Vúúúhúú!!!!
febrúar 20, 2008 kl. 9:30 am ()
Nú eru sko hlutirnir farnir að gerast og það hratt..
Í gærkvöldi fengum við þær bestu fréttir í öllu þessu ferli, nefnilega þær að búið er að gefa leyfi til að taka seinna DNA sýnið. Það verður líklega tekið í dag eða á morgun.
En það sem þessar fréttir þýða er það, að hugsanlega eru bara rétt um 3 vikur þar til við megum fara að sækja son okkar. Jibbbbbbýý!!!
Og það sem meira er, er að nú er búið að gefa út nýtt fæðingarvottorð og vegabréf, og blóðmóðirin er búin að skrifa undir afsalið í fjórða og síðasta skipti, sem þýðir það að Ármann Aaron er “officially” okkar sonur!!!!
Hann er núna orðinn “poor little O’Dell boy”
Ég var rétt búin að slíta samtalinu við vinkonu okkar í Skotlandi þar sem ég sagði henni að ekkert væri að frétta ennþá, að við fengum þetta líka ofur-skemmtilega e-mail frá Sue.
Ég get svo svarið það að ég ræð mér varla fyrir kæti. Er þvílíkt lukkuleg.
Litli tannálfurinn minn er að koma heim.
Þið verðið að afsaka hversu mikið ég tala um litla soninn, en það nú bara einu sinni þannig að ég hreinlega lifi og anda fyrir þennan litla kropp og verð ekki róleg fyrr en hann er kominn heim.
Kveðjur frá þeirri sem er orðin mamma..



Svanfríður sagði,
febrúar 20, 2008 kl. 10:11 am
Þú bara þarft ekkert að afsaka þig elsku besta vinkona.hann er að koma heim og mér finnst að þú ættir að fá þér stiga,fara upp á þak og öskra; YEAH BABY
Hlakka til að heyra frá þér aftur og heyra fréttirnar aftur..hafðu það gott og hey, þú ert yndisleg.
p.s Ármann er svo falllegur að ég fæ sting að horfa á hann og það eru ekki ýkjur.
Guðrún Ósk sagði,
febrúar 20, 2008 kl. 10:24 am
Þetta eru geggjaðar fréttir er búin að´bíða lengi eftir þessum fréttum….þannig að ég skil vel hamingjuna á ykkar bæ…..hringdu í mig í kvöld um 11 leytið hjá mér þá er ég búin að gera neglur……hilsen Guddan
Heiða Rafnsdóttir sagði,
febrúar 20, 2008 kl. 10:35 am
Þetta er sko bara æði… Ekkert skrítið að þið séuð að fara yfirum af hamingju því að ég ræð varla við mig hér
hehehehe Þetta er bara æði 
Kveðja Heiða
Linda sagði,
febrúar 20, 2008 kl. 10:53 am
Við erum svo hátt uppi að það hálfa væri hellingur.. Thanx you guys
Hringi í kvöld sys, reyndi að hringja í gær en ekkert svar.. kannski af því að klukkan var miðnætti heima..
Hildur sagði,
febrúar 20, 2008 kl. 2:32 pm
Hæhæ,, þetta eru bara góðar fréttir.. Þið eigið þetta svo sannarlega skilið… Hann er sætastur
kv. Hildur sys
Guðlaug Hestnes sagði,
febrúar 20, 2008 kl. 5:27 pm
Guði sé lof! Sit hér og er með gæsahúð, og bið allar góðar vættir að vera með ykkur.
Ingibjörg sagði,
febrúar 20, 2008 kl. 6:25 pm
ooooh en æðislegt, bara þrjár vikur!!!
ertu ekki að missa þig í barnaverslunum? leikföng, húsgögn, baðdót, föt, bækur, DVD diskar… :þ
Guðlaug Hestnes sagði,
febrúar 20, 2008 kl. 7:28 pm
Ég gleymdi að minnast á þessi undirskálaaugu. Ég held að maður geti drukknað í þeim.
Guðbjörg frænka sagði,
febrúar 21, 2008 kl. 5:44 am
Jibbý jibbý ………….. og hvenær komið þið svo með hann heim til Íslands?
Get ekki beðið!!!!!!!!!!!!!
Guðbjörg
Hanna sagði,
febrúar 21, 2008 kl. 7:00 am
Hæ sæta mín.
Hafið það rosalega gott! Hlakka ekkert smá til að sjá Ármann og Tómas saman. Vá hvað ég hlakka til að fá ykkur heim í sumar !!!! Love ya!
Innilega til hamingju enn og aftur Linda mín. Mikið var gott að heyra í þér í gær. Vá Linda orðin MAMMA - æði. Ég sendi kossa og knús frá stóru frænku
Linda sagði,
febrúar 21, 2008 kl. 11:49 am
@Hanna - það var frábært að heyra í ykkur vinkonunum sömuleiðis. Hlakka svo mikið til að hitta ykkur í sumar..
@Gugga frænka - Við komum heim í júlí og verðum í mánuð.. hlakka ekkert smá til..
@Guðlaug - Segðu, þessi augu bræða mann gjörsamlega.. ég er ansi hrædd um að það eigi eftir að verða erfitt að neita þeim um nokkurn skapaðan hlut..
