Kveðjur frá Guatemala
Hæ og halló allir saman..
Dagurinn sem við héldum að við myndum aldrei fá að upplifa, kom loksins..
Við lentum hér á mánudaginn síðasta og fengum litla Ármann Aaron í hendurnar um 5 leytið sama dag.. Ef einhvern tíma hefur verið erfitt að halda aftur af tilfinningum sínum þá var það á þessum tímapunkti.. Þetta var hræðilega erfið stund, og táraflóðið sem rann niður kinnar okkar allra hefði verið nóg til að búa til nýtt haf.. Ekki nóg með að fósturmamman, ég, Clarence og litli Ármann höfðum grátið úr okkur augun, heldur táraðist Clarisse, aðstoðarstúlka lögfræðingsins, líka.. Þvílík og önnur eins mixtúra af tilfinningum..
Fyrsta nóttin var pínu erfið fyrir litla kroppinn.. hann svaf ekki nógu vel, enda í glænýju umhverfi, öðruvísi hávaði, önnur lykt og til að toppa allt, fólk sem hann þekkir ekki neitt og talar furðulega.. En næsta dag var eins og við hefðum alltaf haft hann hjá okkur.. ekkert mál að gefa honum að borða, fá hann til að hlægja, svæfa hann og klæða.. hann hatar baðið eins og pestina eins að láta skipta um bleyjur..
Annars er þessi litli kroppur ofsalega fjörugur og kátur, og alltaf stutt í fallega brosið hans svo skín í allar tennurnar.
Á föstudaginn vorum við boðin í heimsókn til Jorgelinu fósturmömmunnar.. Við mættum í bleika, fallega húsið hennar, en hún hafði bakað fyrir Ármann litla afmælisköku þar sem hann verður 1. árs eftir nokkra daga. Þar hittum við José litla, vin hans Ármanns sem er einnig í fóstri hjá Jorgelinu. Það voru miklir fagnaðarfundir þegar við mættum á heimili hennar, José litli spriklaði öllum öngum út um allt og Ármann litli gaf honum risabros og kleip hann svo í nefið svo úr varð argandi öskur og væl.. En José náði að hefna sín áður en við fórum, því eftir að Ármann hafði sofnað í fanginu á mér, fór ég með hann í rúmið í gamla herbergið hans, þar sem José átti að vera sofandi (þeir sofa í sama rúmi), og þegar ég var rétt búin að setja hann niður með pelann í munninum og var að snúa mér við, sé ég hvar litli José rífur sig upp, tekur pelann út úr munninum á Ármanni og hendir honum í andlitið á honum.. Það var nú ekki annað en hægt að hlægja þó Ármann hafi grenjað úr sér augun.. Svo hann var ekki langur þessi lúrinn..
Heima hjá Jorgelinu var einnig Annabella, dóttir Jorgelinu, en hún býr á hæðinni fyrir ofan.. Sú er að fóstra börn líka og er með 2 stúlkur.. Þær tala hvorugar stakt orð í ensku, hvað þá íslensku, svo við fengum með okkur mann héðan af hótelinu til að vera bílstjóri okkar og túlkur í leiðinni.. Allt gekk þetta glimrandi vel þó nokkur tár hafi fallið.. en við erum boðin aftur í kvöldmat á miðvikudagskvöldið, en það er síðasta kvöld okkar hér í Guatemala..
Leyf mér nú að segja ykkur svolítið,
hér í Guatemala eru nánast engin umferðarlög.. það eru örfá umferðarskilti sem eru virt að vettugi af vel flestum ökumönnum, og lögreglunni meðtalið.. hér eru engin hraðatakmörk og því keyrir fólk eins hratt og það vill og meira að segja á þessum pínulitlu hliðargötum.. ef maður er að reyna að fara yfir götu hér í nágrenninu á maður fótum sínum fjör að launa, það er annað hvort að maður bíði þar til enginn bíll er sjáanlegur og hleypur þá yfir eða taka áhættuna á að vera nógu snöggur..
Barnabílstólar virðast ekki þekkjast hér í landi og ekki heldur að fólk sé með á sér bílbelti.. Það var því frekar hrædd nýbökuð móðir sem sat í aftursæti litlu Hondu bifreiðarinnar með litla ungann sinn þegar við þeyttumst um götur borgarinnar á leið í heimsókn til fósturmóðurinnar..
