Alveg lens

september 25, 2006 at 12:15 pm ()

Það eru hin ýmsu hroðaverk sem maður heyrir um héðan úr Ameríkunni.. Kannski þessar ljótu sögur komi aðeins meira við kvörnina í mér nú í dag heldur að það ætti kannski að gera, en ég hreinlega get ekki annað en fyllst viðbjóði og illsku..

Fyrir um rétt tæpum mánuði gerðist sá atburður að ungabarn fannst í bílhræi við ónotað hótel hér í bæ..  Bílrúðan, farþegamegin á bílnum, hafði verið brotin og var barninu, sem var vel pakkað inn í teppi, komið vel fyrir í farþegasætinu..  Neyðarlínunni barst svo nafnlaus símhringing eldsnemma um morgun þess efnis að einkennileg hljóð bárust frá bílastæðinu við hótelið og gat konan sem hringdi, ekki gert sér grein fyrir hvort um barnagrát væri að ræða eða hvort þetta væru óhljóð úr einhverju kattarkvikindi..  Lögreglan fór á staðinn og fann sumsé ungabarn í umræddri bifreið..
Barnið var sent til skoðunar á sjúkrahús í næsta bæjarfélgi og kom í ljós að þetta var drengur og var innan við vikugamall og virtist vera við góða heilsu.. Næsta sem lögreglan gerði var að setja upp vegatálma út um allan bæ til að sjá hvort einhverjir vissu eitthvað og til að reyna að finna móðurina.. FBI var einnig sett í málið og sáu þeir um að banka uppá hjá fólki sem var nýbúið að eignast börn.. En allt kom fyrir ekki..
Nokkrum dögum seinna var hljóðupptakan frá neyðarlínunni spiluð í sjónvarpsfréttum til að sjá hvort einhver myndi kannast við röddina ef ske kynni að það væri hugsanlega móðirin.. Kona ein hringdi þá í lögregluna eftir sjónvarpsfréttirnar og hélt sig þekkja umrædda rödd og gaf upp nafn og heimilisfang, en hún hélt röddina eiga við samstarfskonu sína..
Til að gera langa sögu stutta kom í ljós að konan hafði rétt fyrir sér, þetta var samstarfskonan..
Konan sú, er 27 ára gömul, gift og á 2 börn fyrir.. hún er líka hermaður og er að vinna hér á varnarsvæðinu..
Börnin 2 voru tekin af henni meðan á rannsókn stóð en hún bar fyrir sig peningaleysi og sagðist ekki geta séð um annað barn og því hafi hún gert það sem hún gerði..
Hér í Connecticut-fylki eru svokölluð verndarhús eða “Safe Haven”, en það þýðir að ef þú sérð þér ekki fært um að sjá um barnið þitt, máttu fara með það á sjúkrahúsi, á lögreglustöð, á slökkvistöð eða við kirkju og skilja það eftir og engar spurningar eru spurðar.. Þaðan fer barnið svo til barnanefndaryfirvalda og svo til ættleiðingar..
En þar sem þessi móðir kaus að fara hina óhefðbundnu leið og á skjön við lögin, gæti hún átt yfir höfði sér 15 ár í fangelsi.. Eða það var alla vega talið..
En allt sem hún fékk var smá skammskamm.. Hún er nú komin með öll börnin sín aftur, byrjuð að vinna og þarf að mæta í ráðgjöf í einhvern x tíma.. Það er allt og sumt..
Hér er linkur inn á fréttaflutning um málið..

Í Missouri-fylki gerðist það svo fyrir um rétt tæpri viku að kona ein bankaði uppá hjá annarri konu sem átti 12 daga gamalt barn.. Sú fyrrnefnda var ekkert að tvínóna við hlutina heldur réðst að hinni með hníf og skar hana á háls og stal barninu hennar.. Hún fannst nú svo örlitlu seinna og barnið líka.. Móðirin lifði líka árásina af..
Hér og hér eru linkar inn á þessa frétt..

