Helgin

febrúar 27, 2006 at 2:04 am ()

Þá er ískaldri helginni lokið.. Fimbulkuldi og glampasólskin hefur einkennt þessa síðustu daga og er varla að maður setji hundinn út að pissa.. Ekta íslensk gluggaveðurshelgi.

Þetta var eiginlega helgi sem kom pínulítið á óvart einhvern veginn.. við ætluðum bara að hafa það náðugt og dóla okkur eitthvað sjálf.. Clarence kom ekki heim fyrr en svo seint heim á föstudagskvöldið svo við ákváðum að taka laugardaginn bara í bílrúnt og fara bara einhvert sem hugurinn sagði okkur að fara.. það fór allt öðruvísi..

Vinir okkar frá New London, Matt og Cindy, birtust hérna rétt upp úr hádegi á laugardaginn og var mér snarað í úlpuna því Cindy vantaði að kaupa málningu í eitt herbergi í húsinu þeirra, en þau eru búin að vera að gera það upp síðan þau keyptu það fyrir nokkru síðan.. Skildist mér að Matt greyið væri ekkert of áhugasamur um litaval í herbergin, en hún smekkmanneskjan, gat engan vegið ákveðið.. Þetta var snöggafgreitt og málningin keypt um hálftíma síðar.. Það er svosem óþarfi að nefna að Lindan fékk að ráða..  Eftir það brunuðum við aftur frá New London og í Kohl´s hér í Groton til að skoða útsöluna hjá þeim.. Nóg var af varningnum en litlu var eytt.. Ég skal samt játa að ég kom ekki alveg tómhent heim – keypti bara pínulítið af einhverju..
Svo er líka bannað að koma tómhentur af stórútsölum.. Fann samt ekkert veski. Bölvað..

? meðan við Cindy vorum á okkar rúnti, hafði Stacy hringt heim og boðið okkur öllum að koma í kvöldmat.. stórglæsilegt matarboð, roastbeef með öllu tilheyrandi og örlítil sletta af rauðvíni.. Það rann ljúft niður – meina sko roastbeefið.. með rauðvíninu, eða bíðið við.. æji man það ekki lengur.. alla vega voru bæði rautt og svakalega gott – og runnu ljúft niður.. bæði tvö.. saman..

Það er kominn sunnudagur..
Clarence bauð elskunni að koma rúnt.. sunnudagsbíltúr, af því að ekkert varð úr því deginum áður.. Auðvitað þáði ég boðið, en bað hann að hinkra aðeins, því ég vildi klára að ganga frá þvottinum og setja svo í aðra vél.. Jújú, ekkert mál sagði kallinn..
Svo leiddi eitt af öðru, það þurfti aðeins að búa um rúmið, strauja skyrtu, þrífa baðherbergið.. og af því að ég var nú byrjuð að þrífa baðherbergið, var alveg eins gott að ég myndi nú bara þrífa hin 2 líka.. það tekur enga stund elskan mín, kem eftir smá..
5 tímum seinna, var orðið aldimmt úti og allt húsið orðið útúrskrúbbað..Mr. Clean og ég höfðum saman þrífið ískápinn, gólfin, og bara nefndu það.. og mig sem langaði svo á rúntinn..
Næsta helgi, skal fara næstu helgi..

P.S.
Ef þið, vinkonur mínar, fáið boð frá eiginmanninum um að taka einn sunnudagsrúnt, látið þá óumbúið rúm eiga sig..

 

Eigið góðan dag allir saman.. 

Permalink 3 Ummæli

Ótrúlegt

febrúar 24, 2006 at 1:49 am ()

Ég er í sjokki..  

Hér  getið þið skoðað..

Annars hafið bara góða helgi allir saman..

Permalink 6 Ummæli

Irma Rún

febrúar 23, 2006 at 12:57 am ()

Ég á litla frænku eina.. sú er nýorðin 2ja ára og þó hún líti út eins og engill í blómi þá er mér sagt að hún sé eins og versti skæruliði – dugleg með eindæmum.. (heimild: mamman og pabbinn)

?ður en ég flutti til Ameríku, var hún rétt nýfarin að standa upp með veggjum, borðum og öðru sem nálægt var.. Ekki stakt orð var farið að heyrast, þó vel heyrðist nú í henni.. hún kann sko alveg að öskra og láta vita að hún vilji einhvern ákveðinn hlut.. það hefur aldrei verið vandamál..

Ég hef fylgst með henni og fengið fréttir í gegnum netið, frá foreldrunum og ömmunni og afanum.. Ekkert virðist breytast í sambandi við öskrin þó nokkur orð hafa fæðst á liðnu ári.. Hún er jafnmikill skæruliði og kannski aðeins meira en það, því nú er hún farin að hlaupa út um allt hús, svo stofustáss og glingur var og er í stórhættu.. sem og litla systirin, sem er bara 10 mánaða gömul.. skilst að sú þurfi að hafa kodda- og púðavirki í kringum sig þegar eldri systirin er nálægt..

En hvað sem skæruliðanum í henni líður.. þá er hún alltaf jafn mikill engill í mínum augum.. svo falleg með stóru augun sín..

? morgun vorum við Kristín sys að tala saman á netinu, með myndavélina í gangi sem og hljóðnemann.. Þar var litla skotta að skoppast á rúminu, og auðvitað þar sem litla systirin sat - það endaði náttúrulega með ósköpum.. en það sem skipti máli í þessu samtali okkar, var að skæruliðinn talaði við mig.. Eitthvað sem hún hefur aldrei mátt vera að..