Guatemalaborg er skipt í 23 “Zone”.. Hótelið okkar er t.d. í zone nr. 10 og er það talið vera frekar gott hverfi að mati innfæddra.. Jorgelina, fósturmamman, býr í zone nr. 7 og er um 30 mínútna akstur í bleika húsið hennar.. Á leiðinni ókum við í gegnum nokkur zone, og alltaf þegar við komum inn í nýtt, lét bílstjórinn okkur vita hvaða zone við værum í.. Zone nr. 1 er talið eitt það versta í borginni og það hættulegasta.. þar eru mörg gengi og dóp og vopn í ofanálag. Enda skalf ég á beinunum að keyra þar í gegn.. Ekki mjög álitlegt.. húsin eða réttara sagt kofarnir sem fólk býr í var svo hrörlegt að ég myndi ekki einu sinni bjóða hundi að sofa þar inni.. konur klæddar í litríkar mussur, héldu í hendur barna sinna og voru með stórar körfur fullar af hinum ýmsa varningi ofan á höfðinu.. hundar voru ekkert nema beinin og feldur og sá ég sparkað í þá nokkra þar sem þeir voru að sníkja mat eða vatn að drekka á markaðinum sem við ókum í gegnum.. Alveg hræðileg hörmungarsjón að aka þarna í gegn.. Og meira að segja sagði bílstjórinn að, fyrir nokkrum mánuðum hafi hann ekið fjölskyldu að heimili í zone 1, sem var að ættleiða og vildi kíkja í heimsókn til fósturforeldra barn síns.. Hann þorði ekki að fara einn með foreldrunum svo hann tók með sér 2 vini sína og voru þeir allir vopnaðir skammbyssum..
Í Guatemalaborg eru heldur engin byssulög.. hver sem er getur labbað um stræti og torg með haglabyssu utan á sér, eða skammbyssu, eða jafnvel bæði.. Enda er ekki laust við að maður sé frekar skelfdur að fá sér göngutúra um nágrennið.. Hvert sem maður fer eru öryggisverðir vopnaðir haglabyssum og skammbyssum.. Meira að segja bara að fara á McDonald’s, þar er öryggisvörður á vakt sem opnar fyrir mann hurðina og hleypir manni inn.. Allar búðir, veitingastaðir og mörg heimili eru með öryggisverði á vakt.. mjög skrítið að sjá þetta allt saman og manni verður frekar um að sjá byssurnar dyngla á öxlunum á þeim og vita ekkert hvað þarf lítið til, til að þeir skjóti á mann.. svo það liggur við að maður haldi inni í sér andanum í öðru hverju skrefi, því maður þorir ekki fyrir sitt litla líf að horfa þessa menn í augun..
Svo í gærkveldi, sátum við hjónakornin með soninn úti á svölum og hlustuðum á fuglalífið í borginni, en það er eins og að vera í frumskógi að hlusta á alla þessa fuglaflóru, að við heyrum byssuskot í götunni fyrir neðan okkur.. það sem að okkur brá, held við höfum talið 15 skot, þegar ég stökk inn í herbergið og tók soninn með, en Clarence forvitni leit yfir handriðið til að sjá hvort einhver hefði legið í valnum.. Ég var mest hrædd um að EF að einhver hefði verið myrtur og þeir sem skutu myndu sjá okkur, að þá værum við samasem dauð.. Get sagt ykkur að ég hélt að hjartað myndi poppa út úr brjóstinu á mér.. DÍSUSKRÆST..
Svona er það nú og nóg um það..
Hér er þrátt fyrir allt gott að vera, fólk vill allt fyrir mann gera og er kurteisin uppmáluð.. Okkur líður vel með litla drenginn okkar í faðminum og trúum vart að við erum búin að fá hann í hendurnar að eilífu.. Hér er heitt á daginn og mikill raki en kvöldin eru örlítið svalari.. en ég er of hrædd að fara út í göngutúr á kvöldin, þó að þetta zone sé talið eitt það besta í borginni..
Morgundagurinn er spennandi, þá ætlum við að fara út úr borginni og heimsækja bæ sem heitir Antigua, en þar er víst ofsalega fallegt og túristar eru taldi öruggir þar.. Þriðjudagurinn fer í heimsókn til sendiráðsins þar sem tekið verður viðtal við okkur og svo á miðvikudaginn eigum við að sækja áritunina í vegabréfið.. svo er bara komið að heimför, en við fljúgum heim á fimmtudag.. Öll fjölskyldan..

Ég óska ykkur Gleðilegra Páska kæru vinir og segi “Adios amigos” þar til næst..
Ó, gleymdi einu, hér eru fleiri myndir ef þið hafið áhuga..



