Gleðileg jól

desember 24, 2006 at 12:58 pm ()

Kæru vinir nær og fjær,

mínar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár, hlakka til að heyra frá ykkur og eyða með ykkur nýja árinu.

Jólakveðja,
Linda

Permalink 10 Ummæli

Oohh..

desember 19, 2006 at 11:59 am ()

Flugvélin er í seinkun.. aarrrrggghhhhhhh!!!!

Permalink 2 Ummæli

80’s

desember 18, 2006 at 12:15 pm ()

Hér var aldeilis fjör á bæ á laugardagskvöld.. Húsið fylltist af fólki og allir gæddu sér á Dominos Pizzum.. Þeim var svo skolað niður með örlítið áfengum drykkjum, nema ég fékk mér kók.. ég hef enn ekki lært að drekka áfengi með mat og finnst það bara vont.. má ég þá frekar biðja um kók með klaka.. 
Þá var tekið fram spilið Name That Tune, en það er leikur þar sem maður þarf bæði að spila eins og venjulegt borðspil og að horfa á DVD til að geta svarað spurningum um tónlist frá áttunda áratugnum.. Mikið fjör og mikið gaman.. Ekki skemmir stórkostleg hárgreiðslutískan frá þessum tíma þegar maður horfir á DVD diskinn, og fatnaðurinn yfir höfuð.. Ótrúlegt að mér hafi einhvern tíma fundið þessi tíska smart.. Túberað hár og síður, fléttaður lokkur,  ennisband, grifflur og legghlífar, vængjapeysur og “kúka”buxur.. og helst í neon grænu, gulu eða bleiku.. Þvílíkt og annað eins gangandi tískuslys sem maður var.. En að fatatískunni frátalinni þá var þessi áratugur í sambandi við tónlist einn sá skemmtilegasti, að mér finnst.. þessi tónlist er ennþá í miklu uppáhaldi hjá mér og verður sennilega þar til ég er öll..
Þess vegna er svo skemmtilegt að spila þennan leik, því maður fær áratuginn alveg beint í æð og minningarnar hellast yfir mann..
Það sem var gaman hjá okkur þetta kvöld og það sem var hlegið.. langt síðan ég hef fengið illt í kinnarnar og tak í magann af hlátri..

Eftir nokkrar umferðir af þessum leik var tekið fram hið sígilda Pictonairy spil þar sem strákarnir voru á móti okkur stelpunum.. Þá var ekki minna hlegið og stundum lá við gráti af hlátri..
Gleðinni lauk ekki fyrr en um hálf fjögur um nóttina, en þá voru líka allir orðnir þreyttir og hættir að þurfa að pissa á tíu mínútna fresti..

—oo0oo—

Mikil spenna er nú orðin hjá okkur að fara heim.. ekki nema einn dagur í brottför..
Aumingja Lía mín verður ein og án fjölskyldunnar um jólin.. hún ætlar að vera á 5 stjörnu hundahóteli á meðan og ég get ekki annað en barið sjálfa mig fyrir verknaðinn.. finnst ég svo ljót og eigingjörn að þurfa að skilja aumingja stelpuna mína eftir.. Ég sé hana fyrir mér aleina í búri á aðfangadagskvöld á meðan ég og Clarence sitjum við drekkhlaðið veisluborðið og gæðum okkur á..
Oohhh.. greyið litla skottið mitt.. og ekki segja við mig, “Linda, ertu eitthvað klikk?? hún er bara hundur”.. Fyrir mér er hún miklu meira en hundur og stundum hagar hún sér alls ekki eins og hundur, heldur eins og lítið barn.. Það vita þeir sem hafa séð hana..

Það þýðir víst lítið að væla yfir því, miðarnir eru tilbúnir og flogið á morgun..
Til Íslands skal haldið.. 
 

Permalink 5 Ummæli

Made it!!

desember 13, 2006 at 1:08 pm ()

“You’ve Passed my Friend” sagði hann eftir að ég lagði í stæðið og hafði drepið á bílnum.. svo ræddum við svolítið meira á meðan við sátum enn í bílnum..

