New York

janúar 29, 2006 at 11:28 am ()

Kl. nákvæmlega 9:54 á mánudagsmorgun lagði lestin af stað til New York.. Við, fjórmenningarnir, settumst í þægileg sætin og létum fara vel um okkur í þessa rúma tvo tíma sem það tók að komast á áfangastað.. Guðrún var pínu stressuð, og ekki bara af því að hún var að fara í lest í fyrsta skipti, heldur líka af því að hún var að fara til New York.. ? stórborg þar sem endalaust er af sprengjuhótunum, umferðin brjálæðisleg og mannfjöldinn gífurlegur.. Þetta var stórt skref fyrir litla stelpu frá pínulitlu Sandgerði..

Lestin fór með okkur alla leið niður í miðbæ, eða “Penn station” eins og lestarstöðin er kölluð, og þaðan röltum við nokkrar götur og að hótelinu.. Ein lítil íþróttatöska var með í för, en við notuðum hana öll saman undir föt til skiptana.. Okkur var afhent herbergi á 25. hæð af 44 hæðum mögulegum.. Ég get nú ekki sagt að það hafi verið gaman að horfa niður á götu úr herbergisglugganum, óþægileg tilfinning sem greip mann og lappirnar urðu linar einhvern vegin..  

Eftir að hafa tékkað okkur inn á hótelið, var ekkert annað að gera en að hefjast handa og byrja á að skoða allt það sem New York hefur uppá að bjóða.. eða svona næstum.. alla vega verslanirnar..
Og það var labbað og gengið og labbað og gengið og svo labbað aðeins meira.. Litum inní flestar verslanir sem á vegi okkar varð, eiginmönnum okkar til mikils ama.. Fórum inn á Hard Rock til að fá okkur aðeins í gogginn og héldum svo áfram að skoða í kringum okkur.. Heimsóttum Madame Tusssaud, vaxmyndasafnið, þar sem ótrúlegar raunverulegar vaxmyndir eru af öllum mögulegum heimsþekktum persónum.. Ferlega gaman að fara þar inn og sjá þessar fígúrur, svo er líka draugahús þarna inni og lá við hjartaáfalli hjá Guðrúnu sys þegar við vorum þar inni.. Hún var æpandi, gargandi og gólandi frá því að við fórum inn fyrir svörtu tjöldin og þar til við fórum út á hinum endanum.. Ég grét úr hlátri á meðan.. Þvílík og önnur eins öskur.. thíhíhí..
Clarence lenti svo í sjónvarpsviðtali, þar sem hann var beðinn um að taka þátt í einhverju myndavéla-pixla-prófi.. held að hann hafi nú komið þokkalega út úr því þessi elska.. Svo héldum við göngunni áfram og var jafnvel inn í myndinni að fara upp Empire State Building.. en þegar við nálguðumst þá ágætis byggingu og sáum raunverulega hæð hennar, runnu á okkur tvær grímur.. Það var ekki glæta að við þorðum að fara þarna upp.. enda tók hún sig þokkalega vel út þarna á götunni og var það bara alveg nóg..

New York er borg sem aldrei sefur, hvort sem dagur er eða nótt, það er alltaf jafn bjart.. Sólargeislar ná ekki að snerta göturnar á daginn út af gífurlega háum byggingunum, og á kvöldin eru þessar sömu byggingar og götur upplýstar út af risastórum neonljósa-skiltum..
Mannfjöldinn og umferðin á götum borgarinnar er alltaf sá sami og sírenuvæl og bílaflautur óma í loftinu endalaust.. Lögreglumenn standa nokkrir saman á hverju götuhorni og eru til taks ef eitthvað bregður út af norminu.. Það fyllir mann ákveðnu öryggi að vita af þeim þar..
Kvöldin virðast vera tíminn fyrir hinar ýmsu furðuverur.. Því þá stíga þær fram úr holunum sínum og rölta um göturnar í furðulegum búningunum sínum.. Þarna var að sjá allt frá klæðskiptingum og upp í illa klæddar götumellur.. Ferlega gaman að fylgjast með þessu fólki, og ekki skemmdi fyrir að sjá alla ferðamennina taka myndir í gríð og erg af þessum kynjaverum..

Þriðjudagur var að kveldi kominn og sömuleiðis kominn tími til að fara aftur á lestarstöðina til að ná lestinni heim aftur.. Við lölluðum okkur að einni neðanjarðarstöðinni í nágrenni við hótelið, til að þurfa ekki að labba að Penn Station, klifjuð pokum eftir allar heimsóknir okkar í verslanirnar..
Þegar að Penn Station var komið var örlítill tími þar til að lestin færi til New London og var þá ekkert annað í stöðunni en að setjast niður í biðsalnum og horfa á og fylgjast með fólki.. Þar sátu tveir eldir menn og voru alls ekki frýnilegir.. Skítugir upp fyrir haus og voru með tvær tennur í munninum.. þeir ræddu um og rifjuðu upp gamla tímann þegar þeir voru í hernum og hvernig allt hefði verið þá.. ræddu líka um þegar annar þeirra var í fangelsi og hafði hitt þar einn annan félaga sem var sko krimmi.. Og sá sem talaði var sko alls enginn krimmi að eigin sögn og blótaði lögreglunni alveg fram og aftur og að það kæmi henni alls ekkert við hvort hann væri að reykja hass eða hvað það nú var..

