Biðin á enda

Loksins, loksins, loksins, loksins er biðin á enda..

Dagarnir frá síðustu færslu hafa verið ferlega erfiðir.. fullir af óþreyju, kvíða og spenningi.. Á stundum erfitt með að skilgreina hvernig mér hefur liðið, því spennan er svo ofboðslega yfirgengileg að tilfinningarnar rokka út í allar áttir.. Allt frá ægilegri tilhlökkun yfir í ofsakvíða.. Held meira að segja að ég hafi fengið vott af taugaáfalli þegar við sáum að seinna DNA prófið var móttekið í ameríska sendiráðinu í Guatemala. Því þá er aðeins u.þ.b. vika í að við fáum e-mail frá þeim um að koma og sækja snáðann..

Nú er sú vika liðin og í gær fengum við hið langþráða e-mail. Eigum tíma hjá sendiráðinu 25. mars og sækjum vegabréfsáritunina næsta dag.
Við erum nú þegar búin að panta flug og hótel og förum næsta mánudag.

Ég trúi vart að aðeins 6 dagar eru þar til við fáum að knúsa litla drenginn okkar.. og koma með hann heim til frambúðar..
Og rétt korter fyrir 1. árs afmæli hans.. En við erum svo ánægð að geta verið með honum á hans fyrstu páskahátíð..

Sjáið bara hvað hann var oggupínulítill og mikið krútt..

En gleðin stoppar ekki hér, því í gær fór Kristín sys af stað og átti svo lítinn strák í nótt.. 15 merkur og 50 cm..  Ég var svo heppin að fá að sjá myndir af litla frænda mínum, og ég get sagt ykkur að hann er grínlaust eins og snýttur út úr nösum pabba síns.. Alger gullmoli..
Endalaus gleði hjá okkur Ársælsdætrum..

Mig langar enn einu sinni að þakka öll kommentin frá ykkur.. Þið eruð ómetanlegur stuðningur.. það sem mér þykir vænt um ykkur..

23 Ummæli

  1. Svanfríður sagði,

    mars 11, 2008 kl. 2:59 pm

    Og það sem mér þykir vænt um þig!!!
    Aftur, til hamingju með að fá drenginn loksins heim,Linda og Clarence. Stórt knús á ykkur og kossar.

  2. Þórunn sagði,

    mars 11, 2008 kl. 3:29 pm

    Gleði, gleði, gleði ,stanslaus gleði hjá ykkur þessa dagana, innilega til hamingju og góða ferð að sækja Ármann. Það verður gaman að sjá myndir þegar þið komið heim sem fjölskylda. Bestu kveðjur
    Þórunn

  3. Rakel Ósk sagði,

    mars 11, 2008 kl. 4:03 pm

    Allt bara alveg æðislegt Linda og Clarence!!! Til hamingju, til hamingju, til hamingju :)
    Bætir það bara að hann fékk lítinn frænda til að leika við fljótlega:). ég var hér vakin upp rétt fyrir sjö í morgun með skilaboðum um að lítill snáði væri kominn hjá Kristínu, glaðvaknaði alveg og varð að svara strax…. Gat ekki annað en hugsað til Tryggva sem var nú farinn að stóla á að fá dreng aftur:).

    Hugsa endalaust til ykkar og er alltaf að kíkja hér inn, svo gaman að sjá að kominn er dagur og ferðaplan!!

    Ástarkveðja Rakel

  4. guðbjörg sagði,

    mars 11, 2008 kl. 4:09 pm

    Til hamingju með þetta allt saman, elsku frænka mín.
    Þú mátt alveg vita það að á hinum lyklaborðunum er fullt af fólki sem þykir alveg óendanlega vænt um ykkur líka.
    Mundu eftir að kyssa Ármann Aron frá Guggu frænku og strákunum. Svo fæ ég að gera það sjálf eftir nokkrar vikur, hlakka svoooooo mikið til.

    Knús og hlýjar kveðjur
    Guðbjörg, Hannes og tvíbbarnir.

  5. Heiða Rafnsdóttir sagði,

    mars 11, 2008 kl. 5:34 pm

    Innilega til lukku elsku Linda mín og Clarence er alveg í skýunum hér….

    Og til lukku með litla frændann, hann er bara æði kíkti aðeins á þau í dag ;-)

    Vona bara að allt gangi vel hjá ykkur í ferðinni og veit að þið eigið eftir að springa úr gleði, þegar þið fáið gullmolann ykkar LOKSINS í ykkar hendur. ;-)

    Kossar og knús

    Heiða, Balli og Alexander Breki

  6. Inga sagði,

    mars 11, 2008 kl. 6:51 pm

    Til hamingju enn og aftur dúllurnar mínar og til lukku með litla frændann, gamann að það skyldi verða strákur. Loksins loksins eru bara nokkrir dagar þar til þig getið knúsað litla gullmolann. Ég er orðin svo spennt að hitta hann þegar hann kemur loksins heim með ykkur.

    Stórt knús til ykkar allra frá okkur hérna hinu megin við I-95 :)

  7. Inga Valdís sagði,

    mars 11, 2008 kl. 9:34 pm

    Frábært innilega til hamingju :-) Þetta er alveg yndislegt , draumurinn ykkar er að verða að veruleika, Mér hlakkar svo til að sjá ykkur með hann og fylgjast með þessu öllu á blogginu ykkar. Það er alveg meiriháttar að lesa bloggið þitt Linda og ég er svo hamingjusöm fyrir ykkar hönd :)

    Innilega til hamingu með litla frændann, stórt knús til Krístínar og fjölskyldu :-D

    Góða ferð, og mér þykir rosalega vænt um ykkur

    Inga Valdís

  8. Birta Rós sagði,

    mars 12, 2008 kl. 3:56 am

    Grínlaust þá sit ég hér og tárast ofan í kaffibollann minn.

