Daglegt brauð
Connecticut er ekki talið stórt fylki á amerískan mælikvarða, en þó er talið að hér búi u.þ.b. 3,510,29 milljónir manna samkvæmt talningu frá 2005. Þá er auðvitað ekki meðtalið þeir sem eru hér ólöglega, en þeir eru sko all nokkrir, enda hefur stórborgin New Haven hér í fylkinu verið gerð að nokkurs konar griðastað fyrir ólöglega innflytjendur.
Þegar maður ekur um götur og vegi hér í fylkinu er oft erfitt að gera sér grein fyrir í hvaða bæjarfélagi maður er staddur, það er aðallega að maður viti það ef keyrt er eftir stórþjóðvegunum, þar sem öll stóru upplýsingarskiltin eru. En ef maður keyrir litlu “sveitavegina”, er nánast ómögulegt að vita hvar maður er staddur, því það eru íbúðarhús út um allar trissur. Það er því alveg viðbúið að nokkuð er um árekstra hér þar sem margir búa á litlu svæði.
Connecticut er talið eitt af 12 öruggustu fylkjunum til að búa í í Ameríku, en þó er það nánast daglegt brauð að heyra af nauðgunum, barsmíðum, ránum og morðum í fréttatímum sjónvarpsins. Maður var skotinn til bana í Hartford, konu var nauðgað í Waterbury, maður og kona voru stungin til bana í New Haven, maður lést af sárum sínum eftir stórfellda líkamsárás í Middletown o.s.frv. Mig minnir að hafa lesið einhvers staðar að um 140 og eitthvað morð hafi verið framin árið 2006 og +/- 180 árið 2007. Það þykir mér afar mikið í þessu litla fylki þó svo að svona margar milljónir manna búi hér. Síðan ég flutti hingað fyrir 3 árum síðan hafa 2 morð verið framin hér í Groton; annað var tvöfalt morð þar sem 2 menn voru skotnir til bana og var fyrir 2 árum, en hitt var í fyrra þar sem 2ja ára barni var drekkt í baðkari af kærasta móðurinnar.
Ég bý í hverfi þar sem ég hef hingað til getað talið mig nokkuð örugga, þó hef ég aldrei né mun ég aldrei fá mér göngutúr eftir myrkur. 95% íbúa hverfisins eru hermenn og fjölskyldur þeirra og því tel ég litlar líkur á að einhver muni ráðast hér inní hús í hverfinu. Ég var því ekkert lítið hissa á föstudagskvöldið síðasta þegar íbúðin okkar lýstist upp af sterkum fljóðljósum.
það var myrkur úti, klukkan orðin rúmlega 6 að kvöldi og ég var búin að skrúfa fyrir allar rimlagardínur í gluggunum. Ég sat, eins og fyrr, við tölvuna en hafði einungis kveikt ljósið í stofunni, annars var frekar dimmt inni. Síðan vitum við ekki fyrr en við heyrum í sírenum á lögreglubílum fyrir utan, heyrum í þyrlu fyrir ofan húsið þar sem fljóðljósum er beint í bakgarðinn og inn í eldhúsið. Ég stökk upp og athugaði málið og sá þá hvar þyrlan hringsólaði hér yfir hverfinu og beindi ljósunum í hringi á jörðinni, lögreglubílar rúntuðu um hverfið og fullt af fólki úti á götu. Ég spurði Clarence hvur djöf.. væri í gangi, leituðum á netinu hvort eitthvað væri í fréttum um strokufanga, hvort morðingi væri laus eða eitthvað þaðan af verra. Við fundum ekkert á fréttasíðunum, kveiktum því á sjónvarpinu til að athuga hvort það væru nokkuð “breaking news” á fréttastöðvunum en þar var ekkert og vissum því ekki hvað var í gangi. Þó ég hafi ekkert endilega verið með brúnt í brók, þá stóð mér alls ekki á sama. Sagði Clarence að læsa hurðunum og spurði hvort við ættum skot í riffilinn, ef ske kynni.. Neibb, við áttum engin skot, ég vissi það vel, því ég hef sett blátt bann við að eiga skot í húsinu, hann má bara kaupa skot þegar hann fer á veiðar, en ekki eiga þau og geyma í húsinu. Samt vonaði ég innst inni að hann hafði stolist til að kaupa eins og einn kassa sem væri í felum einhvers staðar. En hann er of góður maður til að gera svoleiðis nokkuð. Jæja, eftir að hafa læst báðum hurðum, settist ég í sófann, hélt fast um Líu og horfði á Clarence þar sem hann var límdur við gluggann til að fylgjast með.
Leitin stóð yfir í um 2 tíma, og það var ekki fyrr en í kvöldfréttum kl. 10 að við heyrðum hvað hafði verið í gangi. Það var ekkert í líkingu við það sem ég hafði ímyndað mér. Kona sem býr í næstu götu við mig, hafði hringt í neyðarlínuna og tilkynnt að hún hafði séð um 2ja ára barn, aleitt á gangi, og séð hvar það hafði tekið stefnuna inn í skóginn hér í nágrenninu. Því var þyrlan kölluð út, lögreglan og leitarhundar líka, en einnig voru nokkrir sjálfboðaliðar að aðstoða í leitinni. Leitinni lauk og ekkert barn fannst. Svo það er talið líklegt að það hafi aldrei verið neitt barn til að leita að.
