Mánuði seinna..

apríl 18, 2007 at 12:54 am ()

Ég trúi varla að það sé kominn heill mánuður síðan ég skrifaði hér inná síðast.. dagarnir og vikurnar hafa hreinlega hlaupið í burtu á þvílíkum ógnarhraða og ég get svo svarið að ég sá nokkrar aukahrukkur í speglinum í morgun út af stressi undanfarna daga.. og svei mér þá ef nefið hafi ekki bara stækkað líka þó ég hafi ekkert logið, alla vega ekkert af ráði, og ekki má litla andlitið mitt við stærra nefi, því eins og er, er fólk í stórhættu þegar ég lít við..

Jæja nóg um það..

Í janúar, þegar systir mín sagði mér að hún ætlaði að koma í heimsókn í apríl, þá fannst mér svo hrikalega langt í það en hlakkaði samt mikið til því þá gætum við verið úti á stuttermabolum og g-streng að spóka okkur um í sólinni og hitanum.. en það var nú annað hvort.. hér hefur verið svo kalt og svo mikið rokið að ég er viss um að Kristín haldi að hún hafi bara alls ekkert yfirgefið ískalda skerið okkar..
En þrátt fyrir að veðrið hafi ekki verið til að hrópa húrra fyrir, þá var alveg rosalega gaman hjá okkur.. Við gerðum nú ekkert svakalega mikið annað en að þræða þessar búðir sem eru hér í kring og keyra um nágrennið og sýna henni heimkynni okkar.. Held að henni hafi bara litið ágætlega á þetta allt saman.. Við fórum með hana í Mohegan Sun,  en það casino er annað stærsta casino í Ameríku og er inn á vernduðu svæði Mohegan indjána (hér má lesa sögu Mohegan ættbálksins).. en þangað fórum við ásamt góðu vinafólki okkar, þeim Ingu og Niklasi.. Við byrjuðum á að fá okkur snæðing á einhverju veitingahúsinu sem er þarna inni, og ég held að Kristín hafi fengið vægt sjokk þegar maturinn var borinn fram, svo mikið var á diskunum að maturinn á hennar disk flæddi út um allt borðið.. Vorum nú reyndar búin að segja henni að matarskammtarnir í Ameríku væru dálítið stórir, en þetta var alveg til að toppa það.. Held að meira en helmingurinn hafi endað í ruslinu..  Svo var farið og lagt undir og spilað í spilakössunum, en þeir eru þarna í þúsunda tali.. Ég sjálf eyddi, jaaa, alla vega minna en 100 dollurum, og græddi ekki 1 cent fyrir, auðvitað.. Kristín setti örfáa pengina í vélina og var á henni í nokkra klukkutíma, græddi alltaf nóg til að geta spilað í nokkrar mínútur í viðbót.. lúserarnir, við hin, biðum á meðan og kvörtuðum yfir að vera búin með okkar skerf, horfðum í nokkra klukkutíma á systu spila og spila og græða og græða en aldrei nógu mikið til að leysa út peninginn..
Ég get vel sagt ykkur það, að það er ekki mikið mál að falla í fíkn þarna inni.. því á meðan maður er að spila er nokkuð víst að stóri vinningurinn er alveg að koma, og hann kemur eiginlega held ég í næsta snúningi.. og ef ekki þá, þá í þar næsta.. svo brenglaður verður hugsunarhátturinn..
Það var meiriháttar skemmtilegt að hafa fengið systu í heimsókn, en hún var sú eina sem átti eftir að koma og prófa að sofa í húsi nr. 16 á Krabbaeplagötu..

—–

Nú um helgina hélt hér innreið sína Nor’easter stormurinn, en honum fylgdi brjálaður vindur og úrhellis rigningar.. Hér í fylkinu eru nokkrir bæjir sem yfirfylltust af vatni og þurfa sumir að notast við litla báta til að komast leiðar sinnar.. við á Krabbaeplagötu 16 megum þakka fyrir að einungis bakgarðurinn hafi horfið í regnvatni og að bara lítið af vatni hafi flætt hér inn um dyrnar.. Þvílíkt og slíkt, manni verður frekar brugðið við að sjá fréttirnar og að heyra af fólki sem hefur jafnvel misst allt sitt út af flóðum.. og það í apríl þegar sumarið á að vera komið.. Lía greyið fór ekki út fyrir hússins dyr, svo hún pissaði ekkert þann daginn.. Hún reyndi nokkrum sinnum en var fljót að snúa við og fara undir borð..
En nú eru breytingar í nánd, hitastigið á að hækka til muna nú um helgina svo ég vona bara að veturinn sé um það bil að vera liðinn.. 
Ég skrapp út seinni partinn í dag til að taka myndir og í rauninni til að reyna að ná áttum aftur eftir erilsama daga (útskýri seinna).. veðrið var viðbjóður, rigning, rok og ískalt.. náði þó nokkrum skotum en kom heim eins og undinn hundur og leið eins og ég hafi verið slegin utanundir..
Dark day

—-

Skólanum lauk með ágætum, fékk alveg þokkalegar einkunnir og uni ég vel við mitt..  Skólinn er að byrja aftur nú á miðnætti en á fimmtudagskvöldið er minn fyrsti tími í glænýjum kúrsum.. Ég hlakka mikið til annars kúrsins en það er Forensic Psychology and the Legal System.. held að þetta sé mjög áhugaverður kúrs og hef gluggað örlítið í kennslubókina.. hún verður án efa dálítið torf að komast í gegnum en vel þess virði..  

Jæja gott fólk, ég væri ekki hissa þó þið hafið gefist upp á að kíkja hingað í heimsókn en ég skal reyna að láta ekki líða svona langt á milli pósta næst..
Ef einhverjir reka inn ennþá inn nefið, þá þakka ég kærlega þolinmæðina´..

Bestu kveðjur frá rennblautu Groton..

Permalink 11 Ummæli