    Vá, þetta er bara að fara að bresta á.

    Til hamingju með litla frænda,

    Kv,
    B

  9. Guðlaug Hestnes sagði,

    mars 12, 2008 kl. 6:19 am

    Kæru vinir, innilega til hamingju. Ég hugsa til ykkar á hverjum degi og vona að allt gangi vel. Láttu vita af ykkur um leið og heim er komið! Kær kveðja

  10. Guðrún H. sagði,

    mars 12, 2008 kl. 8:46 am

    Til hamingju með þetta allt elsku vinkona. Biðin langa loksins á enda og fyrr en varir verður litli drengurinn ykkar komin í mömmu og pabba fang :) Gangi ykkur vel með framhaldið….
    Kossar og knús
    Guðrún og Elín
    p.s Ronja sendir Líu hamingjuóskir með litla bróðir sinn…. voff voff……

  11. mercury1 sagði,

    mars 12, 2008 kl. 8:57 am

    Frábærar fréttir, gangi ykkur ferðalagið vel og ég bið að heilsa til Guatemala ;)
    Kveðja
    Sigurveig.

  12. afi sagði,

    mars 13, 2008 kl. 5:12 am

    Innilegar hamingjuóskir með þetta allt. Nýtt líf, ný hamingja. Gangi ykkur vel með þetta allt elskurnar.

  13. maría erla sagði,

    mars 13, 2008 kl. 8:52 am

    vá …. ji hvað hann er sætur :) innilegar hamingjuóskir elsku linda og clarence - þvílík hamingja :)

    og til hamingju með litla frænda ! jibbí :)

  14. Júlía sagði,

    mars 13, 2008 kl. 12:00 pm

    Æðððððððiiiiiiii !!! Jiii þetta er svo spennandi ! Ég hlakka svoooo til að sjá fyrstu fjölskyldumyndirnar hérna á síðunni !
    Innilega til hamingju !
    Kær kveðja, Júlía

  15. Brynja Björk sagði,

    mars 13, 2008 kl. 4:30 pm

    vá þvílíkar gleðifréttir. Til hamingju og góða ferð og gangi ykkur rosalega vel.
    Þetta er meiiiiiiiiriháttar :oD

    knús frá Stokkó
    BB

    p.s. til hamingju með litla frændann líka!

  16. Silja Dögg sagði,

    mars 15, 2008 kl. 9:13 am

    Hér blikar tár á hvarmi….eins og Jón Ársæll myndi orða það. Yndislegar fréttir! Ég samgleðst ykkur innilega. Baráttan er svo sannarlega þess virði. Þetta er svo yndislegt og mikill sigur fyrir ykkur öll. Kær kveðja, Silja Dögg

  17. Guðlaug Hestnes sagði,

    mars 15, 2008 kl. 5:50 pm

    Kæru vinir, gangi ykkur vel á mánudaginn og guð gefi ykkur góða heimkomu. Kveðja frá okkur Bróa.

  18. Guðrún sagði,

    mars 16, 2008 kl. 9:35 am

    Frábærar fréttir ! Óska ykkur góðrar ferðar og vona að allt gangi vel !

    Hlakka til að fylgjast með framhaldinu,

    Guðrún - FL

  19. vinur sagði,

    mars 17, 2008 kl. 9:24 am

    Nú eruð þið í flugvélinni, elsku vinir.
    ég segi bara , kossar og knús, allt hitt vitið þið
    Kiss the papa from us here :)
    Svanfríður

  20. Ingibjörg sagði,

    mars 19, 2008 kl. 9:04 am

    oh til hamingju með litla frændann og heimkomu sonarins, þvílík hamingja! vona að þið hafið það gott yfir páskana þarna úti, gleðilega páska!

  21. Ragna sagði,

    mars 19, 2008 kl. 9:24 am

    Innilega til hamingju. Loksins komst ég í tölvu til að kíkja á síðuna þína. Ég bíð spennt eftir því að fá myndir af ykkur og fréttir. Hinsvegar veit ég að nú verður fiorgangsröðin önnur og tölvan biður á meðan syninum er sinnt.
    Kær kveðja til ykkar allra.

    P.S. Erum flutt og erum að koma okkur fyrir. Mjög ánægð.

  22. Vilborg gamla sagði,

    mars 21, 2008 kl. 10:28 pm

    Elskurnar mínar innilega, innilega til hamingju gott að vita að hann er loksins að koma heim mér finnst heil eilífð síðan tetta ferli byrjaði. Hlakka til að sjá fleiri myndir hann er yndislegur! :):)Stórt knús til ykkar allar.
    Kær kveðja Vilborg og fjölskylda.

  23. Grétar Flugmálastjórn sagði,

    apríl 9, 2008 kl. 4:17 am

    Sæl og blessuð Linda, var búinn að gleyma síðunni þinni og rakst á hana í gegnum eitthvað flakk á netinu, er ekki gott prima að frétta af þér. Kv Grétar H

Rita ummæli