Hún bara heilsaði og hóf samræður við stóru frænku í útlandinu og sagði: “hæ Litta” og “hæ hæ hæ” og “é va í ba”.. bara eins og ekkert væri.. Litla frænka sem sagði varla mamma eða pabbi áður en ég fór í burtu..ég var meyr og vöknaði í augum aðeins meira að segja..

Ég reyndi að fá hana til að segja eitthvað meira, en það var of seint.. athyglin var komin einhvert allt annað..

 

IMG_0036 (Small).JPG
Irma Rún – Engilsásjónan

 


Irma Rún – Skæruliðahliðin

 Það er á stundum sem þessum sem mig langar heim.. bara rétt til að knúsast aðeins og kjassast og spilla..
 

Permalink 4 Ummæli

Dótakassinn

febrúar 21, 2006 at 10:58 pm ()

Vinkona mín ein og ég vorum að tala saman fyrir nokkru og voru nokkrar aðrar stelpur með okkur.. við vorum aðeins við glas og barst umræðan inn á þessar “leyndó” samræður sem oft vilja fylgja konum í glasi, ásamt stelpulegum hlátrasköllum og sameiginlegum klósettferðum..

Umræðuefnið var um leikföng.. 
Og ég er ekki að tala um neinn Bósa Ljósár karl eða Barbie dúkku.. heldur leikföng fyrir fullorðna.. ( og nú, áður en ég held áfram, ætla ég að biðjast hér fyrirfram afsökunar, ef ég mun særa blygðunarkennd einhvers með þessum pistli, því það er alls ekki meiningin)..

Jæja, nema hvað.. þær tala um þetta sem kitlar svo þarna og er svoooo gott, og hitt sem er alger himnasending en gallinn á því er að batteríið er alltaf búið svo fljótt.. Svo var það þetta gulglæra með kúlunum og eitthvað annað blátt með langa kitlinu.. og kremið með þessu bragði og hitinn sem kemur af hinu kreminu..
Ég verð nú bara að opinbera fávisku mína á þessu sviði og það fyrir framan ykkur öll, því ég hafði ekki hugmynd um hvað þetta eða hitt væri.. hvað þá þetta gulglæra eða bláa - og með löngu kitli.. hvað voru þær að tala um??
Það var ekki mikið innlegg sem ég færði inní umræðuna.. en það var lúmskt gaman að hlusta og hlægja með, því ímyndunaraflið var á fleygiferð get ég sagt ykkur..

Svo þegar umræðurnar voru ekki orðnar nóg, var ég drifin inn í svefnherbergi, ásamt hinum stúlkunum, þar sem skápur leyndarmálanna var opnaður, alveg upp á gátt.. ég hélt að það væri ekki mögulegt að fölna og roðna á sama tíma, en þetta augnablik tókst það á einhvern einkennilegan hátt..
Þarna inn í skápnum var allt sem hugsast gat og meira en það.. get svari´ða sko.. Sjálfsagt himnaríki leikfangaeigandans..
Þarna voru svo og svo margir ja.. þið vitið hvað, og í mismunandi litum og lengdum og breiddum.. kremin í litlum glerkrukkum var staflað upp á hvert annað og ég veit ekki hvað og hvað.. Ég þekki ekki einu sinni nöfnin á þessu til að deila með ykkur, hvað þá meir..

Svo kom spurningin.. “Linda, átt þú dótakassa??”

Hún var aumingjaleg á svipinn þegar hún svaraði: “n-n-ne-nei.. ég á bara eitthvað eitt blátt sem liggur voðalega einmana í pínulitlu skúffunni sem enginn veit hvar er”..
Og ég keypti það ekki einu sinni sjálf.. fékk það í gjöf þegar ég var gæsuð..

Ég var eiginlega orðlaus.. og fannst ég hafa misst af einhverju.. Af hverju virðast allir eiga svona mikið af leikföngum allt í einu?? Og er þörfin svona svakaleg til að krydda upp samlíf hjóna að þau sjálf eru ekki nóg..
Kannski er ég svona eftir á..

Ég á einn leikfélaga og hann gengur ekki fyrir batteríum.. Er mér miklu meira en nóg, svo er hann líka með 10 fingur..

Hvenær urðu kynfæri karlmanna barn síns tíma??  Mér er bara spurn..

Permalink 2 Ummæli

Tannlæknar sko..

febrúar 20, 2006 at 8:21 pm ()

Hvað er málið með tannlækna??

Um leið og maður er orðinn dofinn í kjaftinum, tungunni og lengst niður í tær, hjálparinn kominn með Nilfisk ryksuguna í kjaftinn og tannlæknirinn kominn með puttana og nefið upp í kok á manni, þá loksins þurfa þeir að hefja þessar líka hrókasamræður við mann..

“So, you come from Iceland, Linda?”
“Aha”
“And what did you do there?”
“I wah a holich ohhiher”
“You were what?”
“A holich ohhiher”

Hvað er málið?? skilurðu mig ekki maður??
I was a police officer..

P.s.
Ekki fara út í frostið að labba með hund, á meðan þú ert dofinn og með heitt kaffi í glasi..
það meiðir dofinn munninn..

P.s.s.
Myndir komnar inn..

Permalink 8 Ummæli

Next page »