Síðustu dagar

desember 28, 2007 at 12:10 pm ()

Clarence og Lía voru rétt að skríða inn úr dyrunum, en þau fóru í ágætisgöngutúr núna í morgunsárið.. Aumingja litla skinnið mitt var víst svo hrædd því í dag er rusladagur og stóri ruslabíllinn er svo hávær og ruslamennirnir öskra á hvorn annan til að tala saman.. Hún setti skottið á milli lappanna og var föst á milli lappanna á pabba sínum.. Yfirleitt urrar hún og geltir þegar hún heyrir í þeim fyrir utan húsið og þykist vera svo rosalega djörf að passa mömmu sína, en fattar ekki að hún stendur fyrir aftan mig og með rassinn gjörsamlega klesstann við lappirnar á mér.. Litla hetjan mín..

Þegar hún sá mig skrifa hér inn á bloggið, þá kvartaði hún sáran yfir að mamma hennar talaði ekkert lengur um hana en bara um bróður hennar.. Setti aldrei myndir af henni inn á síðuna og keypti aldrei föt á hana eins og ég geri fyrir bróður hennar, að ég sé frekar vond mamma og geri upp á milli barnanna.. að hún sé ennþá einkabarn og vilji fá að njóta þeirra forréttinda að vera sem slíkt þar til bróðir hennar kemur heim..
Auðvitað sá ég aumur á henni og lofaði að ég myndi setja hér inn eina mynd af einkadótturinni, og lagði sterka áherslu á orðið “EINKA”.. Við erum aftur orðnar vinkonur, hún sagði mér það um leið og hún sleikti mig í framan..

En af öðru..

Jólin hafa verið alveg yndisleg hjá okkur litlu fjölskyldunni.. áttum aðfangadag að hætti okkar Íslendinga og meira að segja klæddum okkur upp, þó við værum bara 2, og settum jólaklút á Líu eins og sjá má á myndinni, eftir jólabaðið hennar..
Hér í bænum hafði verið svo fallegt og jólalegt dagana fyrir jól, húsin mikið skreytt og snjór legið yfir öllu, en svo korter fyrir jól (á Þorlák) byrjaði að rigna eins og hellt væri úr fötu og fylgdi kolvitlaust rok.. Bakgarðurinn fór á flot og var eins og sundlaug, jólaskraut fauk af húsum svo að endingu var enginn snjór og jólaskraut út um allar jarðir.. Svo vonin um hvít jól fauk út í buskann með rokinu en skildi í staðinn eftir eldrauð jól..
En það hafði þó lítil áhrif á jólaskap okkar á Krabbaepla götu, því um leið og steikin var sett í ofninn, voru jólin komin.. Ilmurinn úr eldhúsinu sá til þess..

—-

Þó Lía sé ekkert of kát með að mamma hennar skuli alltaf vera að tala um bróðir hennar, langar mig nú samt til að segja ykkur frá því að í gær fengum við sendan DVD disk með vídeói af litla stráknum okkar.. Það var svo gaman að sjá þessa miklu breytingu frá því að við fórum til hans, en þá var hann bara 4 mánaða gamall.. Þó að hann hafi bara setið í sófa heima hjá fósturmömmunni og leikið sér með lykla, þá var samt svo gaman að fá að sjá sjálf að hann er farinn að sitja einn og óstuddur og fá að vita að hann er farinn að skríða.. Það sem mig langar að knúsa og kreista þennan litla kropp.. En þessi litli kroppur okkar mun fá nafnið Ármann Aaron.. Þess vegna var svo gaman að heyra í fósturmömmunni á vídeóinu segja: “Ármann, no-no..” og svo fylgdu einhver spænsk orð á eftir..
Við sögðum henni nafnið þegar við fórum í heimsókn og báðum hana um að byrja að kalla hann Ármann nafninu svo hann myndi venjast því þar til við myndum koma og sækja hann..

Mig langar líka til að sýna ykkur eina sónarmynd, en þetta mun vera sú eina sem ég get sýnt ykkur á minni meðgöngu, þar sem ég get aðeins talist ólétt á pappírum.. ;)

gse_multipart47113.jpg

Jæja, ég verð víst að kveðja ykkur hér, því ég þarf að fara í smá verslunarleiðangur og versla fyrir kvöldmatinn.. Vinur okkar einn er búinn að margbiðja okkur um að bjóða honum og fjölskyldunni aftur í lamb, svo við ákváðum að elda eitt stykki lambalæri í kvöld, þar sem allir eru í jólafríi og geta vakað langt fram á nótt..

Góða helgi kæru vinir..

Permalink 10 Ummæli

desember 22, 2007 at 1:34 pm ()

Sælt veri fólkið og afsakið þessa lööööööööngu pásu.. Fyrir henni er nú ástæða, en hvort hún er góð skal ég ekki segja til um en ástæða er það nú samt..