@Ingibjörg - er sko fyrir margt löngu búin að missa mig.. hef staðið í fatakaupum á hann í 10 mánuði og uppskeran er all svakaleg.. Aumingja litli Ármann minn á eftir að skipta um föt í hvert skipti sem ég skipti á bleyju.. bara svo ég geti notað hluta af leppunum..
andrea sagði,
febrúar 21, 2008 kl. 3:01 pm
Hello, are you well-disposed to the political recognition of Kosovo?
bye bye
Þórunn sagði,
febrúar 22, 2008 kl. 6:55 am
Dásamlegar fréttir, enn og aftur til hamingju það verður óumræðanleg hamingja að fá hann loksins í faðminn. Þórunn
Gúnna sagði,
febrúar 22, 2008 kl. 6:29 pm
YES…. FRÁBÆRAR fréttir. Fylgist spennt með framhaldinu.
See you later, mom!
mercury1 sagði,
febrúar 23, 2008 kl. 7:05 am
Hjartanlega til hamingju og velkomin í hópinn okkar sem hafa fengið gullmolana okkar frá Guatemala. Ég veit hvað þetta getur verið mikill spenningur og grátur og hlátur til skiptis í þessu ferli en nú er þetta að koma hjá ykkur og ég samgleðst ykkur svo innilega, og hann er náttúrulega algjör gullmoli guttinn.
Kveðja
Sigurveig.
giovanni.spinelli sagði,
febrúar 23, 2008 kl. 7:22 am
bella e tenebrosa
Eygló frænka og co sagði,
febrúar 23, 2008 kl. 9:09 am
hæ hæ elsku frænka og innilega til hamingju með þessar frábæru fréttir,þið eigið þetta sko innilega skilið og elsku litli prinsinn hann Ármann Aron getur ekki verið heppnari með foreldra,hann er algjör gullmoli,svo fallegur á öllum myndunum.
Enn og aftur til hamingju þetta er bara æði allt saman. Gangi ykkur vel.
Kær kveðja Eygló og co. og allir á Holtsgötunni.
p.s átti að skila miklu þakklæti frá mömmu fyrir jólakortið frá ykkur,hún er með hálfgerðan móral yfir því að hafa ekki sent ykkur, það var lítið um svoleiðis því þau voru á kanarí um jól og áramót. En allavega þá er þetta komið á hreint.
Jæja bless bless og vonandi verða næstu fréttir ennþá betri.
Idds sagði,
febrúar 23, 2008 kl. 8:53 pm
Jiii innilega til hamingju
Og bara gaman að fá að lesa um allt ferlið og þennan sæta sæta strákaling sem þið eigið 
Hafið það sem best
Idds
Guðrún sagði,
febrúar 24, 2008 kl. 9:59 pm
Frábærar fréttir, til hamingju með þetta MAMMA !
Held áfram að fylgjast með.
Guðrún “Svanfríðar-vinkona”
afi sagði,
febrúar 25, 2008 kl. 4:15 am
Nú fer allt að gerast. Njóttu þess að vera til MAMMA litla.
Birta Rós sagði,
febrúar 25, 2008 kl. 11:23 am
Vá, en æðislegt.
Ég hitti mömmu þína og Kristínu á föstudaginn og þær sögðu mér fréttirnar.
Það hríslast um mig gæsahúð. Þvílíkar gleðifréttir. Ég samgleðst ykkur eiginmanninum innilega.
Kv,
B
maria erla sagði,
febrúar 25, 2008 kl. 3:09 pm
woooohoooooo en geggjad saeta min! rambadi inn herna bara svona til ad tekka til oryggis tvi thu varst ekkert allt of bjartsyn i simann en svo bara WOOOHOOOO …. yesssssss! innilega til hamingju oll thrju!!!
clarence - congratulations mister! look forward seeing all three of you in sicily
Heiða Reed sagði,
febrúar 26, 2008 kl. 2:23 pm
Elsku LInda mín,
Innilega til hamingju með litla gaurin og vonandi verða næstu dagar og vikur fljótar að líða þar til þið fáið kútin ykkar heim.
Kveðja Frá Texas,
Heiða
sigurborgin sagði,
febrúar 28, 2008 kl. 9:29 am
Innilega til hamingju með að vera að fá hann heim. Fylgist oft með þér hérna þótt ég kvitti nú ekki alltaf fyrir mig :o( En þú færð hann þá heim fyrir eins árs afmælið er það ekki?
kv,
Sigurborg í VABeach, sem er að fara að flytja til Maine í haust
Heiða Rafnsdóttir sagði,
mars 3, 2008 kl. 7:00 pm
Er alltaf að kíkja eftir fréttum
hehehe Vonandi gengur allt vel hjá ykkur
Kveðja Heiða og co
Ragna sagði,
mars 9, 2008 kl. 6:42 pm
Til hamingju með að vera nú endanlega orðin Mamma og pabbi. Tilhlökkun ykkar hlýtur að vera mikil að sameina loks fjölskylduna.
Ég sendi góðar kveðjur frá Selfossi þar sem ég á heima síðustu vikuna. Í næstu viku verður það Kópavogurinn.
Kær kveðja Linda mín,
Heiða Reed sagði,
mars 11, 2008 kl. 2:47 am
Er prinsin komin heim?
ellipe sagði,
mars 11, 2008 kl. 5:18 am
Það er allt að gerast í þessari fjölskyldu… Til hamingju með þinn prins og til hamingju með nýja frændann.
kv.
E.