Dr. Wollschlager

Mér hefur aldrei þótt gaman að fara til tannlæknis og er yfirleitt frekar kvíðin að fara. Þeir eru nú margir hverjir alveg hinir ágætustu menn/konur en eru sjálfsagt jafn misjafnir eins og þeir eru margir, en eitt virðast þeir allir eiga sameiginlegt, og það er að þeir eru málglaðir með eindæmum.

Oft er þörf að kíkja í heimsókn til þeirra, en fyrir nokkrum misserum var það aleger nauðsyn í mínu tilfelli. Ég var nefnilega með rótarbólgu dauðans og þurfti í aðgerð hið snarasta.
Dr. Wollschlager heitir tannlæknirinn minn hér í Groton. Alveg yndislegur maður en hann er málglaður með eindæmum og þarf aldrei að tala meira en akkúrat þegar öll tækin hans eru í munninum á mér. Merkilegt nokk. Út af nafninu hans var ég viss um að hann talaði þýsku og spurði hann út í það, en hann sagðist aldrei hafa lært það mál og ekki heldur foreldrar hans. Hann sagðist ekki einu sinni vera viss um hvaðan forfeður hans kæmu. Kannski Þýskalandi eða Austurríki, eða jafnvel frá Indlandi. Ég var alveg gapandi hissa og fannst það svona líkt og að hitta konu sem heitir Þorgerður Þrúður, sem kann ekki íslensku og heldur að hún sé annað hvort frá Noregi eða Grænhöfðaeyjum.

Jæja, nema hvað, ég var sest í stólinn hjá honum og hann talaði og talaði eins og honum einum er lagið. En það var auðvitað ekki fyrr en litla, skrítna aðstoðarkonan hans var búin að láta á mig pappírssmekkinn og spyrja nokkrum sinnum: “you ogay” með sínum asíska framburði. Ég held að þessi tvö orð séu þau einu sem hún kann á ensku og hún notar þau óhikað og mörgu sinnum eins og barn sem er nýfarið að segja “mamma”.

Rétt áður en Doktorinn byrjar að deyfa, lætur hann mig hafa tvo svampa sem líta út eins og tennur og eru eins og lófafylli að stærð. Annar er augntönn en hinn er jaxl. Þá á ég að kreista eins og mig lystir á meðan hann syngur fyrir mig “deyfilagið”:

Itsy bitsy numbing juice, entering in your mouth.
You wont feel a thing, if you just look south.
Here comes the needle, you shouldn’t feel a thing,
’cause I’m very careful and watchful of the sting.
Itsy bitsy numbing juice, entering your mouth.

Stundum held ég að hann gleymi því að bæta 30 við 4 til að fá út rétta aldurinn minn..

Nú fær deyfilyfið dálítinn tíma til að virka og hann undirbýr fyrir aðgerðina og aðstoðarstúlkan spyr nokkrum sinnum í viðbót hvort ég sé ogay.
sp_a0274.jpg

Hér er ég sumsé tilbúin í aðgerðina og dofin niður í litlu tá, (því dr. Wollschlager er allt annað en sparsamur á deyfilyfið) þegar hann segist hafa heyrt um “Geothermal energy” á Íslandi á Discovery channel og biður mig að útskýra það nánar.

Yndislegur karakter hann Wollschlager.

Ég hef nú talað um þennan tannlæknir áður, en mér tókst loksins að setja myndirnar úr símanum mínum inná tölvuna og finnst þessi mynd alltaf jafn fyndin.

12 Ummæli

  1. Júlía Jörgensen sagði,

    febrúar 13, 2008 kl. 5:11 pm

    Snilldarmynd !! Þú ert eins og gömul, tannlaus og andlitsstrekkt kelling !! Annars verð ég að viðurkenna að ég hlakka óendanlega til að sjá mynd af fjölskyldunni sameinaðri hérna á síðunni…….þannig að þú verður að vera snögg að skella inn mynd þegar að því kemur !
    Gaman annars að fylgjast með ykkur hérna, sérstaklega eftir að góðu fréttirnar komu.
    Bestu kveðjur frá okkur Helga , Júlía

  2. Guðrún H. sagði,

    febrúar 14, 2008 kl. 7:35 am

    Hey það er þá líf á Marz :)
    Yndisleg mynd af þér vinkona….. er að bilast úr hlátri :)

  3. Guðlaug Hestnes sagði,

    febrúar 14, 2008 kl. 9:43 am

    Frábær mynd, en hvaða gagn gera gleraugun? Sit hér og hlæ.

  4. Svanfríður sagði,

    febrúar 14, 2008 kl. 11:57 am

    Ég elska þessa mynd enda er þetta myndin sem kemur upp á skjáinn þegar þú hringir :)

  5. Heiða Rafnsdóttir sagði,

    febrúar 14, 2008 kl. 1:09 pm

    hehehehehe Kveðja Heiða ;-)

  6. Inga sagði,

    febrúar 14, 2008 kl. 8:58 pm

    Heheheheheehe :) Alveg yndisleg mynd :)

    Frábært að þér tókst að færa myndirnar úr símanum yfir í tölvuna. Fékkstu bluetooth-ið til að virka?

    Knús
    Inga

  7. Guðbjörg sagði,

    febrúar 15, 2008 kl. 3:45 pm

    Hæ dúllan mín. Gaman að heyra (lesa) þessa frásögn og enn betra að finna það að gleðin er komin í skrifin þín aftur. Takk fyrir allar yndislegu myndirnar af litla frændaskottinu, hann verður alltaf sætari og sætari. Haltu áfram að skrifa, við Amma förum inn á síðuna þína á hverjum degi.
    Knús og kveðja
    Guðbjörg

  8. Birta Rós sagði,

    febrúar 15, 2008 kl. 5:52 pm

    Bwahahaha sit hérna og skellihlæ. Bóndinn reisti sig meira að segja upp úr sófanum til að forvitnast.

    Frábær mynd!!!

    KV,
    B

  9. Guðbjörg (dóttir Rögnu) sagði,

    febrúar 16, 2008 kl. 5:00 pm

    þetta er ein besta frásögn af tannlæknaheimsókn sem ég hef lesið um ævina. Er það ekki týpiskt fyrir tannlækna að fara að spyrja mann að einhverju þegar búið er að troða munninn á manni fullann?

    Kv
    Guðbjörg , Selfossi

  10. Silja Dögg sagði,

    febrúar 17, 2008 kl. 2:01 pm

    Góð mynd!!!!! Til hamingju með drenginn. Það verður yndislegt fyrir ykkur að fá að knúsa hann :-)

  11. afi sagði,

    febrúar 19, 2008 kl. 4:56 am

    Þú ert sannarlega bráð myndarleg. Dofin og deyfð en ekki beygð.

  12. Hanna sagði,

    febrúar 19, 2008 kl. 11:38 am

    Hæ sætust. Vildi bara þakka þér fyrir spjallið. Það er alltaf svo gott að spjalla við þig. Ég vona að þú hafir það gott. Ég skila kveðju frá þér til stelpnanna annað kvöld í saumó hjá Ingiling :-)

Rita ummæli