Það var nefnilega fyrir um 2 mánuðum síðan að stjórnvöld í Guatemala gáfu út þá yfirlýsingu að í byrjun næsta árs muni þeir ganga í og verða aðilar að Haag Sáttmálanum, sem er í sjálfu sér frábærar fréttir og sérstaklega fyrir ættleiðingar, en þar sem Ameríka er ekki partur af honum, þá verði þeir að loka á öll mál sem ekki hefur verið lokið fyrir 31. des 2007. Og ef að mál eru í vinnslu og meira að segja á lokastigi, þá erum við bara óheppin.. Barnið fær ekki að koma heim..
Eins og menn kannski geta gert sér í hugarlund, þá eru þetta þær verstu fréttir sem hægt er að fá fyrir hjón sem bíða eftir barni sínu.. sérstaklega þegar búið er að fara í heimsókn til barnsins og búið að borga þær milljónir fyrir sem ættleiðing kostar.. Því ekkert yrði endurgreitt.. Og síst af öllu tilfinningarnar..

Ég veit svei mér ekki hvernig ég get útskýrt líðan mína sem á eftir kom og þunglyndið sem ég datt í.. Litli drengurinn minn myndi aldrei verða minn.. Hvernig getur fólk verið svona vont að leyfa ekki að klára þau mál sem eru í vinnslu..
Næstu daga á eftir fylltust e-mailin hjá öllum þeim sem eru að ættleiða frá Guatemala, um að gera þyrfti eitthvað róttækt til að stjórnvöld Guatemala kæmust ekki upp með svona ljótan leik..
Úr varð að allir sem koma að ættleiðingunni (foreldrar, systkin, ömmur og afar, frændur og frænkur, vinir o.s.frv.) myndu skrifa bréf og þá til forseta Ameríku, forseta Guatemala, JCICS, UNICEF, þingmanna og öldungardeildarþingmanna og svo einhverra fleiri samtaka.. Flestir höfðu ekki heyrt neitt af þessari yfirlýsingu stjórnvalda Guatemala en allir voru tilbúnir að hjálpa..
Svo nú, 2 og hálfum mánuði síðar er það svo komið, með hjálp frá öllum sem bréf voru skrifuð til, að forseti Guatemala og hans stjórn hefur tekið til baka þessa ljótu yfirlýsingu og búið til nokkra viðauka í nýju lögin þess efnis að öll mál sem eru í vinnslu og hafa verið skráð fyrir 31. des 2007 fá að halda áfram undir gömlu lögunum.. Svo nú eftir 2ja og hálfs mánaðar stríð við þessa ljótu menn sem voru valdir af þessari líka ofsahræðslu hjá þúsundum manna, þá er óhætt að segja að STÓR sigur hefur verið unninn.. OG VIÐ FÁUM LITLA DRENGINN OKKAR HEIM.. Bara spurning hvenær en ég kvarta ekki þar sem búið er að vinna bug á efanum..

Auðvitað hljóp ég hratt yfir sögu og læt vera að fara út í litlu smáatriðin, sem voru þó nokkur, en þið ættuð alla vega að geta gert ykkur í hugarlund um hvað verið hefur í gangi..

Litli kútur er orðinn 8 mánaða gamall (7. des) og hér eru 2 myndir úr nýjustu myndasendingu af litla fallega syni mínum.. 

Annars er allt annað í góðum málum, fengum meðal annars heimsókn frá Íslandi í byrjun des, en þá komu 2 af systrum mínum ásamt mökum.. Frábær tími og nákvæmlega það sem ég þurfti til að rífa mig uppúr þessum þunga sem hafði heltekið mig.. Nú er allt eins og það á að vera, ég meira að segja fór út og tók myndir eftir góðu fréttirnar, en ég hafði varla farið út úr húsi í þessar vikur sem óvissan var yfir okkur..

Við hjúin á Krabbaeplagötu erum orðin spennt fyrir jólunum og ætlum meira að segja að halda íslensk jól.. Systir kom með íslenskan hamborgarahrygg með sér að heiman svo ég er orðin mjög spennt að fara að elda jólamatinn og fá jólalyktina í húsið.. Alveg eins og mamma gerir.. Svo fengum við líka óvæntan glaðnig með póstinum í gær, en þar var pakki frá ættleiðingarstofnunni, gjöf frá syni okkar.. Fósturmamman hefur sjálf tekið myndir af litla kút frá því hann fæddist og útbjó lítið myndaalbúm með myndum frá öllum mánuðunum.. hún hafði líka klippt hárlokk úr höfði hans og sett í poka og límt innan í kápu albúmsins.. Og það skemmtilegasta var að hún skrifaði bréf til okkar frá honum.. Þvílíkt og annað eins.. Ég tárast við að tilhugsunina eina saman, svo vænt þykir mér um þennan litla pakka..

Kæru vinir nær og fjær, ykkur vil ég óska gleðilegra jóla og vona að nýja árið verði alveg eins og þið óskið ykkur..

Litli Jólastrákurinn okkar

Permalink 17 Ummæli