Síðustu dagar

janúar 26, 2007 at 1:44 am ()

Myrkrið er núna allsráðandi því öll ljósin í húsinu eru slökkt.. Það er einhver kósý-einsetu-stemning sem hefur heltekið mig og að því tilefni kveikti ég á einu kerti í stofunni, er að brenna reykelsi með yndislegum vanillu ilmi og hlusta á Neil Young syngja í sjónvarpinu, en það er verið að sýna eldgamla tónleika með snillingnum.. Ég er í vímu..
Kannski ég drepi á reykeslinu svo ég höndli þessa stemningu..

Stutt er eftir af þessu fríi frá skólanum en það hefur verið vel notað.. Fengum gesti um helgina, hef tekið heilan urmul af myndum, keyrt um götur bæjarfélaganna eins og vitlaus manneskja og alltaf eru kjölturakkarnir með í för, Lía og myndavélin, sem og sú þríleggjaða, en þrífóturinn fær að koma með svona stundum og stundum.. ef hann lofar að gera gagn..

Fór fyrir örfáum dögum með tíkina í hundagarðinn og hitti þar nokkra aðra hunda og eigendur.. Veit ég svo ekki fyrr en ég heyri fyrir utan girðinguna, að einhver kallar svo hátt að það var frekar eins og öskur en hátt kall, “Who is the Icelander, Where is the Icelander”.. við, þessar nokkrar hræður litum við og sáum þar ævafornan mann með gjammandi hund jafngamlan honum sjálfum.. Aftur öskraði hann, “Who is the Icelander?” og svo var spurningunni beint að mér, “Are you from Iceland?” Ég játti því nú stolt og spurði jafnframt hvernig þessi spurning hefði dottið inní kollinn á honum.. Ég veit svosem vel að ég tala ekki ensku eins og innfædd en gamli maðurinn var svo langt frá að ekki nokkur leið var að heyra í mér tala, svo var hann líka með heyrnatæki í eyrunum.. Hélt hann hefði kannski pikkað upp einhvers konar tíðni í rödd minni í gegnum heyrnatækin en fannst það frekar ólíklegt þar sem ég tala nú hvorki hátt né syng ég óperutóna þegar ég tala..
Auðvitað var ég búin að gleyma að við höfðum límt límmiða með íslenska fánanum á afturrúðuna í bílnum, en hann stóð í bifreiðastæðinu dálítið frá hundagarðinum.. Svo þar var skýringuna að finna..
Þessi gamli maður er semsagt frá Danmörku en hefur verið hér búsettur i nokkra tugi ára.. Við ræddum heillengi saman og réðst hann á mig þegar ég kveikti mér í sígarettu og sagði þetta vera óþvera sem ég ætti að gefa upp á hilluna.. hann sagðist þess fullviss að hann hefði verið löngu kominn undir græna ef hann hefði ekki hætt þegar hann var 35 ára en hann var 70 og eitthvað ára.. svo sagðist hann líka hafa misst konu sína fyrir 10 árum síðan og ég ætti bara að hætta þessu.. Ég vottaði honum auðvitað samúð og spurði hvort það hefði verið bölvaður krabbinn sem hafi tekið hana en nei, það var bara ósköp venjulegt hjartaáfall, en sama er, ég á að hætta og hananú..(sagði hænan og lagðist á bakið)..  Mér leist nú ekkert á þegar hann byrjaði svo að tala dönsku svona inní miðjum samræðum.. Hann talaði heila bók á dönsku og spurði svo, “forsto du?”.. en þar sem spurningin var það eina sem ég skildi af allri þessari langlöku var fátt um svör – eina það sem ég gat stamað út úr mér var “lidt”.. og hann, “Ha” og ég aftur “LIDT” en aðeins hærra í þetta skipti og beint í heyrnatækin.. svo hló hann..
Við spjölluðum saman lengi, lengi í viðbót en gamli rakkinn hans var endalaust gjammandi svo hann fékk örfá spörk í rassinn fyrir vikið.. Þessi maður er ofsalega hár og með grófa andlitsdrætti.. risavaxið nef og nappaði ég mig óvart á því að stara á nefið á honum því 2 þykk og óralöng nefhár stóðu langt út í loftið og bifuðust aðeins í gjólunni sem var.. Það var ekki falleg sjón..
Við kvöddumst svo eftir að hafa rætt meðal annars um sjálfstæði landsins mín,  hve Danmörk er gamaldags og breska landgönguliða, en hann hélt að Clarence væri breskur landgönguliði þegar ég sagði honum að hann væri hermaður..