Hildur sagði,
mars 23, 2008 kl. 7:00 pm
Hæhæ.. æðislegar myndir af ykkur …
Þórunn sagði,
mars 23, 2008 kl. 7:21 pm
Gleðilega páska og innilega til hamingju með soninn, frásögnin er svo hjartnæm að maður fær hjartslátt og vöknar um augun. Myndirnar eru alveg yndislegar, góða ferð heim, Þórunn
Inga Valdís sagði,
mars 23, 2008 kl. 7:24 pm
Hæ ! Þetta er alveg yndislegt, innilega til hamingju með Ármann
Ég sýndi Grími mínum myndina af litla snáðanum ykkar og finnst honum hann vera algjört krútt, Þetta eru frábærar myndir af ykkur og yndislegt að sjá ykkur öll saman.
LUV
Inga, Jens og Grúmur Siegfried grallari…hihi
*valkyrjan* sagði,
mars 23, 2008 kl. 8:37 pm
Innilega til hamingju að vera búin að fá strákinn ykkar, yndislegt ! Sammála Þórunni hér að ofan, manni vöknar um augun við lesturinn.
Páskakveðjur frá USA*
Guðrún
Svanfríður sagði,
mars 24, 2008 kl. 12:12 am
Ohh, yndislegt. FRÉTTIR. Til hamingju og þúsund kossar og knús. Loksins loksins. Ég sat og brosti hringinn við lesturinn. Ég hlakka til að heyra í þér

Gangi ykkur allt í haginn það sem eftir lifir ferðar og á leiðinni heim. Kysstu þá feðga frá okkur hér.
Svanfríður sem hringir eftir mánuð
Ragna sagði,
mars 24, 2008 kl. 5:49 am
Innilega til hamingju Linda mín, mikið samgleðst ég ykkur. Það var svo gaman að skoða myndirnar og lesa frásögnina þína. Mikið verður gaman hjá ykkur þegar þið komið öll saman heim.
Líði ykkur vel og skilaðu góðri kveðju til strákanna þinna.
Júlía sagði,
mars 24, 2008 kl. 7:33 am
Vááááá…..ég er eins og aumingi með tár í augum að skoða myndirnar af þessum yndislega fallega litla strák sem þið eigið. Hjartanlega til hamingju með hvort annað öll þrjú og gangi ykkur sem best. Hlakka til að fylgjast með ykkur í framtíðinni.
Bestu kveðjur úr Keflavík, Júlía
Guðbjörg sagði,
mars 24, 2008 kl. 10:13 am
Halló elskurnar minar og til hamingju með þetta allt saman. Hann er yndislegur drengurinn og við hér i Mosó sendum ykkur bestu kveðjur og bíðum spennt eftir að fá að sjá ykkur “live”.
Knús og kveðjur
Guðbjörg
Heiða Rafnsdóttir sagði,
mars 24, 2008 kl. 11:07 am
Váá þetta er bara æðislegt..
Ekkert smá gaman að skoða myndirnar af ykkur öllum, ekkert smá mikil hamingja.. hehehe
Góða ferð heim og gangi ykkur öllum vel…
Kveðja Heiða, Balli og Alexander Breki
maría erla sagði,
mars 24, 2008 kl. 6:53 pm
Vá Linda!!!!! Ég get ekki byrjað að ímynda mér hvernig þetta hefur verið - þvílík hamingja
Innilega til hamingju öll þrjú bara hehe hlakka til að sjá fleiri myndir, æðislegt að skoða þessar - hann er ekkert smá sætur
góða ferð heim og gangi ykkur ótrúlega vel sæta mín
hlakka til að heyra meira - innilega til hamingju mammacita
ellipe sagði,
mars 24, 2008 kl. 7:02 pm
Innilega til hamingju
Kveðja frá Birkiteignum
Inga sagði,
mars 25, 2008 kl. 12:18 am
Góða ferð heim og innilega til hamingju með að vera loksins komin með litla gullmolann í fangið.
Knús
Inga og Niklas
Hanna og Gummi sagði,
mars 25, 2008 kl. 6:32 am
Elsku Linda mín og Clarence. Þetta eru æðislegustu fréttir sem hægt var að fá. Vá hvað ég hlakka til að sjá ykkur í sumar. Yndislega fallega fjölskylda! Innilega til hamingju með þetta allt saman.
Kossar og knús
Ykkar Hanna ,Gummi og börn
Vilborg gamla sagði,
mars 25, 2008 kl. 10:55 am
Hæ elsku fallega fjölskylda, yndislegar myndir ég samgleðst ykkur svo innilega!! Ætla að fara að þurka tárin haha, kíki fljótt aftur,
kær kveðja Vilborg.