Þó árið 2008 sé nú bara rétt nýfætt, þá hafa þó nokkur morðin verið framin hér í fylkinu: hér, hér, hér og hér má t.d. lesa um nokkur.
Svo, þar sem morð er nánast daglegur viðburður og þar sem byssueign landsmanna virðist vera svipuð, ef ekki meiri en nærbuxnaeign þeirra, þá þykir mér ég alveg hafa haft ærna ástæðu til að óttast þetta eina föstudagskvöld!!! Lái mér hver sem vill!!!
En hér verð ég að setja punktinn því ég verð að fara með tíkina í göngu áður en byrjar að dimma. Er samt ekkert hrædd sko..
- – -
A newspaperman told a story about a naturalist who began to cut down trees to build a log house. A friend asked, “Isn’t that a big undertaking for a man of your years?” The old naturalist replied, “It would be if I thought about chopping the trees, sawing the logs, skinning the bark, laying the foundation, erecting the walls, and putting on the roof. Carrying the load all at once would be exhaust me. But it isn’t so hard to cut down this one tree, and that is all I have to do today.”
Ég veit ekki með ykkur, en þetta þykir mér ansi gott ráð. Okkur er eitthvað svo tamt að mikla allt svo fyrir okkur og búa til vandræði að maður endar með svo þungar byrgðir og áhyggjur að maður getur varla ráðið fram úr komandi degi. Stundum er varla að maður ráði við einn dag, hvað þá þegar maður er búinn að bæta við áhyggjum næsta dags, næstu viku og jafnvel næstu 6 mánuðum.. Þegar maður leggur allt saman í huganum, þá er svo auðvelt að gefast bara upp því takmarkið er í svo ofboðslegri fjarlægð.
Hvernig er þetta með ykkur vinir mínir?? getið þið lifað fyrir einn dag í einu? Getið þið ráðist á það sem þið þurfið að vinna á í dag og ekki hugsað um verkefni næstu daga, vikur og mánuði? Eða er sjálfstjórn ykkar svo öguð að þið “dílið” bara við það sem sett er fyrir framan ykkur hvern dag og ráðist á næsta verkefni þegar að því kemur?
Ég er að rembast við að hugsa um einn dag í einu og hugsa með mér að hver dagur færir okkur nær takmarkinu. Það gengur ágætlega, er meira að segja búin að vera agalega hress núna undanfarið, hlæja, fara í heimsóknir, föndra og fara í göngutúra, svona til að nefna eitthvað.. ég hef meira að segja ákveðið að byrja aftur í “gymminu”, en það er líka allt, ég er bara búin að taka ákvörðunina – hef ekki komið mér af stað ennþá..
Góð vinkona mín hvíslaði því að mér þegar ég gekk út úr húsi hennar á laugardaginn að ég eigi að trúa til að sjá, en ekki sjá til að trúa.. Svosem jafngott ráð og hvað annað..
Er hægt að vera mitt á milli??
-:-
Mig dreymdi Ármann Aaron í nótt.. ekki að það sé eitthvað nýtt því mig dreymir oft þennan litla kropp.. Draumurinn er yfirleitt sá sami, að ég haldi á honum, lyfti honum upp fyrir höfuð og við snúum okkur í hringi, hann skríkjandi og ég hlæjandi, svo þrýsti ég honum þétt að brjósti mér, gef honum koss og knúsa hann lengi, lengi..
Draumurinn í nótt var ekkert í líkingu við fyrri drauma..
Litli fallegi kroppurinn minn var farinn að labba, ég horfði stolt á hann og fylgdi á eftir honum.. hann teygði hendurnar út í loftið og eiginlega hljóp frekar en gekk og var svo stoltur af sjálfum sér.. Hann var berfættur en gólfið var lagt hvítum, stórum flísum.. Hann var með bleyju á bossanum en annars nakinn..
Stoltið í móðurinni breyttist á örskotsstundu – fyrst í starandi augu og síðar í skelfingu, því sporin sem pínulitlir fæturnir skildu eftir sig voru blóðug, alblóðug en svo svakalega fullkomin.. Ekki veit ég af hverju þau voru blóðug því enginn blóðpollur var á gólfinu sem hann hefði getað stigið í, ekkert var á gólfinu sem hann hefði getað stigið á og skorið sig og fætur hans voru ekki með sár..
Ég vaknaði frekar skelfd og er enn að reyna að ímynda mér af hverju svona óhuggulegur draumur sótti á mig í nótt.. Ég hef þó tilfinningu fyrir svarinu en þori ekki að segja það upphátt, hvað þá að pikka stafina hér á lyklaborðið..
Ég er hrædd við framhaldið.. virkilega hrædd..
Ég hef ekki grátið einu tári í öllu þessu ferli og í hreinskilni sagt þá hef ég ekki þorað að hleypa tárunum út.. ég hef nefnilega haft það á tilfinningunni og ímyndað mér að ef ég lofa tárunum að koma óhindrað að þá sé ég að gráta endalokin sem væru, að hann mun ekki verða okkar.. en á meðan ég held aftur af þeim, þá haldi ferlið áfram og hann MUN koma heim..
Ármann Aaron varð 9 mánaða gamall á mánudaginn og fengum við því sendar nýjar myndir frá síðustu læknisheimsókn.. Ég setti nokkrar af þeim í albúmið hans..
Í þungum þönkum en þó með vonina að vopni óska ég ykkur góðrar helgar..
Ný byrjun – Nýtt ár
Blogged with Flock