Alltaf gaman í hundagarðinum..

Nú eru tónleikarnir með Neil Young búnir og ég orðin sybbin..

Kveð ykkur með mynd sem ég tók í gær af fallegu sólsetri á Bluff Point hér í Groton..
Sunset in Groton

Permalink 15 Ummæli

Allt að gerast

janúar 12, 2007 at 2:12 pm ()

Ég bara hreinlega get ekki fest mig og einbeitt mér við lærdóminn.. þarf aldrei að gera eins mikið og akkúrat þegar ég er að vinna í lokaverkefnunum..
Nú er síðasta vika þessara tveggja kúrsa svo þónokkur skriffinska vill fylgja..

Hér hefur allt leikið í lyndi, lífið verið yndislegt og allt einhvern veginn gengið upp..
Fórum fyrr í vikunni til að breyta þessum bráðabirgðastatusi á græna kortinu mínu; þar sem ég er búin að vera hér í rétt tæp 2 ár, er það kort sem ég er með að renna út svo nú er von á fullgildu grænu korti.. Svo nú verð ég fullgild lögleg geimvera (legal alien).. Lenti reyndar í smá rimmu við stúlku sem þarna vinnur, hún kallaði mig lygara svona óbeint.. ég þurfti nefnilega að fylla út umsókn, þar sem nafn, augnlitur, hárlitur, hæð og þyngd o.s.frv. þarf að koma fram.. fór svo með þennan útfyllta blaðasnefil til stúlkunnar og sagði hún að augu mín væru ekkert blá heldur græn á litinn!!!  Ég maldaði aðeins í móinn og sagðist hafa verið með blá augu í öll þau 33 ár sem ég hef lifað og fyndist ólíklegt að þau hefðu breytt um lit nú í nótt.. Hún hafði yfirhöndina þar sem hún fékk eina samstarfsstúlku í lið með sér og sú sagði augu mín einnig vera græn..
Ég fussaði og fussa enn, en þetta var óvinnanlegt stríð þar sem þær voru fleiri í hennar liði.. svo kunni ég nú ekki við að fara að stofna til slagsmála inn á svona stofnun.. ég veit að þá hefði ég borið sigur úr bítum.. ;)
Góðu fréttirnar eru alla vega þær að nú þarf ég ekki að óttast að vera hent út úr landinu í bráð, nema geimverukortið verði borið saman við augun á mér..

Við hringdum í Walter Reed frjóvgunarstöð í vikunni, en það er hersjúkrahús sem er staðsett í Washington og sér um glasafrjóvganir fyrir fólk í hernum.. Viðmótið var nú ekki upp á marga fiska svona í byrjun samtalsins, en þegar við fengum að tala við yfirmann þeirrar manneskju fóru hlutirnir að gerast.. Við fáum semsagt sendan einhvern bunka af pappírum sem við þurfum svo að fylla út og senda til baka.. Þar mun umsókn okkar vera tekin fyrir og svo (vonandi) verður haft samband við okkur aftur og við beðin um að senda til þeirra allar læknaskýrslurnar sem til eru á lager hjá okkur.. Sá bunki er alls ekki svo lítill skal ég segja ykkur..
Ég er vongóð og þori nú í fyrsta sinn að gleðjast lítið eitt og finnst að loksins, kannski, hugsanlega sé röðin komin að mér..

Í vikunni fékk ég líka sent mitt fjórða verðlaunaskjal úr skólanum..

Lífið er gott..

Græneyga geimveran biður að heilsa að sinni  og er meira en sátt við nýja árið..

Permalink 21 Ummæli

Heimkoman

janúar 7, 2007 at 11:51 am ()

Erum nú komin heim aftur eftir yndislegan tíma með fjölskyldunni og ánægjulega jólahátíð á Íslandi.. Það verður vart betra en sem var..
Mætt var í jólaboð eftir jólaboð og þó ég hafi ekki stigið á vigtina, finn ég á buxum þeim er ég klæðist, að undir húðinni á slöppum maganum leynist þó nokkur varaforði af flatkökum með miklu smjöri og alvöru hangiketi.. Svo ekki sé minnst á Nóa konfektið allt saman..