Thelma Björgvinsd.(gömul vinkona Guðrúnar) sagði,
mars 25, 2008 kl. 1:26 pm
Hjartanlegar hamingjuóskir
Hann er auðvitað algjör gullmoli!!! Gangi ykkur vel í foreldrahlutverkinu og góða ferð heim.
Thelma
Guðrún Ósk sagði,
mars 25, 2008 kl. 3:39 pm
Hann er bara fallegastur þessi prins hlakka til að heyra í ykkur þegar þið komið heim og get ekki beðið eftir að þið komið í sumar svo maður geti nú knúsað hann endalaust og smakka aðeins á honum…..
Góða ferð heim
Guðrún, Bjössi, Ársæll og María Rós
Agnes, Helga og Bagga í DK sagði,
mars 25, 2008 kl. 3:56 pm
Hæhæ Linda og Clarens. Innilega til hamingju með fallega soninn ykkar, okkur finnst hann algjört æði og nafnið passar mjög vel við hann, þar sem hann er svona dökkur í yfirlitum eins og pabbi/afi okkar.
Hlökkum mikið til að hitta litla gullmolann ykkar í sumar…..
Knús og kossar frá Danmörku, stórfrænkurnar Agnes, Helga og Bagga
Birta Rós sagði,
mars 25, 2008 kl. 7:28 pm
Stórkostlegt. Algerlega stórkostlegt.
Frábærar myndir. Hann er gullfallegur drengurinn.
Kv,
B
Guðlaug Hestnes sagði,
mars 26, 2008 kl. 9:53 am
Kæru vinir, innilega til hamingju og gangi ykkur vel heim. Þið eruð búin að bjarga litlu barni og það er ekki lítið. Kær kveðja, og hlakka til að fylgjast með áframhaldinu.
Venný sagði,
mars 26, 2008 kl. 4:09 pm
Mömmuhjartað í mér tók kipp þegar ég las skrifin þín og sá myndirnar af litla fallega gullmolanum þínum, innilega til hamingju og gangi ykkur uppeldið vel í framtíðinni.
Silja Dögg sagði,
mars 28, 2008 kl. 6:04 pm
Til hamingju öll sömul! Þetta er yndislegra en nokkur orð fá líst. Nú eruð þið væntanlega komin heim. Er ekki skrítið að Ármann litli sé loksins orðin hluti af heimilinu ykkar? Alveg nýtt líf, er það ekki? Knús og hamingjuóskir, Silja
Heiða Reed sagði,
mars 28, 2008 kl. 10:28 pm
Innielga til hamingju með litla kroppin ykkar! Hann er algjer snúllu rass!! Vona ferðin ykkar verði safe heim.
Kveðja Frá Texas,
Heiða og Co.
Ingibjörg sagði,
mars 30, 2008 kl. 6:57 am
Til hamingju með sameiningu fjölskyldunnar, geri ráð fyrir að þið séuð komin heim á rósrauðu skýi!
Ætli þetta blogg breytist núna í svona Barnalands-blogg?
Gúnna sagði,
mars 30, 2008 kl. 8:13 am
HJARTANLEGAR HAMINGJUÓSKIR elsku Linda og fjölskylda. LOKSINS.
Vonandi gekk allt vel á heimleiðinni og fjölskyldan byrjuð að stilla saman sína strengi á heimaslóðum. Bestu kveðjur héðan úr Mosó.
Idda sagði,
mars 30, 2008 kl. 1:04 pm
Innilega til hamingju öll 3
kveðjur af klakanum
Idds
Brynja Björk sagði,
mars 30, 2008 kl. 2:17 pm
Ohhhhhh hvað þetta er yndislegt. Til hamingju elsku litla fjölskylda. Þið eruð algjörar krúsídúllur öll þrjú.
Risahlussuknús frá Stokkhólmi
Brynja Björk
p.s. ég á litla tengdadóttur handa þér hihihi 2 mánuðum yngri en Ármann litli. Hún er að vísu svaka frekjudolla hemm hemm veit ekki alveg hvar þetta endar ;o)
Ester sagði,
mars 30, 2008 kl. 5:36 pm
Elsku Linda og fjölsk innilega til hamingju með sonin ykkar hann er algjör gullmoli kveðja frá Ester frænku í Sandgerði.
sigurborgin sagði,
mars 31, 2008 kl. 9:27 pm
innilega til hamingju með litla strák.. hann er ekkert smá mikil rúsína.
kv,
Sigurborg í VABeach
Ólína sagði,
apríl 1, 2008 kl. 8:50 am
Til hamingju með fallegasta prinsinn

biðin loksins á enda…..rosalega gaman að sjá allar þessar myndir af honum
kær kveðja Ólína