Huhh!!
Mikið er ég orðin þreytt á þessari þögn sem virðist hafa yfirtekið síðuna mína.. hef varla tölu á hversu oft ég hef byrjað að skrifa en stroka allt út jafnóðum.. ég þjáist af einhverri hinni mestu ritstíflu sem sögur fara af.. orðin virðast bara flækjast einhvern veginn saman og fyrir hvort öðru og ekkert nokkurt vit er í setningunum.. svo ég tali nú ekki um málsgreinarnar..
En þögnin er ekki það eina sem ég er orðin þreytt á.. Ég er líka orðin verulega þreytt á að heyra hversu mikill vitleysingur ég er.. af einhverjum ástæðum halda sumir, af því að ég er 33ja ára og barnlaus, að ég hafi engan grun út á hvað lífið gengur og eigi helst ekkert að vera að opna á mér þverrifuna um málefni er varða börn, uppeldi og vandamál er þetta kann að varða.. þau eru ekki svo ófá skiptin sem ég hef fengið því kastað framan í andlitið að ég muni skilja allt þegar ég eignast barn sjálf.. þá á ég víst að upplýsast alveg svakalega um tilgang lífsins og hele klapped..
Ég hlýt að hafa verið veik þann dag sem skólakennarinn talaði um að þegar konur fæða börn, að þá í leiðinni á sér stað einhvers konar hormónabreyting í heila þeirra sem verður þess valdandi að viskubrunnur alheims skýtur þar rótum.. og við hinar barnlausu vitleysingarnir eigum að láta fara eins lítið fyrir okkur og hægt er, því það er hvort sem er ekkert af viti sem kemur uppúr okkur..
Stundum kvarta konur sem eiga börn og heyri ég þá iðulega hversu erfitt lífið sé.. það er enginn tími til að gera nokkurn skapaðan hlut, húsið á hvolfi, barnagrátur, alltaf að elda, endalaus þvottur, föst heima, ekkert samlíf með eiginmanninum, kemst ekki í bíó, út að borða, í ferðalög og ég veit ekki hvað og hvað.. Svo þegar sú með loftið á milli eyrnanna kemur með uppástungu eða tillögu heyrir maður alltaf það sama.. Æ, þú skilur þetta allt þegar þú átt sjálf barn!!
Og hvað ef ég mun aldrei eignast barn sjálf?? á ég t.d. að hætta í þessu námi af því að ég hef hvort sem er engan skilning á málum er varða barnafjölskyldur?? Má ég ekki tjá mig um leikskólakennara eða barnaskólakennara af því að ég á ekki barn??Ég skil ekki meir og veit ekki meir.. Kannski ekki skrítið því ég á ekkert barn..
Ohhh.. af hverju er lífið svona ósanngjarnt??
—–
Jæja, nóg komið af sjálfsvorkunn og væli..
Nú er bara einn og hálfur dagur þar til “The Mæðgur” koma í heimsókn..
Amma, mamma og Gugga frænka eru rétt ólentar svo tilhlökkunin er orðin ægileg.. Ekki síst vegna þessa að amma hefur aldrei komið áður til Ameríku.. Það verður gaman að sýna henni, og þeim, hvernig litla barnabarnið býr í útlandinu.. fara með þær í skoðunarferð, í örlítinn versling og út að borða og eitthvað fleira.. Svo veit ég að hún á eftir að verða ástfangin af litlu Líu minni.. Hún á það til að bræða þá sem ná við hana augnsambandi, þessi elska..
Nú næstkomandi fimmtudag er Thanksgiving hátíðin, svo ætli ég verði ekki að henda eins og einum risastórum fugli inn í ofninn, svona til að lofa ferðalöngunum að smakka á amerískri þakkargjörðarmáltíð ‘a la Linda’.. þarf reyndar að komast yfir einhverja góða uppskrift fyrst svo ég geti farið og verslað öll herlegheitin fyrir veisluna.. Hef ekki keypt einu sinni kalkún ennþá, því plássið sem hann tekur er ekkert smávægilegt.. Þó ég sé nú með þokkalega stóran ísskáp þá rúmar frystihólfið ekki alveg fugl á stærð við 15 kjúklinga..
Ef einhver lumar á vænlegri kalkúnauppskrift, þá endilega deilið henni með mér..
Ég vona að mér sé fyrirgefið fyrir vælið í byrjun.. veit vel að ekkert illt er meint með svona tali, en mikið verður það samt leiðingjarnt til lengdar.. Ég á svo sem ekki að láta þetta hafa áhrif á mig en stundum verður maður bara aðeins að fá að pústa og hósta..