Loksins kom lestin og dauðþreyttir fjórmenningarnir hlömmuðu sér niður í sætin, alsæl með heimsóknina til stórborgarinnar en alveg tilbúin til heimfarar.. enda pungsveitt eftir allt labbið og fæturnir orðnir lúnir..

Permalink 7 Ummæli

Túristar í Ameríku..

janúar 27, 2006 at 2:18 am ()

Þá er komið að því.. heimsókn sys er að ljúka.. 11 dagar búnir og samt er eins og hún sé nýkomin.. Manni finnst einhvern veginn eins og svo mikið sé eftir að gera þó svo að hver dagur hafi verið fullpakkaður og sumir meira en það..
Kannksi líka frekja og eigingirni að vilja ekki segja bless.. Mig langar bara að hafa hana hérna hjá mér, enda búið að vera óhemju gaman hjá okkur.. Mikið talað og mikið hlegið og svo hlegið aðeins meira..

Það verður tómlegt að vera bara tvö í kotinu aftur, eftir að hafa verið með fullt hús af fólki, barni og hundum..

Eftir að hafa þrætt mollið og margar, margar aðrar verslanir í bæjunum hér í kring, farið og skoðað Gamla bæinn í Mystic og fara á kafbátasafnið á varnarsvæðinu, var ákveðið að hafa föstudaginn sem ekta túristadag.. ákveðið var að fara með gestina í smá skoðunarferð til Holy Land USA í Waterbury hér í Connecticut.. en það á að vera smækkuð mynd af Betlehem eins og Betlehem var þegar Jesús fæddist..
Þangað var um klukkutíma akstur frá okkur og var ég búin að heyra af þessum stað frá gömlum vini mínum að þetta væri gaman og merkilegt að sjá.. Við drifum í að leita að aksktursleiðinni á netinu og brunuðum svo af stað um hádegisbil..

Til að komast á áfangastað þurfti að þræða götur Waterbury sem og versta part bæjarins.. En þessi versti partur er svokallað “gettó” og var allt annað en fagurt að aka þarna í gegn.. Meira að segja var pínu hræðsla sem greip mann því það eru ófáar sjónvarpsfréttirnar sem maður heyrir þaðan..
Loksins sáum við svo í risastóra krossinn sem stendur rígsperrtur upp á hæð, líkt og ekkert annað í heiminum tróni hærra en hann.. En þegar þangað kom var þar enginn nema við og öll hlið lokuð.. Þar hittum við þó mann einn sem sagði okkur að Holy Land væri lokað, og hefði verið lokað í um 20 ár.. Því þar höfðu öll gengin í Waterbury hertekið staðinn og að þar væri lítið annað að sjá nema rústir einar, bjórdósir/vínflöskur og áhöld til eiturlyfjaneyslu.. ? kvöldin væri þetta samkomustaður hinna ýmsu fíkla sem og kvenna sem selja sig..
Hann sagði okkur svo að landið væri í einkaeign en okkur væri velkomið að skoða það sem enn stendur uppi, en passa okkur bara á nálum og öðru slíku..

Ef maður náði að horfa framhjá skítnum og ógeðinu sem fíklar og aðrar sóðabrækur bæjarins höfðu skilið eftir sig, var þetta bara hinn fallegasti staður og mjög áhugavert og mikið að skoða.. Sá sem þetta gerði á mikið hrós skilið því mikið virtist hafa verið lagt í að gera staðinn áhugaverðan og skemmtilegan, og öll litlu smáatriðin voru út um allt..
Þessi maður sem við hittum fyrir framan hliðið sagði okkur að Holy Land hefði verið svo vinsæll á árum áður, að heimsóknir þangað hefðu verið fleiri en í Disney Land á áttunda áratugnum.. 
En þvílík synd að láta þetta drappast svona niður eða gefa staðinn upp á bátinn fyrir svona lýð.. já ég segi bara lýð.. á ekki til orð yfir af hverju yfirvöld gripu ekki strax í rassgötin á þessum vandræðagemlingum áður en eyðileggingin varð svona svakaleg..

Jæja, en þrátt fyrir sóðaskapinn og eyðilegginguna tókum við ógrynni af myndum af því sem eftir stendur og hægt er að skoða í myndaalbúminu..

Þessi dagsferð var nú ekki sú eina sem farin var.. því New York var heimsótt líka og meira að segja í tvo daga.. en ætli ég láti ekki hér staðar numið í bili og fari að sofa í hausinn á mér.. svo er horið líka farið að leka niður og angra mig..

Bið að heilsa í bili..

Permalink 8 Ummæli

Ekki hætt!!

janúar 26, 2006 at 11:06 am ()

Kæru lesendur!! Ég biðst afsökunar á þessu bloggleysi mínu.. 
Er alls ekki hætt, bara búið að vera mikið að gera og hef haft lítinn tíma til að skrifa inn á bloggið á milli þess að fara í búðir með sys, í skoðunarferðir, læra og vera svo í skólanum..