Svo er síðasta fréttin og sú versta sem gerðist nú um helgina í Illinois-fylki, en þar var ólétt kona, gengin 7 mánuði, skorin á kviðinn (þeir halda jafnvel með skærum), barnið tekið úr henni og 3 öðrum börnum hennar svo rænt.. Mikil leit var gerð að börnunum 3 en þau fundust nú á laugardaginn.. Þeim hafði verið drekkt og fundust inn í þvottavél og þurrkara inní íbúðinni þar sem móðir þeirra bjó.. Móðirin er talin hafa blætt út og ófædda barnið dó líka..
Búið er að handsama konuna sem framdi viðbjóðslegan verknaðinn en sú mun hafa verið góð vinkona móðurinnar..
Hér og hér eru linkar inn á þá frétt..

Ég veit svei mér ekki hvað er að gerast í huga þessara kvenna sem bera svo litla virðingu fyrir mannslífinu.. Ég fyllist óghug og mér er illt langt inn að hjarta

Permalink 11 Ummæli

Hversu ljúft..

september 22, 2006 at 2:20 pm ()

Engar áhyggjur.. þetta er ennþá hún ég.. langaði bara að klæða síðuna í haustbúninginn þar sem haustið er í nánd..

Mikið væri gaman ef maður gæti með einu músarklikki skipt um útlit.. að maður gæti bara klikkað á fallega hárgreiðslu, flottan andlitsfarða, hot body og hátísku fataleppa og svo PÚFF – Glæsileg þú tilbúin í nýjan dag..
Aldrei þyrfti maður að hafa áhyggjur af stóra, krumpaða maganum sínum, strípum með rætur niður í helvíti, ofþvegnum fatnaði og andliti með allt of stórum graftarbólum, frunsum og baugum..

Hversu ljúft væri ekki lífið..

En þar sem ég neyðist ennþá að búa í raunveruleikanum verð ég að hringja hið snarasta í Melissu hárgreiðslukonu og panta tíma.. ég er, í þessum skrifuðum, vaxin allt of langt upp úr strípunum..  

Permalink 7 Ummæli

Bad hair day

september 20, 2006 at 7:03 am ()

Veit ekki hvað ég er að gera á fótum svona eldsenmma..

ég er búin að vera á undarlegu róli nú síðustu daga, vaka langt fram á nótt og vakna eldsnemma.. Er svo agalega þreytt á daginn en neita að leggja mig.. mér hefur alltaf fundist ég of ung til að mega taka “nappara”.. en nú er illt í efni.. ósofin og úrill, hvæsi ég orðið á alla báða fjölskyldumeðlimina og þau skilja ekki neitt í neinu.. reyna bara eftir bestu getu að vera ekki fyrir þegar tröllið fer af stað í æðubunugang sínum..

ég hef tekið inn nokkuð magn lyfja á þessu leiðindatímabili og ekki hjálpaði þegar ég byrjaði, eftir aðgerðina, að taka inn hormóna.. grætaðmorgni..
kannski gera þessir hormónar mér ekki neitt, þ.e.a.s. skaplega, en ég verð náttúrulega að hafa einhverju um að kenna.. get ekki tekið sökina á mig aleina þegar töfluboxið stendur þarna uppstillt við hliðina á verkjastillandi félögum sínum á borðinu og gjörsamlega býður uppá það að taka á sig sökina fyrir geðvonda mannveruna..

Nú heyri ég að kallinn er að koma niður til að fara í vinnu.. Ætli ég láti þá ekki staðar numið hér og reyni að finna einhver leiðindi til að kenna kallinum um..

08082006004.jpg
Fraulein Úrill kveður að sinni..