Ég verð að segja að ég var pínu svekkt að dag eftir dag var bandbrjálað rok og rigning þessa fyrstu daga eftir að við lentum.. ég hafði hlakkað svo til að sjá fallegu norðurljósin okkar og langaði svo að ná nokkrum myndum af þeim.. Það var ekki fyrr en á 3ja degi eftir áramótin, þegar við vorum á Heiðarveginum á leiðinni til Kristínar sys og Tryggva í Keflavík, að við sáum þau dansa fallega fyrir ofan okkur í loftinu.. Við ókum inn á gamla Rockville afleggjarann (þar sem Byrgið var) og lögðum bílnum.. Tók upp myndavélagræjurnar, kom þrífótinum fyrir og festi myndavélina á.. ég var rétt búin að setja rétta stillingu á myndavélina þegar norðurljósin hurfu og létu ekki sjá sig meira það kvöldið.. ég var sorrý, svekkt og sár og er enn..
Alltaf var ég líka á leiðinni að fara til að taka myndir af Wilson Muuga skipstrandinu, en eins og allir muna, þá strandaði skipið við Hvalsnes þann 19. des.. Úr því varð þó ekki fyrr en 4.  jan, í mikilli rigningu og pínu þoku.. ég var alltaf að bíða eftir góða veðrinu og sólinni en svoleiðis veðurlag lét ekki sjá sig.. jú, reyndar lýg ég, það var ágætisveður um áramótin en þá var ég ekkert á leiðinni út á strandstað..
Það var alveg ótrúlegt og gaman að sjá alla traffíkina um Stafnesveginn á meðan við stoppuðum heima hjá mömmu og pabba, en ég held að hálft Ísland hafi gert sér ferð til að sjá skipið standa þarna svona nálægt fjöru.. Yfirleitt er nú ekki mikil umferð í Sandgerðinni en þetta sló líklega öll met..

Ameríka tók ansi vel á móti okkur, funhiti svona í byrjun ársins eða 16 gráður og var hitamet sett í gær hér í Connecticut, eða 20 um gráður.. Þetta þykir hið einkennilegasta hitastig að sögn sérfræðinga og er víst sérdæmi að svona heitt sé í janúar..  Ég get ekki kvartað og líst bara ansi vel á þetta allt saman, enda er ég ennþá aum og pínulítið marin eftir að hafa verið slegin fast utanundir af íslensku roki og rigningu í samanbland..

Við sóttum Líu eldsnemma á laugardagsmorgun og var ekkert smá kátt í höllinni þegar hún kom heim.. Þeir voru rennblautir kossarnir hennar og svo heyrðist smá væl á milli þeirra.. Mér heyrðist hún vera sátt við að vera komin heim.. hún kom heim með rosa fallegan klút um hálsinn og sagðist hafa fengið hann í jólagjöf frá starfsfólki hundahótelsins, hún fékk líka tösku merkta hundahótelinu og nafni sínu.. Svaka flott og ég sátt við að hún skuli líkjast mömmu sinni svona í töskudeildinni.. nú getum við mæðgurnar kannski farið saman í veskjaleiðangra í framtíðinni..
Hún fékk líka jólamatinn á jóladag.. Eldabuskan á hundahótelinu gerði sér lítið fyrir og eldaði kalkún á línuna og sátu ánægðir hundar til borðs og gæddu sér á risakalkún og kartöflum með..  
Án gríns, þá var í alvöru eldaður kalkúnn fyrir hundana á jóladag..
Þetta er æðislegt hundahótel..

Við erum rosalega ánægð með heimsóknina en hefðum viljað hafa miklu meiri tíma..
Það virðist vera alveg sama hversu vel maður skipuleggur dagana, maður virðist aldrei hafa tíma til að gera allt það sem mann langar til.. Það eru alltaf einhverjir sem maður hittir ekki og einhverjir sem fá ekki heimsókn.. Alveg hundleiðinlegt og stundum skammarlegt, en það er þetta með tímann..

Permalink 9 Ummæli

2007

janúar 3, 2007 at 4:02 pm ()

Langar að nota tækifærið til að óska ykkur öllum gleðilegs árs og þakka fyrir samfylgdina á þeim liðnu og sérstakar þakkir fyrir allar góðu kveðjurnar sem þið hafið skilið eftir..
Ég veit svosum að kveðjan kemur örlítið of seint en nánast enginn tími hefur verið til að vera á netinu.. hef bara farið á netið til að vinna í skólaverkefnum en annars hefur ekki verið kveikt á tölvunni..

Happy New Year

Jólaheimsókninni fer nú að ljúka, en við munum fljúga út nú á föstudag.. Hefði viljað hafa miklu meiri tíma til að hitta alla og alla, en mestur tíminn hefur farið í jólaboð og aftur jólaboð.. Svo enn og aftur verður maður að biðjast afsökunar og kenna of skömmum tíma um..

Ég bið að heilsa þar til ég verð komin á ameríska grund..

Permalink 1 ummæli