Lofa betrumbót.. ef ekki í kvöld, þá í fyrramálið..

Hafið það gott..

Permalink 3 Ummæli

Stund milli stríða..

janúar 18, 2006 at 11:14 am ()

Eftir að hafa litið í tölvuna til að rekja flugið til Boston, sáum við að allt var á áætlun.. Svo þá var ekkert annað en að leggja af stað sækja sys og Bjössa..

Þegar við komum á flugvöllinn í Boston skoðuðum við risastóra skjáinn til að finna flug Icelandair.. Ekki kom nú sjón sú er blasti við okkur mikið á óvart.. Eins og hálfs tíma seinkun.. Það er eins og það sé einhver lenska að flug Icelandair fari í seinkun og maður á eiginlega að gera ráð fyrir því frekar en hitt..
Jæja.. það eina sem hægt var að gera í stöðunni var að fara í bókabúðina og finna sér einhver slúðurblöð að lesa og fá sér heitt kaffi á Dunkin Donuts, hlamma sér svo niður í eitthvert sætið og lesa um líf fræga og ríka fólksins.. Ég hefði geta bitið sjálfa mig í rassinn fyrir að hafa ekki tekið með mér heimalærdóminn og lesa það frekar..
Það er svona þegar maður trúir því sem maður sér í staðinn fyrir að læra af reynslunni..

Kl. 18:20 lenti svo vélin.. Frá því vélin lenti var enn meiri bið því rúmur klukkutími fór í að fara í gegnum útlendingaeftirlitið, tollinn og að bíða eftir töskunum.. svo fóru farþegar Icelandair að streyma í gegn.. og á meðan ég sat og beið, sá ég konu sem ég var viss um að þekkja.. Kallaði nafn hennar og jú jú.. Var þar ekki hún Venný komin til Boston.. en við unnum saman í fríhöfninni hérna í denn.. Alltaf gaman að hitta gamla vini..
Svo biðum við aðeins lengur..  
Loksins kom svo parið.. ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar ég sá skótau systur minnar.. Snjóhvít kúrekarstígvél með stórhættulega mjórri tá.. Hún, sem er ekki þekkt fyrir annað en að vera í Puma strigaskóm, var komin í skó sem líktust einna helst vopni sem ætti að vera bannað með lögum.. og ekki bara af því að þessi támjóu stígvél geta verið hættuleg heldur líka er þetta hin mesta sjónmengun.. Það var mikið hlegið en svakalega var gaman að hitta þau..

? gær, sem var fyrsti dagurinn þeirra hér, byrjuðum við á að fara með parið hinn gullna túristahring.. en hann sumsé samanstendur af því að fara í mollið og þramma þar allan hringinn og fram og til baka, svo úr búð í búð og svo í aðra..
Rosalega gaman að sjá upplitið á henni sys þegar hún fór að skoða og bera saman verðin miðað við heima.. Það er auðvelt að missa sig og hér var engin undantekning á..

Felisha og Jason koma svo seinni partinn í dag og ætla að vera fram á sunnudag.. 

Jæja.. nú er að skipuleggja einhverjar skoðunarferðir með gestina og reyna að gera heimsókn þeirra skemmtilega og áhugaverða..  

 

Permalink 10 Ummæli

Stórheimsókn í dag

janúar 16, 2006 at 1:38 pm ()

Það heldur betur breyttist veðrið nú á einum sólarhring.. fór úr +12°C  á laugardag niður í -6 á sunnudaginn..
Þessi hitamismunur fór heldur betur illa með varirnar mínar.. ég er ein STÓR frunsa.. græt að morgni..
En lukkulega á ég frunsumeðal sem snarvirkar.. kallar fram þennan ljóta áblástur og þurrkar upp, en þar með er ekki öll sagan sögð, því að um leið og meðalið þurrkar upp frunsudjöfulinn, þurrkast varirnar upp í leiðinni.. svo nú er ég með stóra, stóra frunsu og skraufþurrar varir..
Það er ferleg pína að brosa..  

Skólinn gengur þokkalega enn sem komið er.. er búin að vera að læra mest alla helgina.. lesa, lesa og lesa meira.. vinna svo í verkefnum og reyna að skila þeim sómasamlega af mér..
Það er ferlega skrítið að vera í skóla í gegnum netið.. sérstaklega af því að maður er að spjalla við fólk sem maður veit hvorki haus né sporður á.. Prófessorinn tekur lítinn þátt í náminu, varpar fram spurningum og lætur fólk rökræða um þær spurningar.. Þetta er gaman en það vantar einhvern veginn þetta persónulega þið vitið..

—–

En nú er komið að því.. litla sys og maður hennar að koma í dag..  jiiibbýýýý
Veit svei mér ekki hvernig ég á að haga mér.. er búin að vera svo yfir mig spennt að fá þau í heimsókn..

Jæja.. dugir ekki þetta hangs í tölvunni.. þarf að fara að koma mér í sturtu og þvo af mér svitann.. setjast svo upp í bíl og keyra til Boston til að sækja parið..

Permalink 3 Ummæli

Next page »