Lengi von á einum
Jæja, sælt veri nú fólkið!!
Ekki hefur tjáningarþörfin verið upp á marga fiska þessa síðustu og verstu, enda frúin í Groton verið fremur framlág undanfarið. Nú skal breyting verða á – rétt úr baki og höfuð borið hátt..
Það hefur nú margt og mikið verið brallað síðan síðast.. ef ekki er sungið fyrir Simon og Randy í American Idol Karaoke, þá er verið á rúntinum í nágrenninu, brunað á milli fylkja eða unnið í skólaverkefnum.. ég bara hreinlega man ekki eftir að hafa verið svona upptekin í skólanum síðan ég hóf þessa netskólagöngu mína fyrir rúmu ári síðan.. Þvílíkt og slíkt..
Við fórum til Pennsylvaniu fyrir 2 helgum og vorum rúma 9 tíma á leiðinni en ferðin átti ekki að taka nema 4 og hálfan tíma eða 5 í mesta lagi.. Það vildi svo óheppilega til að það snjóaði kvöldinu áður svo loka varð öllum hraðbrautum því enginn hugsaði fyrir því að það þurfti að ryðja vegi og götur.. Daginn eftir heyrðum við í útvarpinu þegar fylkisstjóri Pennsylvaniu baðst afsökunar á þessari 24 stunda röskun sem varð og tók á sig alla sökina persónulega.. Margra mílna raðir af risatrukkum voru út um allt þar sem allir biðu við “Exit” þau er þeir ökumenn þurftu að taka, en lögreglumenn höfðu lagt bílum sínum fyrir svo enginn kæmist leiðar sinnar..
Við enduðum á að fara sveitavegi þá sem voru opnir og þræddum þar af leiðindi alla litlu bæina.. við vorum langt frá því að vera þau einu sem notuðum sveitavegina, því ég er viss um að öll Ameríka hafi verið á ferð um Pennsylvaniu á þessum tíma.. Þvílík og önnur eins traffík og allir gátu ekið á 25 km hraða að hámarki.. Ég held ég hafi sýnt vott að geðveiki í farþegasætinu.. Aumingja Svanfríður mátti hlusta á vælið og blótið í mér í gegnum símann því gjörsamlega vonlaust var að láta Clarence vorkenna mér þar sem hann var jú að keyra drottninguna.. en nóg um það..
Næsta dag ókum við í um 3 tíma frá litla Northumberland til að fara og skoða hið gríðarstóra Washington DC.. Það var búið að plana svona ca. hvað við myndum gera þar, alla vega hvað skildi skoða og hvert skyldi labba.. Smithsonian safnið var það fyrsta sem við skoðuðum og eyddum þar nokkrum klukkutímunum enda margt að sjá.. t.d. er þar einn stærsti Demantur sem til er og er unnin og heitir hann Hope Diamond.. hann er djúp-blár að lit og er um billjón ára gamall.. stórglæsilegur og myndi sjálfsagt una hag sínum vel á hálsi mínum..
Við skoðuðum líka uppstoppað dýraríkið, fíla, tígrisdýr, vísunda, alls kyns rottutegundir, birni, fugla og antilópur og bara nefndu það, það var öll dýraflóran þarna eins og hún leggur sig.. Eftir Smithsonian var rölt upp að Washington Monument, en það var heldur betur stærra og hærra en sýnist í fyrstu.. Fólk er eins og iðandi örverur við hliðina á þessum risa minnisvarða.. Þar á eftir var ætlunin að labba að Hvíta Húsinu til að athuga hvort Bush ætti ekki heitt á könnunni.. við sumsé óðum þarna snævi þaktar götur og göngustíga og vorum vel klædd, en þegar við áttum um 2 mínútur eftir þá komu þar nokkrir lögreglumenn á hjólum og sögðu okkur að snúa við og það væri algerlega bannað að taka myndir.. og hana nú.. götur og stígar í um kílómetra radíus frá húsinu hvíta voru algerlega lok, lok og læs.. Við, ásamt fleiri ferðalöngum þurftum þá að snúa við á punktinum og þýddi ekkert að tjónka þessa laganna verði við, ekki einu sinni þó ég sagðist vera frá Íslandi og ætti bara einn dag eftir ólifaðann.. Sveimérþá-allamínadaga..
Nú, þar sem ekkert varð að heimsókn okkar til Bush, þá ákváðum við að rölta að “The Capitol”.. þar fyrir framan var fólk í kippum að skauta á ísilögðum blettinum.. Skemmtilegt að sjá það.. náði nú að taka mynd af því og mátti það svo ferðin var nú ekki alveg ónýt..
