. Ragna sagði,

    apríl 12, 2008 kl. 5:51 pm

    Mikið er gott hvað allt gengur vel hjá ykkur og einstakt hvað Lía tekur honum Ármanni vel. Ég hef oftar heyrt um afbrýðisemi hjá hundum þegar barn kemur á heimilið. Það var gaman að skoða myndbandið og myndirnar.
    Ég óska Ármanni til hamingju með afmælið og nýja lífið sitt hjá ykkur.
    Kær kveðja

  13. mercury1 sagði,

    apríl 13, 2008 kl. 7:01 am

    Til hamingju með að vera loksins komin heim með litla snúð, og afmæliskveðjur til hans. Hann er alveg yndislegur strákur.
    Kveðja Sigurveig

  14. Gúnna sagði,

    apríl 13, 2008 kl. 8:56 pm

    Til hamingju með 1. árs afmælið - já og heimkomuna og bara
    ALLT. Það er sniðugt með hundana. Ég átti litla tík, sem var búin að vera á heimilinu í nokkur ár þegar frumburðurinn fæddist. Hún varð rosalega abbó - en svo var hún algjör varðhundur og passaði uppá barnið, td. ef einhver ókunnugur kom inn á heimilið.
    Auðvitað tekurðu allan þinn tíma í að sinna lille mann og venja þig við nýja heimilishaldið. Netið er sko ekkert að gera kröfur til þín - það bíður bara og allir skilja það mæta vel. Gangi ykkur allt í haginn og enn og aftur til hamingju með þetta allt Linda mín. Knús til þín og þinna.

  15. Venný sagði,

    apríl 14, 2008 kl. 7:52 am

    Til lukku !!

  16. Gurrý sagði,

    apríl 16, 2008 kl. 6:25 pm

    Til hamingju elsku Linda og fjölskylda, mikið er ég fegin að allt gekk vel og barnið ykkar er kominn heim. Ég óska ykkur alls hins besta og mikið var gaman að heyra hvað heimasætan er dugleg að passa.

  17. Drifa Maríusdóttir sagði,

    apríl 18, 2008 kl. 5:16 am

    Elsku Linda og family, ynnilega til hamingju með litla prinsin ykkar mikið er gaman að heyra að allt gangi svona vel með hann. Það var Venny sem sagði mer fréttirnar og gaf mer slóðan svo ég gæti fylgst með. Frábært, svo kom mamma þin til Sýsló og sagði mér að hún væri að far til ykkar í heimsókn og að þið færuð svo til ITALY. Til lukku með þetta allt saman og líka litla frændan, Kristín og Tryggvi eru þvílíkt dugleg. Bestu kv Drífa. p.s. ég ver líka að monta mig fékk litla Drífu 7. feb ,3 barnið hjá Magga mínum.

  18. Silja Dögg sagði,

    apríl 18, 2008 kl. 5:30 am

    Ég var að vona að það væri komin önnur færsla…en auðvitað vella þær nú ekki inn þessar vikurnar; þú hefur víst nóg annað að gera ;-) Finnst þér ekki frábært að sjá dótið hans út um allt…vakna með honum á morgnana..finna lyktina….æ, já, bara allt… Yndislegt að skoða myndirnar af ykkur. Þvílík hamingja. Þetta er svo sannarlega ljónheppinn lítill maður að fá svona góða foreldra.

  19. Daði Þorkelsson sagði,

    apríl 29, 2008 kl. 6:27 pm

    Innilega til hamingju, frábært. Besta hlutverk sem þú færð nokkurn tíman. kv. Daði

  20. Heiða Rafnsdóttir sagði,

    maí 5, 2008 kl. 10:42 am

    Guðrún lét mig vita að það væru komnar nýjar myndir.. ;-) Hann er bara æðislegur ;-) Kveðja Heiða og co

  21. Guðrún sagði,

    maí 11, 2008 kl. 11:15 pm

    Hæ,
    Gaman að heyra hvað allt gengur vel og þetta er greinilega algjör gullmoli !

    Happy Mother´s Day*

    Guðrún-FL

  22. Guðbjörg frænka sagði,

    maí 14, 2008 kl. 5:42 am

    Á ekkert að fara að skrifa meira? Hér bíða allir spenntir eftir fleiri myndum og fréttum?

    Knús til ykkar allra
    Gugga frænka forvitna.

  23. Guðlaug Hestnes sagði,

    maí 14, 2008 kl. 8:12 pm

    Mig langar svo að vita hvernig gengur. Hvernig gengur???

  24. guðbjörg sagði,

    maí 22, 2008 kl. 5:29 pm

    Loksins loksins!!!!! Nýjar myndir, þú veist ekki hvað ég er búin að gá oft!
    Hann verður bara fallegri og fallegri, litli frændakúturinn minn.
    Hlakka svoooooooooo til að sjá ykkur í sumar.
    Risaknús, kossar og kreistur.
    Guðbjörg

  25. Ragna sagði,

    maí 27, 2008 kl. 4:20 pm

    Ég var að skoða nýju myndirnar ykkar og þær segja meira en mörg orð.
    Kær kveðja Linda mín og líði ykkur öllum vel.

  26. Finical sagði,

    júní 24, 2008 kl. 5:42 am

    Somehow i missed the point. Probably lost in translation :) Anyway … nice blog to visit.

    cheers, Finical!!

Rita ummæli