Þó að ég eigi ekki barn, ætla ég samt að láta fylgja mynd af mér og Líu minni, sem var tekin fyrir örfáum dögum síðan er við fengum okkur göngutúr í góða veðrinu..
Og jebb.. you better believe it.. hún er í pilsi og stígvélum.. Hverjum hefði dottið í hug að ég myndi kaupa mér pils svona á gamalsaldri!!
Langt um liðið
Það er nú meira hvað maður þykist vera upptekinn – þykist rétt svo hafa tíma til skrifta..
Það er nú heldur betur mikið búið að gera frá síðasta pósti.. Ljúka skóla – heimsókn lokið – Hrekkjavaka – matarboð -niðurstöður prófanna komu í hús og nýtt áhugamál.. svo, eins og það sé ekki nóg, þá er ég dottin í lestur 2ja bóka líka..
Hverjum hefði dottið í hug að ég myndi loksins finna mér áhugamál fyrir utan löggustarfið sem ég gegndi hér fyrr á öldum..
Hanna mín kom í heimsókn og dvaldi hér í nokkra daga og áttum við frábærar stundir saman.. Margar verslanir voru heimsóttar en einnig fórum við í dagsferð til New York.. Við fórum nú ekki einar í Stóra Eplið, því einnig voru með í för Inga, íslensk vinkona mín hér í Groton, og íslensk vinkona hennar sem einnig var í heimsókn.. Þangað er alltaf gaman að koma og sérstaklega þegar maður getur talað íslensku og gert grín á íslensku, og án þess að fara út í einhver smáatriði þá er alveg frábært að þurfa að hafa engar áhyggjur að næsti maður heyri eða skilji mannsins mælt mál.. Þó maður tali nú oft í símann heim, þá er bara allt annað að geta horft á vinkonu sína og talað á sínu móðurmáli, ef þið skiljið hvað ég meina..
Skólaverkefnunum og prófunum var rumpað af og náðist að skila inn á tilsettum tíma.. er frekar sátt við útkomuna, hélt að lokaritgerðirnar væru ekki nógu góðar en allt kom fyrir ekki.. Lauk kúrsunum með A í einkunn.. gæti svosem ekki beðið um hærri einkunn og ætti hana heldur ekki skilið.. Maður uppsker víst ekki meir en maður sáir..
—–
Ég smitaðist af alvarlegri myndavélabakteríu um daginn (hún tekur það til sín sem smitaði mig) og losnaði ekki við hana fyrr en eitt stykki glæný myndavél var komin í mína eigu.. Gripur þessi er einmitt nýja áhugamálið.. Ég æði nú út um allar jarðir og smelli af á öllu því sem mér þykir fallegt og vert þess að taka myndir af..
Ég þykist núna hafa afar gott auga fyrir fallegu myndefni og geng um Connecticut fylki eins og takkaóður fjandi.. Ég hef nú aldrei haft auga fyrir því hvað er fallegt og hvað er miður fallegt, en mikið rosalega er gaman að smella af á nýja gripinum.. Mér finnst allar myndirnar svo fallegar þegar ég skoða þær í vélinni en svo eru þær ekkert svo fallegar þegar ég hef hlaðið þeim inná tölvuna.. Á mikið eftir að læra ennþá á myndavélina en það hlýtur að koma með tíð og tíma..
—–
Blómið mitt fagra virðist ekkert láta sér skipta máli hver árstíminn er, heldur bara áfram að springa út.. það hefur aldrei verið svo fallegt eins og það er einmitt núna og ég skil ekkert hvað er að gerast.. en þessar myndir voru teknar af því núna í dag..
Langar að láta fylgja hér nokkrar myndir úr nýju myndavélinni..
Er ekki allt í lagi að vera smá montinn á sinni eigin síðu??

Aumingjans litla dúllan mín hefur þurft að pósa og pósa eins og hún sé America’s next topmodel..

Þessi mynd er tekin á Bluff Point nú í fyrradag.. Mér fannst svo agalega fallegt sólsetrið þegar við fjölskyldan fengum okkur göngutúr við sjóinn..

Hérna erum við í hundagarðinum.. Martin vinur okkar og hundapabbi vildi endilega fá að máta myndavélina..
Nú er bara að halda áfram að ýta á takka og læra þannig á tæknilega myndavélina.. útkoman hlýtur að verða einhver – þangað til verðið þið bara að sjá svona viðvanings myndir því þær eiga ábyggilega nokkrar eftir að birtast hér á síðunni..