Við vorum orðin frekar kalin eftir þessa göngutúra okkar um höfuðborgina en mikið var þetta samt gaman.. Fullt, fullt af fólki þarna og í nákvæmlega sömu erindagjörðum og við.. Í eitt augnablik á ég svo mikið sameiginlegt með svo mikið af fólki.. Ég hitti þarna einn heimilislausann sem bað mig um peninga.. ég sagðist ekki eiga neitt í smáu og kveikti mér svo í sígarettu.. Þá bað hann mig um sígarettu og sagðist ekki hafa reykt í svo langan tíma, og þar sem ég skil aukaverkunina sem því fylgir sá ég aumur á honum og gaf honum síðustu sígarettuna mína.. Reyndar dílaði ég við hann.. sagðist gefa honum síðustu sígarettuna ef ég fengi að taka mynd af okkur saman.. það var auðfenginn díll..

Ég og John Doe
Eftir þetta ferðalag okkar var förinni heitið neðanjarðar, þar beið lestin sem fór með okkur að bílastæðinu hvar við höfðum lagt bílnum og svo var brunað út úr stórborginni, aftur í litla Northumberland.. Ofsalega skemmtilegur dagur..
Ef við snúum okkur nú að fötlun minni, þá er þar allt í hinum bestu málum.. Fengum sendan pappírspakkann frá sjúkrahúsinu og erum nú búin að fylla þar allt inn, þurfti að fara í blóðprufu í síðustu viku, fékk svo töflur til að taka inn og á svo að mæta aftur í blóðprufu á morgun.. á föstudaginn förum við svo og fáum niðurstöðurnar og þá get ég loksins sent pakkann inn á frjóvgunarstöðina.. svo er bara að bíða eftir kallinu.. Loksins er komin mynd á þetta ferli okkar og ég sko miklu meira en tilbúin..
Geek Squad
Ég get víst lítið annað en beðist afsökunar á hversu léleg ég hef verið að kíkja í heimsókn til ykkar á síðurnar ykkar kæru vinir.. Fyrir það fyrsta dó tölvan mín svo ég var tölvulaus í nokkra daga.. í annan stað byrjaði skólinn í síðustu viku og það með trompi – prófum og alls kyns verkefnum - sem er mjög óvenjulegt í fyrstu viku annar..
Ég var að vinna einmitt í einu skólaverkefni þegar skjárinn varð bara svartur og tölvan slökkti á sér.. sjokkið sem ég fékk verður ekki líst hér né orðunum sem fuku út um munnin – samanbitnum.. ég vissi hreinlega ekki að ég ætti til svona ljótan orðaforða – og það á ensku..
Það sem mér þykir verst er að öll skólavinnan var horfin, sem og myndirnar mínar og öll tónlistin.. Forritin sem voru í kjölturakkanum má setja í aðra tölvu en sum fékk ég hjá vinum svo ég á þau ekki til.. aarrrgghhh og græt að morgni sko.. Bölvanlegt ástand..
Fór með tölvuna í Best Buy, en þar er sérstök deild sem sér alfarið um tölvuviðgerðir fyrir lúsera eins og mig.. Deildin kallast “Geek Squad” og hæfir nafnið einstaklega vel fyrir þessa stráka sem þar vinna og þessa einu stelpu sem ég sá..
Þeir tjáðu mér að móðurborðið í tölvunni væri farið en þeir gætu vel sent hana fyrir mig í viðgerð en það myndi taka ca. 2-3 vikur og í ofanálag kosta það sama og ný tölva.. en þar sem ég get með engu móti verið tölvulaus í 2-3 vikur og sérstaklega ekki þar sem skólinn er byrjaður, var farið með þessa vitneskju í tölvubúðaráp og skoðað hvað væri fýsilegur kostur fyrir litlu óheppnu bólustelpuna..
Nú á ég þessa fínu glænýju tölvu sem virðist vera alveg hinn ágætasti gripur og get bara vonað að hún endist aðeins lengur en hin.. sú entist í eitt og hálft en ábyrgðin var gild í aðeins 1 ár.. Auðvitað, en ekki hvað!!!..
Þeir í Nörda-deildinni sögðust líka geta tekið harða drifið úr ónýtu tölvunni og endurheimt öll skólaverkefnin, sem og myndirnar og alla tónlistina..
Það sem ég var ánægð með að heyra þessar fréttir..
Nördar eru æðislegir..
P.s.
Auðvitað glötuðust allar e-mail addressur þar sem ég nota sérstakt e-mail forrit, svo ef þið mynduð vera svo væn að senda mér e-mail til að ég geti endurheimt netföngin ykkar, þá væri ég óendanlega glöð..



