3. September

september 3, 2007 at 9:37 am ()

Ég vissi ekki hvar ég var stödd þegar ég heyrði rödd Kristínar sys í gegnum símann núna eldsnemma í morgunn.. Leit á klukkuna og sá að hún var EKKI einu sinni orðin 7.. Hvurslags eiginlega er þetta, veit hún ekki að ég þarf á mínum fegrunarblundi að halda og af öllum dögum þarf ég á honum að halda einmitt núna í dag þegar ég er árinu eldri??  Hef ekki einu sinni þorað að líta í spegil, er hrædd við að uppgötva að þreytulínurnar undir augunum séu alls ekkert út af þreytu, heldur hrukkur sem hafa komið sér þægilega fyrir og munu eiga heima þarna varanlega.. Aumingja sonur minn mun ekki vita hvort hann á að kalla mig mömmu eða ömmu!!!!

Í dag er dagur nr. 54 í talningu þar til eigum að fá svokallað PA (Pre Approval) frá ameríska sendiráðinu í Guatemala.. Þeir taka allt frá 30 dögum og upp í 60 frá því að DNA sýnið var stimplað, okkar var stimplað 11. júlí.. Um leið og við fáum þetta PA munum við fara inn í PGN (Procuraduria General de la Nacion), sem er dómstólakerfi Guatemala, en það er síðasta hindrunin í þessu stússi.. Um leið og við komumst út úr PGN, er þessari bið nánast lokið.. þá á einungis eftir að gefa út nýtt fæðingarvottorð fyrir drenginn, útbúa áritun í vegabréfið hans og gefa okkur tíma hjá ameríska sendiráðinu til að ná í þessa pappíra.. reyndar þarf að taka annað DNA sýni, til að fá staðfestu um að hann sé örugglega sá sami og sá sem sýnið var tekið úr í júní..  
Þó að PGN sé síðasta hindrunin, er það versta biðin.. Þeir eru víst mjög leiðinlegir þar og erfiðir.. þeir eiga það til að henda út málum, bara af því að það vantar punktinn yfir i-ið eða krossinn í stafinn t..  Þeir taka yfirleitt um 2 mánuði í hvert mál, og oftar en ekki henda þeir málunum út á degi 59 og þá þarf að laga það sem laga þarf, og þegar málið er aftur sent inn í PGN, eru þeir vísir með að taka aftur 60 daga og stundum fleiri mánuði.. Undarleg vinnubrögð, en PGN er það sem allir, sem ættleiða frá Guatemala, eru hræddastir við.. Nokkrir sem eru að ættleiða í gegnum “okkar” ættleiðingarstofnun, hafa verið inn í PGN í 7-9 mánuði án þess að heyra nokkuð.. það er nefnilega þannig að um leið og málið fer þar inn, þá er málið úr höndum allra sem annars við koma, maður veit ekkert fyrr en maður er annað hvort kominn út eða manni er hent út.. Svo þessi bið er sú versta af þeim öllum..
En Clarence er sá bjartsýni í okkar hjónabandi og hann trúir því stöðugt að við fáum að sækja litla drenginn okkar í nóvember.. ég segi honum að það væri náttúrulega alger draumur en bið hann um leið um að setja sólgleraugun á nefið á sér, því ég er hrædd um að hann verði fyrir svo miklum vonbrigðum ef hans plan gengur ekki upp..

Svona er það nú, en nóg um allt ættleiðingartal.. Ætla ekki að drepa ykkur úr leiðindum..

Ég er ekki búin að ákveða hvernig ég ætla að eyða þessum annars ágæta degi, en það eralla vega búið að ákveða að grilla í kvöld.. Keyptum rosalega “djúsí” nautalundir sem við ætlum að grilla svo er ég viss um að nágrannarnir koma yfir í mat..
Svo mikill samgangur hefur verið á milli okkar að það er næstum orðið þannig að við spyrjum hvað sé í matinn hjá hvor öðrum og ákveðum þannig hvað við eigum að borða þann daginn.. :) Gaman að því..

Annars vil ég þakka allar afmæliskveðjurnar í hvaða formi sem þær hafa komið..

Eigið góðan dag og SKÁL fyrir auka hrukkum!!

Permalink 18 Ummæli