Ég sumsé tók ameríska bílprófið í gær og náttúrulega rúllaði því upp.. (segi það eins og það hafi ekki verið neitt mál)..
Ég var svo kvíðin að ég veit að þið trúið því ekki.. Það lá við alvarlegum niðurgangi af stressi þessa daga rétt áður.. Ég var búin að gera svo mikla “grýlu” úr þessu prófi að það var engu lagi líkt.. Þorði ekki einu sinni að segja frá því að ég væri að fara í bílpróf ef ske kynni að ég myndi nú falla.. Bara örfáar manneskjur vissu af því..

Það vildi svo vel til að maðurinn sem fór með mig á rúntinn í ökuprófinu var áður rannsóknarlögreglumaður en er nú kominn á eftirlaun.. við ræddum um fjöldamorð og raðmorðingja, yfirheyrslur í fangelsum, mismunandi byssur sem lögreglan notar, Víetnam og hinar ýmsu rannsóknaraðferðir við mismunandi aðstæður á glæpavettvangi..
Ég veit svei mér ekki hvort þessi maður hafi yfir höfuð verið að fylgjast með aksturslagi mínu, alla vega leið mér vel og við ræddum um allt annað en umferð og góðakstur..

—–

Nú fer alveg að koma að heimför svo nóg er um að vera að undirbúa.. rúnta, klipping, rúnta, skrifa jólakort, rúnta, klára jólagjafirnar, rúnta meira og svo aðeins meira.. Reyni líka að troða skólaverkefnunum þarna inn á milli.. ;) 

Ég ákvað að prófa að hafa tónlist á síðunni, þar sem stjórnendur WordPress.com bjóða okkur notendum sínum nú uppá svoleiðis góðgæti.. svo núna getum við notið að hlusta saman á ljúfa tóna Violent Femmes..

Permalink 17 Ummæli

íslenskt, já takk..

desember 9, 2006 at 11:20 am ()

Er búin að vera á kafi í skólavinnu og því lítill tími til nokkurs annars.. 

Hef enn ekki klárað að kaupa jólagjafir, er ekki byrjuð á að skrifa jólakortin og rétt kemst í göngutúra með Líu litlu..
Ég er svo óskipulögð að það hálfa væri nóg.. Þyrfti að taka námskeið í að skipuleggja sjálfan mig til að læra að forgangsraða hlutunum..

Í gær var hér sá kaldasti dagur sem af er vetri, -5 og bölvað rok í samanbland.. Nístingskuldi en samt glennti sólin sig eins og hún hafi haldið að það væri hinn heitasti sumardagur..  Ég féll fyrir blekkingunni og fór í smá göngu með tíkina.. Kom heim með bláa vör og skjálfandi bein og náði ekki hrollinum úr mér fyrr en löngu, löngu seinna..
Ég hafði svosem gott af þessu en nú þarf ég að brúka varasalva og það mikið af honum.. Bláminn fór nú af aumingjans vörunum en skildi eftir sig heiftarlegan þurrk..

Í fyrradag á meðan ég sat við tölvuna í eldhúsinu og pikkaði inn orð fyrir miðannarverkefnið mitt, var mér litið út um eldhúsgluggann og var líkt og skýin loguðu rétt á meðan sólin settist.. Æðislega falleg sjón og auðvitað gat ég ekki annað en fest atburðinn á filmu..
Wednesday afternoon
Þetta er útkoman – fór bara út á stétt fyrir framan hús og lyfti myndavélinni.. enda eru allt of mikið af rafmagnslínum inn á til að trufla.. en hvað um það, sólarlagið náðist þó..

Nú eru bara nokkrir dagar þar til við leggjum af stað heim, ekki nema 10 og er það einmitt ástæðan fyrir að ég varla get einbeitt mér að heimanáminu.. Ég hlakka til eins og litlu barni hlakkar til jólanna.. Síðustu jól voru ekki sérlega jólaleg og tók ég þá ákvörðun að halda ekki aftur amerísk jól.. Það vantar allan hátíðleika og allt er eins og bara hversdagsleikinn.. eini munurinn er að hversdagsleikinn er skreyttur jólaljósum..
Héðan í frá verður það íslenskt, já takk.. Hvort heldur það verður hér í Ameríku eða heima á Íslandi..
Ísland, best í heimi..

Setti inn nokkrar myndir í hitt myndaalbúmið, en þær eru frá heimsókn þeirra mæðgna og Hönnu minnar hingað til mín..

Eigið góða helgi..

Permalink 4 Ummæli

Next page »