Permalink 11 Ummæli

Eftir aðgerð..

september 13, 2006 at 12:44 am ()

Það eru margar hinar undarlegustu hugsanir sem poppa upp í hugann þegar maður situr í biðherberginu í forljótum uppskurðarslopp einum fata og bíður eftir kallinu inná skurðstofu.. Kannski það hafi verið saltvatnslausnin sem var þrædd inn á æðina sem hafði áhrif á þessar einkennilegu hugsanir og vangaveltur, ég þori ekki að segja.. en hvað sem það var þá þori ég ekki einu sinni að hafa það eftir hér á alheimsdagbókinni.. svo skrítnar hugsanir voru það, og meira að segja þá komust sumar þeirra í orð og gat læknirinn ekki annað en hlegið sig máttlausan að vitleysunni.. 
Aumingja ég..

Mig langar að kynna ykkur fyrir Dr. Duleba.. Antoni J. Duleba, MD en hann er sá sem hefur hvað mest séð um mig og mín vandamál.. hann er einnig sá sem skar á mig 4 göt í gær og reyndi að gera mig að konu.. 
Eftir einn mánuð kemur í ljós hvort honum hafi tekist ætlunarverk sitt, en þegar hann opnaði mallann minn sá hann að vandamálið var örlítið stærra en haldið var í fyrstu.  

09122006001.JPG Þessi herramaður var hjúkkan mín á Yale sjúkrahúsi og var með rosalega flotta eyrnalokka.  Þeir glitruðu rosalega flott í samblandi við risastóra nálina sem hann stakk djúpt inní handlegginn á mér.. Sú tilraun til að þræða æðina á mér mistókst herfilega 09132006001.jpg og hér má sjá marblettinn eftir þá meðferð..  Þá var fundin önnur æð og loks gekk allt betur.. ég segi betur af því að pínan og verkurinn var ekki eins mikil og áður, en þegar svo loks rétt æð var fundin fóru einmitt þessar undarlegu hugsanir að læða sér inní kollinn..

09122006.JPG Hún var ofsalega lítil í sér á meðan hún beið eftir kallinu og trúði vart að ekki hafi liðið yfir hana þegar hún horfði á hjúkkumanninn þræða risanálinni inní handlegginn..

09122006002.JPG Hér er hún svo tilbúin í slaginn og nokkrum mínútum seinna var hún sótt og fylgt á skurðstofuna þar sem hún svo svaf djúpum svefni í nokkra klukkutíma..

Í dag var hún bara nokkuð brött og rólfær að mestu.. Engir svakalegir verkir, helst þegar ég tek lyfin sem ég fékk með mér heim, en eitthvert lyfið veldur mér hrikalegri ógleði.. Hvernig getur maður líka ekki fyllst ógleði þegar maður þarf að vera í þeim alljótustu sjúkrahúsnærbuxum sem sögur fara af.. Bara við að sjá þær fengi mann og annan til að kúgast..

Mig langar að þakka ykkur öllum kærlega fyrir alla tölvupóstana, kommentin og símtölin sem ég hef fengið í gegnum allt þetta vesen.. allt saman hjálpaði alveg miklu meira en heilan helling.. En nú fer ég alveg að hætta að skrifa um vandamálið endalausa og gefa ykkur þar með smá breik frá endalausum leiðindunum, sem hafa tekið allt of langan tíma.. Takk fyrir allt saman..
Kannski góðir hlutir fari að gerast eftir allt saman.. 

Permalink 14 Ummæli

Ramadan

september 10, 2006 at 11:52 pm ()

Er að reyna að teygja á síðasta kaffibollanum.. tými varla að kyngja.. Lækinirinn sagði nefnilega að ég ætti að fasta í 15 tíma fyrir aðgerðina á morgun..

Ég er kvíðin.. meira að segja dálítið hrædd..
þó veit ég varla hvað ég á að vera hrædd við því ég verð sofandi.. Ég tók loforð af 2 læknum, einum læknaritara, 2 sjúkraliðum og flestum vinum mínum að ég myndi sofa fast á meðan þeir væru að skera, pota og sauma.. Einnig var mér lofað að ég myndi vakna aftur..
Það er eins gott að loforðin standist..
Ég er kvíðin.. meira að segja dálítið hrædd..

Ætla að klára kaffibollann og fá mér svo einn til..
Ramadan hefst eftir 8 mínútur..

Permalink 10 Ummæli

Next page »